Vikan - 04.09.1958, Blaðsíða 9
FAGRIK MUNIR
ÚK GULLI
OG SILFRI
Senðurn gegn póstkröfu.
Guðlaugur Magnússon
SKARTGRIPAVEKZLUN
Laugavegl 22 A. — Simi 15272.
Valur- Vandar- Vöruna
SULTTJR — Á V AXT AHLAUP
MARMELAÐI — SAFTIR
MATAKLITUK — SÓSULITUR
EDIKSÝRA — BORÐEDEK
TÓMATSÓSA — ISSÓSUR
— Sendum um allt land —
Efnagerðin Valur h.f.
Box 1313. — Sími 19795 — Beykjavfk.
TRICHLORHREINSUN
(ÞURRHREINSUN)
BJ©RG
SDLVALLAGÖTU 74 • SÍMI 13237
BARMAHLÍÐ B SÍMI 23337
Prjónastofan Hlín h.f.
Skólavörðustig 18. Símar 12779 og 14508.
Prjónavörur höfum við framleitt í
síðastliðin 25 ár úr íslenzku og er-
lendu gami.
Höfum ávallt á boðstólum fyrsta
flokks vinnu, og fylgjumst vel með
tízkunni.
iiendum gegn póstkröfu um land allt.
Ég þakka þeim sem verzlað hafa I
Sölutumimun við Amarhól ánægju-
leg kynni, og bið þá um að beina við-
skiptum sínum í
Hreyfilsbúðina.
Pétur Pétursson.
LITLA BLIKKSMIÐJAN
Nýlendugötu 21 A. Sími 16457.
Smíðar meðal annars:
I*akrennur, allar stærðir og gerðir.
Þakglugga, allar stærðir og gerðir.
Olíukassa í báta og skip.
Benzíngeyma í bíla og báta.
Loftrör, allar stærðir.
Lóðabala. Lofttúður o. fl.
I SHORnio
MEIRI FJÖLRREVTNI
FISIÍRÉTTA
P’yrir nokkrum dögum barst Heimilishorninu
bréf frá ungri, nýgiftri konu héðan úr Reykjavík.
Hún kvartar sáran yfir því að hún kunni ekki að
matreiða fisk. Auðvitað kann hún að sjóða fisk,
en hún segist vera orðin hundleið á því að borða
alltaf soðinn fisk og aftur soðinn fisk. Hún segist
hafa grun um, að eiginmanninum sé farið að þykja
nóg um að fá soðna ýsu á mánudögum, soðinn
þorsk á þriðjudögum, nýtt þorskflak á miðviku-
dögum, soðna rauðsprettu á fimmtudögum, nætur-
saltað flak á föstudögum og þegar bezt lætur
reyktan fisk á laugardögum. Biður hún okkur í
hamingju bænum að hjálpa sér og gefa sér ein-
hverja fiskuppskriftir.
Verðum við fúslega við beiðni hennar, enda er
það skoðun okkar að fleiri en þessi unga kona
kvarti undan því að hafa alltaf soðinn fisk. Það
er áreiðanlegt að alltof lítið er af því gert hérlend-
is að bera fisk fram öðruvísi en hann kemur beint
úr búðinni. Við skorum á lesendur okkar að reyna
réttina. Ef til vill kunnið þið einhverjar fleiri
fiskuppskriftir og væri þá vel þegið, ef þið vilduð
senda þær til Heimilishornsins.
Fiskur með hrís-
grjónum.
Roðinu flett af og beinin
tekin úr. Fiskurinn því-
næst hakkaður. Einn og
hálfur bolli af hrísgrjónum
þvegin og soðin í vatni á-
samt smjöri og salti. Síðan
er fiskfarsið, pipar og
tómatsafi hrært saman og
sett út í og hrært í um
stund. Þá er það sett í vel
smurt form. Nokkrar
smjörkúlur settar ofan á,
raspi og rifnum osti sáldr-
að yfir. Bakað í ofni við
hægan hita í um það bil
hálfa klukkustund.
Síldarréttur.
125 g af smjörlíki, dá-
litlu af steinselju, einum
niðurskornum lauk og 14 g
safran (fæst í lyfjabúðum)
blandað saman og síðan
bætt í pipar og salti. Hrært
vel. Síldarnar ristar að
framan og bein tekin úr.
Sxðan er maukinu skipt nið-
ur svo að sami skammtur
fari í hverja síld. Einu
stóru salatblaði vafið um
hverja og steikt í heitri
matarolíu góða stund.
Fiskur með græn-
meti.
