Vikan - 21.08.1958, Page 8
FAGRDR MUNDR
IJR GULLI
OG SILFRI
Sendom gegn póstkröfu.
Guðlaugur Magnússon
SKARTGRDPAVERZLUN
LAugavegl 22 A. — Sími 15972.
Valur- Vandar- Vöruna
SULTUR — ÁVAXTADDLAUP
MARMELAÐI — SAFTIR
MATARLITUR — SÓSULITUR
EDIKSVRA — BORÐEDIK
TÓMATSÓSA — fSSÓSUR
— Sendum um allt land —
Efnagerðin Yalur h.f.
Box 1813. — Sími 19795 — Reykjavík.
TRICHLORHREINSUN
(ÞURRHREINSUN)
®
SOLVALLA G ÖTU 74 • SÍMI 13237
BARMAHLÍO 6 SÍMI 23337
Prjónastofan Hlín h.f.
Skólavörðustíg 18. Símar 12779 og 14508.
Prjónavörur höfum við framleitt í
síðastliðin 25 ár úr íslenzku og er-
lendu garni.
Höfum ávallt á boðstólum fyrsta
flokks vinnu, og fylgjumst vel með
tízkunni.
(tendum gegn póstkröfu um land allt.
. i
Ég þakka þeim sem verzlað hafa í
Sölutuminum við Amarhól ánægju-
leg kynni, og bið þá um að beina við-
skiptum sínum í
Hreyfilsbúðina.
Pétur Pétursson.
LITLA BLIKKSMIÐJAN
Nýlendugötu 21 A. Sími 16457.
Smíðar meðal annars:
Þakrennur, allar stærðir og gerðir.
Þakglugga, allar stærðir og gerðir.
Olíukassa í báta og skip.
Benzíngeyma í bíla og báta.
Loftrör, allar stærðir.
Lóðabala. Lofttúður o. fl.
SHORnið
Skoðanakönnun meöal reykvískra húsmæöra
Ástin ekki talin undirstaða hjónabandsins,
heldur gagnkvæmur skilningur, traust og virðing
Erlendis tíðkast mjög að láta fara fram skoð-
anakannanir um allt milli himins og jarðar. Enn
sem komið er, hefur btið verið gert af því hér á
landi. — En nú hefur Heimilishomið snúið sér til
nokkurra kvenna og þær hafa góðfúslega fallizt
á, að svör þeirra birtist hér. Ætlunin var að birta
nöfn þeirra, en þar sem ein þeirra var því mót-
fallin, varð að hverfa frá því að þessu sinni. Þó
má taka fram, að konumar eru allar búsettar í
Reykjavík. Síðar höfum við hugsað okkur að leita
til kvenna úti á landi með ýmis konar spumingar.
1. Hvenær teljiS þér hæfi-
legt, að stúlkur giftist?
2. Hafið þér trú á langvar-
andi trúlofunum ?
3. Fóruð þér á húsmæðra-
skóla áður en þér gift-
ust ? Ef ekki, hvemig
hefur matseldin og bú-
skapurinn gengið?
4. Hvað finnst yður hæfi-
legt að hjón eigi mörg
böm?
5. Hvem teljið þér grund-
völl góðs hjónabands ?
6. Álítið þér, að börn og
eiginmaður finni sig af-
skipt, ef konan vinnur
utan heimilis?
7. Hjálpar eiginmaðurinn
yður við heimilisstörfin ?
8. Helztu gallar eigin-
mannsins ?
9. En yðar sjálfrar?
Hér blrtast svör kvennanna:
Fyrst er A. Hún er 33 ára
og á fjögur böm. Gifti sig
19 ára.
1. Mér finnst hæfilegt, að
stúlkur giftist 19—22 ára.
Auðvitað er ekki hægt að
segja ákveðið um það, fer
eftir efnum og ástæðum og
síðast en ekki sí2?t, þroska
beggja.
2. Ég var sjálf trúlofuð
í 1 og hálft ár og finnst það
í stytzta lagi. Hins vegar
held ég, að vafasamt sé að
draga giftinguna, þegar
fólk hefur verið trúlofað í
meira en 2—3 ár.
3. Nei, ég fór ekki I hús-
mæðraskóla, en var á sníða-
og matreiðslunámskeiðum
og tel mig hafa lært nóg
á þeim.
4. Ætti vitaskuld að fara
eftir efnum hjóna, en það
gleymist stundum að at-
huga það, þegar hjón hrúga
niður börnum á hverju ári
í 10—15 ár. Mín eru 14, 9,
6 og 2 og mig langar að
eiga eitt í viðbót.
5. Ást til að byrja með;
síðan traust vinátta og
skilningur.
