Vikan - 04.09.1958, Qupperneq 14
leikari verður að liði
Framhald af bls. 10.
og ræskti sig eins og honum lægi
eitthvað þungt á hjarta.
En áður en hann kom orðum að
því sem hann ætlaði að segja, kom
til þeira gömul kona og tók undir
höndina á Bill.
„Komdu þessa leið,“ sagði hún
ákveðin í bragði en augnaráðið var
þó á flökti. „Hún bíður eftir yður.
En þér verðið að fara mjög hljóð-
lega."
Bill reyndi að hreyfa mótmælum
en konan hleppti ekki takinu. Hún
dró hann niður stiga og hann drösl-
aði William S. með sér. Þeir tóku
nú eftir því að fólkið horfði ekki
lengur óþægilega á þá eins og ein-
hverja furðufugla, heldur urðu þeir
varir við samúðarglampa í augum
margra.
Hávaxinn maður kom nú aðvífandi
og ávarpaði þá félaga.
„Það var krakkakjáni — óviti —
gerðist í gærkvöldi — var að leika sér
að eldspýtum í káetunni — hún var
fyrst allra á vettvang ■— þreif krakk-
ann og slökkti eldinn. — En . .
Konan opnaði dyrnar. Þar lá
Shiela.
„Tim," kallaði hún þegar dyrnar
opnuðust, „elsku Tim.“
Bill staðnæmdist á þröskuldinum
og stóð þar sem steinrunninn. Stúlk-
an lá í hvílunni með marga kodda
undir herðunum. Hendur hennar og
höfuð voru vafin margföldum um-
búðum, augun einnig. Það Jeyndi sér
ekki hvernig eldurinn hafði leikið
hana.
Hún fálmaði til þeirra með hend-
inni og kallaði til þeirra aftur —
það var lítið annað eftir af röddinni
en daufur ómur.
„Tim,“ hvíslaði hún ástarþrung-
inni röddu.
918. KROSSGÁTA VIKUNNAR.
Bill gat ekki hreyft sig úr spor-
um, hann starði á hina deyjandi
konu og það var kökkur I hálsinum
sem varnaði honum máis. En Wil-
liam S. tók til sinna ráða.
Hann gekk föstum ákveðnum
skrefum að rekkjunni, þessi einskis
nýti ræfill og úrhrak í óhreinum
hitabeltisbúningi. Hann kraup við
hlið hinnar deyjandi konu, og tók
í hönd hennar sem öll var vafin sára-
bindum.
Bill lokaði augunum og þá heyrði
hann um leið rödd Tims Marrs hljóma
um klefann, rödd æskumanns í fullu
fjöri. Hann sagði unnustu sinni að
óttast ekkert . . . þetta væri ekki
endir ástarinnar; þetta væri aðeins
upphafið . . . að hún væri á leiðinni
þangað sem hún mundi hitta hann.
Bryndís Schram
Framhald af bls. 7.
úti á landinu. Mig langar til að
kunna frönsku vel og svo að
ferðast. Helzt vildi ég fara um
allan heiminn.
En ballettinn?
Ég geri ráð fyrir að verða
líka í balletskóla. Það er mikið
atriði að halda sér við, annars
stirðnar maður.
Nú má ekki tefja Bryndísi
lengur frá laxveiðunum og við
kveðjum en spurjum að lokum
í sambandi við ballettinn;
Mundir þú vilja dansa fyrir
síldarfólkið á Raufarhöfn?
Nei, það mundi bara flauta,
segir Bryndís og brosir.
Lárétt skýring:
1 Ólga — 3 sorg — 7 eigna — 12 efnamaður — 15 munk — 17 afhýði
— 18 Borg í Frakklandi — 20 gróðalöngunar — 22 gróður — 24 fatnað
— 25 hvíld — 26 otaði — 28 á skipi — 31 hvílt — 32 hundsnafn þf. —
33 brúkandi — 34 forsetn. — 35 ílát -— 37 Tímalengd — 39 fara —- 40
siðavanda — 42 óhreinindi -— 43 kirkjusiður — 45 gauf — 46 sterk —
49 stafirnir — 50 hljóð — 51 mæða — 52 dund — 54 komast — 56 uppá
hjálpsemi — 58 gælun. þf. — 59 ekki öll — 60 verkfæri — 61 hraða —
63 áhaldið — 65 vaða — 67 ending — 69 drasl — 70 óveður — 73 mænir
— 74 gera við -— 75 Iláta.
Lóðrétt skýring:
1 á litinn — 2 öldur — 3 versnar — 4 samtenging — 5 dýr — 6 inn-
ýfli — 7 forföður — 8 3 eins — 9 frægur maður — 10 sjáfardýrs — 11
mannsn. — 13 óláta — 14 liðið — 16 hófinu — 19 úr matarstellinu — 21
gras — 23 neyttu — 27 íþróttamaður — 29 réttur — 30 hryggir — 32
merki -— 33 kynillur — 36 ágóða — 38 hljóðstafir — 39 ættingi — 40
á farartæki — 41 saurgar — 44 verkfæri — 47 úrgangur — 48 ná í —
51 sléttir — 53 óháðra —- 55 ílátanna — 57 hátíð ■— 58 storðar — 59
blökkumanns — 62 herbergi — 64 vilja til — 65 í fjósi — 66 ættingi
— 68 ílát — 71 ryk — 72 upphrópun.
Lausn á krossgátu nr. 917.