Gulrætur og selja skorin
í smábita og sett í eld-
trausta skál. Ofan á sett
þorsk- eða rauðsprettuflök
og niðurskorinn laukur á
flökin. Þá er blandað sam-
an 1 dl af tómatsafa, 1 dl
rjóma, 1 dl vatni. 1 tesk.
hveiti % tesk. karry og 1
tesk. salt. Þetta er hrært
Hvítvinsþorskur.
og hellt yfir. Bakað í ofni í
um það bil þrjá stundar-
fjórðunga.
„Bjór-Karfi“.
Fiskurinn þveginn vand-
lega og flakaður. Settur' í
pott með salti, piparstöng,
tveim til þrem lárberja-
blöðum og allstórum, niður-
skornum lauk. Þá er hellt
yfir , fiskinn bjór (smakk-
ast betur, ef ofurlítið af
rauðvíni er bætt saman við
bjórinn fyrst). Fiskurinn
látinn liggja í leginum í
klukkutíma, en þá er hann
soðinn (í leginum). Tekinn
uppúr og borðaður með
soðnum kartöflum og soð-
inu skal hellt yfir. En áður
á að setja út í það hand-
fylli af röspuðu rúgbrauði.
Síðasti fiskrétturinn heit-
ir Hvítvínsþorskur, og er
dýrasti rétturinn af þeim,
sem nefndir eru hér. Hálft
kíló af smjöri í pott (smjör-
líki má nota, en á helzt að
vera hreint smjör), ásamt
hálfri flösku af hvítvíni,
fjórum lárberjablöðum og
dálitlu af pipar. Þorskurinn
þveginn og skorinn í hæfi-
legar stór stykki. Hvert
stykki þerrað mjög vel.
Sett í pottinn og soðið við
jafnan hita í hálftíma.
Bezt er að bera fiskinn á
borð í pottinum, svo að
bragðið fari ekki. Borðað
með kartöflum.
Grennið ykkut
í mitti
Ef þér eruð of sverar í
mitti ættuð þér að gera
æfingarnar, sem sýndar
eru á meðfylgjandi p mynd-
um.
Lítið á myndina til
vinstri: Standið beinar og
takið bolvindu til 'vinstri.
Lyftið höndunum frá hlið-
unum og beygið olnbog-
ann. Þunginn á að koma
á hægri fót, en vinstri
fótur á rétt að nema við
gólfið. Gerið þessa æfingu
oft, vindið bæði til hægri og
vinstri og hvílið fæturnar
til skiptis.
Myndin til hægri: Lyftið
Frú ein í Reykjavík, sem kallar sig P. L. hefur
sent okkur uppskrift af rússneskum eftirmat, sem
við birtum hér með og þökkum kærlega fyrir. Og
um leið viljum við endurtaka áskorun okkar um
að þið sendið þættinum góðar uppskriftir, ráðlegg-
ingar og fleira. Treystum við því, að þið verðið
vel við þescari beiðni, enda ætti slíkt að geta
aukið fjölbreytni Heimilishornsins að mun. Og
hér kemur uppskriftin:
70 g mannagrjón soðin í
7 dl. af safti og vatni i 15
mínútur. Blandan skal vera
sterk. Ef grauturinn verður
of þykkur má bæta dálitlu
safti saman við. Því næst
er grautnum hellt í skál og
hrærður þar til hann er
orðinn kaldur og hefur
fengið á sig annan lit.
Borðaður með þeyttum
í'jóma.
Jarðarberjaterta
J/ egg, 210 gr. sykur, 50 gr. hveiti, 80 gr.
kartöflumjöl. Milli laga og til skreytingar:
*/4 l. þeyttur rjómi, Ví> tsk. vanillusykur, V2
kg. jaröarber.
Eggjarauöurnar eru hrœrðar vel með sykrin-
um og 2V2 matsk. köldu vatni. Þá er hveitinu
blandað út í og síðast stífþeyttar eggjahvíturn-
ar. Deiginu er hellt i vel smurt form, og þakið
með raspi. — Kakan er bökuð við 200 gr. í 30
mnútur og látin kólna á kökurist. — Rjóminn er
þeyttur og helmingurinn blandaður jarðarberj-
um.. Kökunni er skift í tvennt og jarðaberjarjóm-
inn settur á milli. Það sem eftir er af rjómanum
er notaður til að skreyta kökuna með ásamt
heilum jarðarberjum.
hægra fæti upp á tá og
sveiflið um leið vinstra fæti
eins hátt og þér getið.
Munið að hafa hann bein-
an. Hendurnar í axlar-
hæð, hægri hönd boginn
yfir brjóstin og sú vinstri
teygð til sömu hliðar, til að
halda jafnvæginu. Andið
inn þegar þér lyftið fætin-
um og út þegar þér setjið
hann niður.