6. Þarf ekki að vera. Sjálf
hef ég aldrei gert það og
býst ekki við að byrja á því
héðan af. Gæti kannski
fengið vinnu við að skúra
gólf í skrifstofum og búð-
um, þegar krakkarnir eru
orðnir fullorðnir og karlinn
iagztur í kör.
7. Nei, það gerir hann yf-
irleitt ekki, blessaður. Kem-
ur þó fyrir, að hann þurrk-
ar upp fyrir mig á afmæl-
inu mínu.
8. Hann setur alltaf síga-
rettuösku á gólfið, þegar
hann nennir ekki að ná í
öskubakka.
9. Alltof uppstökk.
B er 51 árs. Hún á átta
böm. Gifti sig 23 ára.
1. Ekki yngri en 20 ára.
2. Alls ekki. Ég og mað-
urinn minn vorum trúlofuð
í hálft ár. Það var ágætt.
3. Nei, en ég hafði lært
matreiðslu og fatasaum hjá
móður minni.
4. Mér þykir prýðilegt að
eiga átta. Hjón ættu að
eignast sem flest böm, bara
reyna að hafa 2—3 ár á
milli. Mín böm em 26, 25,
22, 20, 18, 17, 14 og 10.
5. Gagnkvæm virðing og
fómfýsi.
6. Mér finnst sjálfsagt að
kona vinni utan heimilis
nokkum hluta dags, ef
fjárhagur heimilisins er erf-
iður. Og ég get ekki skilið
að nokkur ætti að hafa illt
af því.
7. Það kemur fyrir, en
viljugur er hann ekki. Ein-
stöku sinnum þvær hann þó
upp og vökvar blómin.
8. Hann er voðalega latur.
9. Ég tala alltof mikið og
þykist alltaf hafa á réttu
að standa.
C er 24 ára. Hún á 2 böm.
Gifti sig 17 ára.
1. Fer eftir ýmsu. Mér
finnst ég einskis hafa farið
á mis, þótt ég væri svona
ung, þegar ég gifti mig.
2. Nei.
3. Nei, ég ætlaði að gera
það, en kom því ekki I verk.
Þegar ég var 19 ára gerði
ég þó alvöru úr því og hafði
mjög gott af því, sérstak-
lega hefur það komið sér
vel að læra handavinnu.
4. Ég vil eiga a.m.k. 12.
Mér finnst böm alveg dá-
samleg. Mín eru 7 ára og
1 árs. Við biðum í þessi 6
ár til að geta sparað sam-
an, emm nú búin að kaupa
okkur sæmilega stóra Ibúð
og erum ákveðin i að fylla
hana af krökkum á næstu
árum.
5. Traust, hreinskilni og
svo auðvitað börn.
6. Nei. Ég vann úti í 3 ár
og varð ekki vör við neina
breytingu til hins verra hjá
manni eða bami.
7. Já, hann er dásamlegur
og ég get aldrei fullþakkað
tengdamóður minni. Hún
kenndi honum að búa um
rúm, þvo gólf, bursta skó
og pressa buxur og hann
/. K.
gerit allt þetta Ijömandi
vel. Og það sem meira er,
hann virðist hafa ánægju
af þessu, þótt hann geri
það kannski meira til að
hjálpa mér. Hann hjálpar
mér yfirleitt við allt og
hefur gert frá því 'IiS gift-
um okkur. Það eina, sem
hann hefur aldrei fengizt til
að gera er að þvo upp!
GRIMUKLÆDD EGG
Skemmtilegnr smáréttnr
Það, sem til þarf:
Fjórar brauðsneiðar
Smjör
Salatblöð
Tvö harðsoðin egg
Mayonnaise
Matarolía
Átta sardínur
Kapar (súrs) eða
sítróna.
Það, sem gera þarf:
1) Eggin soðin og skurnin tekin af.
2) Brauðið smurt
3) Mayonnaisið hrært vel.
4) Mayonnaisið hrært vel.
hálft egg — skorið langsum.
5) Næst er mayonnisið sett á og á að hylja
eggin alveg.
6) Loks eru sardínurnar settar á mayonnisið
og skreytt með kapar eða sítrónúsneið eft-
ir smekk.
HUSRAÐ . . .
Gömlum, storknuðum blóðblettum á gólfi, má
ná burtu með því að nudda blettinn með vatni
og brennisteinssýru (fjórir hlutar vatns móti
einum af sýru). Síðan er farið aftur yfir blettinn
með soðnu vatni.
Ryð á hnífapörum hverfur, ef þau eru nudduð
með hráum, skornum lauk.
Ef mikil tóbakslykt er í herbergjum hverfur
hún ef rakur svampur er hengdur upp í einu horni
herbergisins.
8. Hann er óstundvís, en
ekkert alvarlega. Ég man
ekki eftir neinum öðrum.
