Vikan - 11.09.1958, Síða 3
verður þeim
Hér sést eitt af hinum fáu varðskipum Islendinga, varðbáturinn Albert,
sem ásamt öðrnm varðskipum okkar hefur unnið ötullega að því að hefta
framgang- breskra ræningja. (Ljósm. Sn. Sn.).
3
að fjörlesti.“
Orðskv., 1. kafli 17-19.
Gísli Ólafsson loftskeytamaður.
MYNDIR þær sem hér birtast úr
gæzluflugi Landhedgisgæzl-
unnar tók Snorri Snorrason flug-
stjóri, en hann stýrði Douglas-vél er
Landhelgisgæzlan tók á leigu í til-
efni af útvíkkun fiskveiðitakmark-
anna.
Sunnudagskvöldið 31. ágúst hóf
vélin sig til flugs frá Reykjavíkur-
flugvelli og stefndi austur með
ströndinni. Þröstur Sigtryggsson
skipstjóri, var foringi leiðangursins
en aðrir starfsmenn Landhelgisgæzl-
unnar voru þeir Sveinbjörn Finnsson,
siglingafræðingur og Gisli Ólafsson,
loftskeytamaður.
Undan suðurströndinni urðu þeir
varir við 4 brezka togara og nokkra
belgíska sem allir toguðu utan 4ra
milna línunnar sem þá var í gildi.
Utaf Austfjörðum sáu þeir 2 brezk
herskip og eitt olíuskip. Síðan var
flogið inn Héraðsflóa og lent á Egils-
stöðum en þar gisti áhöfnin nóttina
sem hin nýja 12 milna landhelgislína
Islendinga gekk í gildi.
Kl. 7 næsta morgun lagði flugvélin
af stað frá Egilsstöðum á ný og flaug
Sveinbjörn Finnsson, siglingafræð-
ingur vinnur að staðarákvörðun.
FORSÍÐUMYNDIN
Á forsíðumyndinni sést
brezka herskipið „HMS
Hound“ búa sig undir
að taka olíu frá brezka
birgðaskipinu „Black
Ranger“ á hafi út frá
Austfjörðum. Bretar
höfðu mikinn viðbúnað
til þess að vernda veiði-
þjófa sína og landhelgis-
brjóta. Myndina tók
Snorri Snorrason, flug-
stjóri.
Þröstur Sigtryggsson, skipstjóri, í
stjórnklefa gæzluflugvélarinnar.
suður með strönd Austfjarða. Þá var
svartaþoka yfir miðunum og óger-
legt að komast niður úr henni.
Snorri Snorrason gerði hverja til-
raunina á fætur annarri og munaði
minnstu að vængbroddarnir snertu
hafflötinn, en þokan grúfði sig alveg
r.iður að sjónum svo ekki var viðlit
að komast undir. Þokubakkinn náði
alla leið suður undir Djúpavog.
Austan Hornaf jarðar voru 2 brezk-
ir togarar á siglingu með óbúlkuð
veiðarfæri og voru 2 menn við að-
gerð. Áfram var flogið vestur með
landi og voru þá mældir út 4—5
belgískir togarar og 2 þýzkir sem
allir voru að veiðum utan hinnar
nýju 12 mílna linu, vestan við Ing-
ólfshöfða. Við Vestmannaeyjar voru
2 togarar á siglingu. Þá var flogið
að Eldey og þaðan allt vestur að
Geirfuglaskeri. Þar voru 4 þýzkir
togarar að veiðum, allir fyrir utan
línu. Síðan var flogið heim til
Reykjavíkur.
Strax eftir þennan fyrsta dag kom
það í ljós að allar þjóðir höfðu virt
hina nýju landhelgislínu nema banda-
lagsþjóð vor, Bretar.
A þessari mynd má greinilega sjá liðsmun Islendinga og Breta, smá-
þjóðarinnar og heimsveldisins sem nú eiga í erjum. Varðbáturinn Óðinn
sést liér í námunda við lierskipið Russel, sem sent var á Islandsmið i
því skyni að vernda brezka veiðiþjófa og sjóræningja en sýna íslenzkimi
löggæzlumönnum yfirgang og ofbeldi. (Ljósrn. Oddur Ólafsson).
Brezkur togari frá Grimsby að veiðum í íslenzkri landheigi. (Ljósm. Sn.Sn.).
VIKAN