LÁRÉTT: 1 gafl — 4 sárna — 8 skel ■— 11 lögur -—
12 auður — 13 glas ■— 15 magur — 17 kófi — 19 nesta
— 21 Róm — 22 okkar — 23 lak — 24 lá — 26 ós —
27 ull — 28 allra — 31 aftar ■—• 33 gá —- 35 dulu — 36
grun — 37 mó ■— 38 trú — 40 rak — 41 nár — 42 fas
— 43 tif — 44 vök — 45 far — 46 fór — 49 dós — 52
lag^— 54 ál — 55 orki — 56 orka — 58 rá — 59 skaut
— 60 kærur — 62 ætt — 64 um — 66 ku — 67 ata —
69 Lárus — 71 töf — 73 mokað — 75 trog — 76 Bolla
— 78 kali — 79 fleyg — 80 öldur — 81 rifa — 82 latti
— 83 Rist.
LÓÐRÉTT: lgagnlegt — 2 flaska — 3 löst — 4 sum
— 5 árar — 6 naum — 7 aur — 8 sukk — 9 krókur —
10 leirljós — 14 Lea — 16 góð — 18 Fal — 20 allur —
22 ostur — 25 árla — 26 ófrá — 29 ld — 30 auk — 31
agn — 32 an — 34 ártal — 37 makar — 39 úir — 42 föl
— 45 fámæltur — 46 fraus — 47 ókum — 48 rit — 49
dok — 50 óræk — 51 skrum — 53 gáraðist —■ 55 Ok —
57 au — 59 stroff — 61 rakari — 63 tár — 65 möl — 68
tal — 70 ugla — 71 toga — 72 flöt — 74 okur — 76 byl
— 77 ali.
LEIKARASPJALL
Heitasta ósk JOANNE
WOODWARD er sú, að
maður hennar Paul New-
mann hijóta Oscarverðlaun
fyrir myndina „Köttur á
heitu tinþaki," þegar þeim
verður úthlutað fyrir árið
1958. Þau hjón Joanne og
Pául eiga von á fyrsta
barni sínu ef tir nokkra
mánuði.
-1 næstu mynd sinni leik-
ur LANA TURNER morð-
ingja. Myndin heitir „Up at
The Villa" og ku vera
ir.ikil hryllingsmynd.
Fyrir nokkru var minnzt
á erfiðleika í hjónabandi
PIER ANGELI og VIC
DAMONE. Álitið var, að
allt hefði fallið í ljúfa löð,
þegar tengdamamma Vics
fékkst til að flytja burtu.
Svo virðist þó ekki vera.
Vic er til dæmis að verða
forfallinn fjárættuspilari
og auk þess er hann sagður
sjúklega (afbrýðissamur út
í allt, og alla, sem koma ná-
lægt Pier..
PAULETTE GODDARD
giftist fyrir nokkru ERICH
14
Framh. af bls. 9
M. REMARQUE. Hann er
59 ára að aldri og hefur
eitt hjónaband að baki sér.
Paulette hefur hinsvegar
verið gift þrisvar sinnum
áður. Fyrsti maður hennar
var leikarinn heimsfrægi
CHARLIE CHAPLIN.
Paulette er nú 42 ára.
BARRY SULLIVAN ætl-
ar að ganga að eiga GITU
HALL, þegar hann hefur
fengið skilnað frá fyrver-
andi konu sinni.
JULIE og HARRY
BELAFONTE eiga von á
erfingja. Það verður fyrsta
barn þeirra hjóna, en með
eiginkonu númer 2 átti
Harry tvær dætur og einn
son.
DIANE VARSI og
JAMES DICKSON eru skil-
in. Þau hafa verið gift í
nokkur ár og varla gengið
á öðru en rifrildi. Nokkrum
sinnum áður hafa þau
skilið að borði og sæng, en
í þetta skiptið segist Diane
vilja skilja við James fyrir
fullt og allt.
BETTY HUTTON Og
ALAN LIVINGSTONE eru
tekin saman aftur. Þau
skildu fyrir nokkrum mán-
uðum, en nú hefur vinum
beggja tekizt að sætta þau.
GISELE MACKENZIE
giftist ROBERT SCHUTT-
ELWORTH fyrir stuttu.
Þetta er fyrsta hjónaband
hennar, en Robert hefur
einu sinni verið kvæntur
áður.
Eins og kunnugt er skildi
Rock Hudson við Phyllis
konu sína fyrir nokkru. Um
daginn komst orðrómur á
kreik um að þau hefðu tek-
ið saman aftur, því að
Phyllis kom inn í bifreiða-
verzlun, valdi sér glæsileg-
ustu bifreiðina og bað um,
að hún yrði skrifuð hjá
Rock. Þegar leikarinn frétti
þetta varð hann óður af
reiði og fór í mál við konu
sína. Hún var hins vegar
hin rólegasta, sagði að Rock
hefði lofað að gefa sér bíl
og síðan gleymt að efna
það, svo að hún hefði sjálf
tekið sig til og keypt einn
á hans reikning.
Kvikmyndaframleiðandinn
og sjórnandinn Darryl Zan-
uck dvelst í Afríku um
þessar mundir við að taka
myndina „Roots of Heaven".
Aðalhlutverkið leikur Errol
Flynn. Fyrir skömmu sendi
Darryl skeyti til Hollywood
og sagði frá því að afrík-
anskut' negrahöfðingi hefði
orðið svo hrifinn af Errol
að hann vildi óður og upp-
vægur gefa honum eina af
dætrum sínum. Errol af-
þakkaði þó þetta góða boð,
en höfðinginn lét sig þá
ekki muna um að koma
með dótturina til hans og
skipaði honum að taka sér
fyrir konu. Ekki fylgdi
sögunni, hvernig þetta fór,
en Errol mun ekki hafa ver-
ið ýkja hrifinn af höfð-
ingjadótturinni. Rætt er um
skilnað Jennifer Jones og
David O. Selznick. Aðspurð
neituðu bæði, að nokkuð
væri hæft í þeim fréttum.
VTKAN