9. Þeir eru óteljandi. Ég
er frek og mér er sagt að
ég sé montin. Svo er ég
kærulaus, rubba öllu af í
hvelli án þess að nenna að
vanda mig. Ég fer fljótt í
fýlu, ef eitthvað er sagt
við mig. Og ég er víst allt-
of pjöttuð, það segir eigin-
maðurinn að minnsta kosti,
en ég held ég sé að lagast.
D er 29 ára. Hún á einn
son. Gifti sig 26 ára.
1. Tuttugu og þriggja til
sjö.
2. Já.
3. Já.
4. Ekki fleiri en tvö. Ég
á einn, sem er rúmlega
þriggja ára. Og ég held ég
treysti mér ekki til að eiga
fleiri, mér finnst ég hafa
nóg að gera með þetta eina
og auk þess að sjá um eig-
inmann og hugsa um íbúð-
ina. Svo er ég hrædd við að
eiga fleiri, mér fannst svo
erfitt að eiga strákinn, að
mér finnst ég geti ekki lagt
það á mig að kveljast svona
óskaplega aftur.
5. Hjálpsemi og nær-
gætni.
6. Mitt álit er að kona
eigi eingöngu að helga sig
heimili sínu, bami og
manni. Og það er áreiðan-
legt, að barn getur oft beð-
ið varanlegt tjón ef móðir-
in er burtu frá því dag-
langt.
7. Já, hann gerir það
stundum. Þvær upp og
stundum burstar hann
skóna sína.
8. Hann er nöldrunarsam-
ur og ósanngjam. Skilur
aldrei, að ég hef nóg að
gera með heimilið og bam-
ið og auk þess að þjóna
honum, gera við föt og
margt og margt.
9. Veit það ekki. En mað-
urinn minn segir að ég
kimni ekki að strauja skyrt-
ur, Hann fer alltaf með þær
heim til mömmu sinnar.
Og hver verður nú út-
koman? 1) Eiginmennirnir
em sýnilega ekki sérlega
viljugir við heimilisstörf. 2)
Allar, nema ein, eiga eða
vilja eiga mörg börn. 3)
Þær telja, að heimilið þurfi
ekki að bíða tjón þótt hús-
móðirin stundi vinnu utan
heimilis. 4) Og ást er ekki
talin aðalundirstaða hjóna-
bands, heldur traust, virð-
ing og gagnkvæmur skiln-
ingur.
LEIKARASPJALL
Marlon Brando orð inn heimiliskær
Marlon Brando skiptir á barninu sínu . . . Hugh O’Brian stígur í vænginn við
fyrrverandi konu Sinatra . . . Paul New man leikur með Liz Taylor . . . Bossano
Brazzi heldur partí á hverju kvöldi . . . Deborah Kerr skilin . . . Pat Boone tek-
ur fóstursyni . . . „Hver er þessi de Gaull e?“
Marlon Brando, sem hef-
ur verið einn „óþægasti"
leikarinn í Hollywood er
sagður hafa róast mikið síð-
Lylia og Rossano Brazzi
— halda partí á hverju
kvöldi
an sonur hans fæddist.
Hann er mjög umhyggju-
samur faðir, skiptir oft á
barninu, gefur því að borða
og fer út að aka með það,
þegar 'hann hefur frí.
Bing Crosby og kona
hans eiga von á barni inn-
an skamms. Bing vonar að
barnið verði dóttir. Hann
átti fjóra syni með fyrri
konu sSnni, Carol Lee. Hún
lézt fyrir nokkrum árum.
Lita og Bory Calhoun
eiga von á barni númer tvö
innan skamms. Þau vonast
til að það verði drengur.
Fmmburður þeirra er telpa,
sem er 17 mánaða gömul.
Hjónaband Litu og Rorys
hefur staðið í meira en 10
ár og eru þau sögð mjög
hamingjusöm.
Hugh O’Brian er eitt
mesta kvennagullið í Holly-
wood. Hann hefur aldrei
gifzt en fyrir 14 árum var
hann trúlofaður stúlku, sem
hann hafði þekkt frá bam-
æsku. Hún dó skömmu áður
en brúðkaupið skyldi hald-
ið og hefur Hugh aldrei
getað gleymt henni. Hann
hefur upp á síðkastið mikið
sézt með fyrrverandi eigin-
konu Frank Sinatra og seg-
ist vera mjög hrifinn af
henni. En það er ekki búizt
við að þau giftist og aðal-
ástæðan er sú, að Nancy er
kaþólskrar trúar og þótt
hún hafi sjálf samþykkt að
veita Frank skilnað á sín-
um tíma, telur kirkja henn-
ar þau enn hjón, þar sem
kaþólska kirkjan viður-
kennir yfirleitt ekki hjóna-
skilnaði .
Joanne Woodward, se.ni
hlaut Oscarverðlaun s. 1. árs
er gift Paul Newmann.