Séu æfingar þessar gerð-
ar vel og samvizkusamlega
kvölds og morgna í all-
langan tíma eiga þær að
hafa góð áhrif.
Nokkrar
sallatuppskriftir
Aspassalat:
Aspasið skorið niður í
litla bita. Sítrónusafi, salt,
ofurlitið af sykri og sinnepi
blandað út í mayonnaise og
aspasið hrært út í.
Tómatsr-Jat:
Tekið innan úr tómötun-
um og blandað saman 3
matsk. matarolíu, 1 matsk.
edik, niðurskornum lauk,
sykri, steinselju og tómat-
arnir fylltir með þessu.
Baunasalat:
Blandað á sama hátt'
matarolíu, sítrónusafa, sykri
og dálitlu salti. Baunirnar
hrærðar saman við.
JAROARBER,
sem fegrunarmeðal
Jarðarber eru holl og
ágætt fegrunarlyf. — Þau
innihalda kisil, kalk og C-
vitamin, eitthvað af A og
B-vítam. Þeir, sem geta
leyft sér að drekka eitt
glas af jarðarberjasaft
daglega bæta bæði heilsu
sína og fegurð. — Jarðar-
berjasafi er ágætur, sem
a.ndlitsvatn, notað eftir
hneinsun hxiðarinnar. —
Gott fyrir húðina er einn-
ig, að kreista jarðarber á
húðina og hafa það á í 20
mínútur. — Þvegið af með
rósavatni eða rigninga-
vatni.
Ný jarðarber haldast
fei-sk í nokkra daga með
því að nota 1(4 gr. benzo-
nesurt natron.
/ K.
LEI KAR AS P J ALL
Gail Russel dæmd í fangelsi
Kim á í basli með Trujillo .... Jane Wyma kærir sig kollótta um aldurinn .... Sheila
og Guy Madison ætla að standa við orð sín .... Janet og Tony telja dagana, þar til
barn þeirra fæðist .... Judy Garland og Sid Luft tekin saman aftur .... Errol
Flynn boðin ný eiginkona .... Páfi sendi Red Skelton samúðarkveðjur .... Julie
og Harry Belafonte eiga von á erfingja.
Sautján ára gamall son-
ur Johnny Wcissmiillers
(TARZAN) leikur eitt af
aðalhlutverkunum í nýrri
mynd, sem heitir „Andy
ALDO RAY og
JEFF DONELL
— frúin átti að hátta.
Hardy snýr heim.“ Mickey
Rooney leikur titilhlutverk-
ið, en auk þess hefur átta
ára sonur Rooneys allstórt
hlutverk í myndinni.
ALDO RAY þykir kúnst-
ugur kall. Hann skildi við
eiginkonu sína, JEFF
DONNELLI fyrir alllöngu
og er haft fyrir satt, að
hjónabandið hafi verið mis-
heppnað frá byrjun. Jeff
sagði, að Aldo væri pipar-
sveinn í eSli sínu og gæti
ekki lifað eðlilegu hjúskap-
arlífi. Máli sínu til sönnun-
ar sagði Jeff, að þegar þau
voru nýkomin heim úr
kirkjunni eftir vígsluna,
hefði Aldo spurt, hvort það
væri ekki í lagi, að hann
brygði sér út um kvöldið
með nokkrum vinum sínum.
Hún skyldi bara fara að
hátta og hafa það rólegt!
önnur furðuleg saga er
sögð um JACK LEMMON.
Hann og kona hans,
Cynithia, áttu einn lítinn
son og þóttu afar ham-
ingjusöm. En eftir stutta
sambúð tilkynntu þau, að
nú vildu þau skilja. Kom
það flestum ef ekki öllum
mjög á óvart. Þegar frétta-
menn inntu Jack eftir þvi,
hvers vegna þau vildu
skilja, sagði hann: ,,Við
viljum ekki að sonur okkar
olist upp á heimili, þar sem
foreldrarnir rífast og slást.“
„Hafið þið rifist?“ spurði
blaðamaðurinn undrandi.
„Nei, ekki enn,“ sagði Jack,
„en við erum hrædd um að
gera það einhvern tíma og
viljum hafa vaðið fyrir
neðan okkur og skilja, með-
an samkomulagið er gott!“
JUNE HAVER virðist
algerlega hætt kvikmjmda-
leik. Hún var í mörg ár
ein dáðasta söng- og dans-
stjai’na í Hollywood. En
smám saman fór frægð
hennar að dala og hún
lenti auk þess í alls kyns
effiðleikum. Hún giftist og
skildi við mann sinn eftir
mjög stuttan tíma, trúlof-
aðist aftur og missti unn-
usta sinn skömmu fyrir
biúðkaupið. Þá fann June
upp á því snjallræði að
ganga í klaustur og komst
nú aftur á forsíður allra
helztu kvikmyndablaða í
Bandaríkjunum. Eftir fá-
eina mánuði í klaustrinu
var hún þó búin að fá nóg
og sneri aftur til Holly-
wood og sagði, að heilsu
sinnar vegna gæti hún ekki
verið kyrr í klaustrinu(!).