Hann er sagður einn allra
efnilegasti leikari ,sem fram
hefur komið á síðustu ár-
um, og var almennt talið,
að hann myndi hljóta Osc-
arverðlaunin um leið og
kona hans, fyrir leik sinn í
myndinni „Long, Hot Sum-
mer". Fyrir þá mynd hlaut
hann sérstaka viðurkenn-
ingu á kvikmyndahátíðinni
í Cannes. Nú leikur Paul
með Elizabeth Taylor i
myndinni „Cat On A Hot
Tin Roof“.
Nýtt nafn í Hollywood:
Joanne Woodward
— hlaut Oscarverðlaunin
s. 1. ár.
John Gavin. Hann er sagð-
ur hár, dökkhærður og
myndarlegur. Hvort hann
þyki góður leikari fylgir
hins vegar ekki sögunni.
Tab Hunter og Venetla
Stevensson eru orðnir góðir
vinir aftur og er að sjá að
það séu kærkomin tíðindi i
Hollywood. Þau voru mikið
saman á tímabili, en svo
slitnaði uppúr og þau hafa
ekki talazt við lengi. En
nú er allt sem sagt orðið
gott aftur. Við skulum vona
að það endist.
Italski leikarinn Rossano
Brazzi virðist kunna vel við
sig í Hollywood og hann og
Lydia kona hans eru sögð
með afbrigðum vinsæl þar í
borg. Og ástæðan er: þau
halda partí á hverju kvöldi.
Nýjasta mynd Glenn
Fords heitir „Imitation
General". Aðalmótleikari
hans er ung leikkona, Taina
Elg. Hún er sögð sýna mjög
þokkalegan leik.
Hjónaband Ann Blyth og
James McNulty er sagt eitt
af beztu hjónaböndum í
Hollywood. Þau eiga tvo
litla drengi.
Enski leikarinn James
Mason hefur hneykslað eft-
irminnilega amerískar kven-
félagskonur. Hann birtist
sem sé í einum frægasta
næturklúbbi Hollywood með
átta ára gamla dóttur sína
uppá arminn. Þótti þeirri
litlu svo gaman að hún
fékkst ekki til að fara heim
fyrr en komið var nokkuð
yfir miðnætti.
Það hefur vakið geysilega
athygli, að Deborah Kerr
er skilin við mann sinn,
Tony Bartley. Þau hafa ver-
ið gift 1 12 ár og hjóna-
band þeirra hefur verið tal-
ið mjög farsælt. Bartely
segir að rithöfundurinn Pet-
er Viertel hafi ginnt konu
sína frá sér. Rithöfundurinn
mótmælir ásökununum
mjög eindregið. Deborah og
Tony Bartley eiga tvær
dætur.
Eins og kunnugt er munu
Jeff Chandler og Esther
Williams hafa í hyggju að
ganga í hjónaband, þegar
gengið hefur verið frá
skilnaði beggja frá fyrri
mökum þeirra. 1 blaðavið-
tali sagði Jeff, að mesta
vandamálið yrði börnin.
Hann á tvö með konu sinni
og Esther 3 með Ben Gage.
Ben hefur neitað að láta
börnin' af hendi og krefst
þess að þau verði dæmd sér.
Það vill Esther ekki una við
og heimtar að hún fái öll
bömin. Svipaða sögu er að
segja hjá Jeff. Hann vill
Kim Novak — loksins gift.
ekki missa sin böm, en
fyrrverandi kona hans hef*
ur neitað að láta hann fá
þau.
Söngvarinn frægi Pat
Boone og Shirley kona hans
hafa tekið tvo fóstursyni,
annar er ítalskur hinn þýzk-
ur. Auk þess eiga hjónin
fjórar ungar dætur, sú
yngsta er aðeins hálfs árs
gömul. Pat Boone olli miklu
umtali fyrir rúmu ári, er
hann í fyrstu kvikmynd
sinni neitaði að kyssa aðal-
kvenmótleikara sinn. „Ég
kæri mig ekki um að kyssa
aðrar stúlkur en konuna
mína“, sagði hann.
Rokksöngvari einn am -
riskur heitir Jerry Lee.
Hann var á ferð í London
um það leyti þegar blöðin
skrifuðu sem mest um
hugsanlega valdatöku de
Gaulle. Rokksöngvarinn
vakti heljarmikið hneyksli,
er honum varð það á að
spyrja: „Hvaða maður er
þetta eiginlega, þessi de
Gaulle?"
Elizabeth Taylor ætlar að
selja Rolls Royce bifreiðina,
sem Mike Todd gaf henni.
Hún segir að það vekji of
margar viðkvæmar minn-
ingar að eiga bílinn áfram.
8
VIKAN
VIKAN
9