Síðan giftist hún leikaran-
um FRED MAC MURRAY
og hætti kvikmyndaleik,
sem fyrr segir. Þau hjónin
eru mjög hamingjusöm og
fyrir iy2 ári tóku þau ný-
fæddar tvíburatelpur í fóst-
ur, þar sem þau geta ekki
átt börn sjálf.
MARLYN MONROE og
ARTHUR MILLER hafa
verið á ferðalagi í Evrópu
að undanförnu, en héldu
aftur til Bandaríkjanna
fyrir nokkru, þar sem
Marylyn á að leika aðal-
hlutverkið í myndinni
„Some Like It Hot“.
JOAN CRAWFORD tók
fyrir allmörgum árum að
sér þrjú börn — dreng og
tvíburatelpur — og lýsti
því yfir, að hún myndi
elska þau og annast eins
og sín eigin böi-n. Hún
sagði, að hún hefði alla tíð
saknað þess að eiga ekki
börn og nú fengi hún eitt-
hvað til að „lifa fyrir.“
Hlaut Joan mikið lof fyr-
ir þetta góðverk og göfug-
an hugsunarhátt. En
börnin virðast ekki sérlega
hrifin af Joan. Þau hafa
margsinnis reynt að strjúka
að heiman. Fyrir nokkru
gengu þau á fund yfirvald-
anna í Los Angeles og báðu
þess að mega fara eitthvað
annað. Þau sögðu, að Joan
hefði aldrei sýnt þeim ást-
ÚÍT og umhyggju, nema
þegar hún hefði þurft að
auglýsa, hvað hún væri góð
kona og lét mynda sig, þar
sem hún hélt utan um
börnin eða lék við þau. Þau
TOAN CRAWFORD
— börnin stmku.
sögðust hafa reynt að
sætta sig við duttlunga
hennar og vargahátt í mörg
ár, en gætu það ekki leng-
ur.
LILLI PALMER hefur
leikið í kvikmyndum í
meira en fimmtán ár.
Gagnrýnendur segja að hún
sé ein bezta leikkona, sem
fram hefur komið og frægð
hennar og vinsældir hafa
aldrei verið meiri en nú.
Sjálf segir Lilli að hún
þakki vaxandi velgengni
skilnaðinum frá REX
HARRISON. Hann hafi
alltaf verið á xnóti því að
hún léki, af því að hann
óttaðist, að hún myndi
skyggja á sína eigin frægð.
GAIL RUSSEL var fyrir
nokkru tekin föst og dæmd
í 30 daga fangelsi fyrir að
aka bifreið sinni undir á-
hrifum áfengis og valda á-
rekstri, þar sem tvær
manneskjur slösuðust. Gail
þótti um árabil ein bezta
leikkona Ameríku og var
sögð ein af fáum Hollywood
stjörnum, sem höfðu leih-
hæfileika til að bera. Hún
var trúlofuð GUY MADI-
SON í mörg ár, en þegar
slitnaði upp úr því fyrir uin
það bil 6 árum lagðist Gail
í óreglu og drykkjuskap,.
Guy kvæntist ánið 1954
stúlku að nafni Slieila. Hún
ei ekki leikkona og hefur
aldrei komið fram í kvik-
mynd. Er hún sögð afburða
vinsæl í Hollywood sakir al-
úðleika, yfirlætisleysis og
hlýrrar framkomu. Skömmu
eftir giftinguna tilkynntu
hjónin, að þau vildu eiga
að minnsta kosti sex börn.
Þau virðast ætla að standa
við það, því að þau hafa
þegar eignazt þrjú.
RICHARD SKELTON,
níu ára gamall sonur REDS
SKELTON lézt fyrir nokkru
eftir erfið og langvarandl
veikindi. Red og konu hans
bárust samúðarkveðjur víðs
vegar að úr heiminum.
Meðal þeirra, sem vottuðu
hjónunum hluttekningu sína
var Píus páfi. Auk Richar-ds
hafa hjónin eignazt eina
dóttur, sem nú er ellefu
ára.
JUDY GARLAND og
SID LUFT skildu fyrir
hálfu ári, en hafa nú á-
kveðið að reyna að byrja á
ný. Þau giftust árið 1952
og hafa eignazt tvö börn.
Framhahl á bls. i\.
8
VIKAiV
VTKAN
9