Vikan - 18.09.1958, Page 2
Kœra VIKA,
Getur þú gefiö mér upplýsingar um, hvernig hœgt
er að verða blaöamaður, hvernig launin eru og hvort
hörgull cr á blaöamönnum eöa ekkif
Ég hcf heyrt að í Bandarikjunum séu haldin nokk-
urra mánaða námskeið, fyrir þá sem œtla að leggja
stund á blaðamennsku. Hvar er hœgt að fá ítarlegar
upplýsingar um þettaf
Mcð fyrirfram þökk fyrir svarið.
XG
SVAR: Það væri reynandi að hafa tal af ritstjóra
einhvers blaðs. Yfirleitt mun ekki farið fram á sér-
menntun til starfsins, en sumum þykir æskilegt að
blaðamaður hafi sæmilega almenna menntun. Byrj-
unarlaun eru 4.200 krónur á mánuði.
Sjálfsagt eru haldin námskeið fyrir blaðamenn í
Bandaríkjunum og víða annars staðar. Blaðamennska
er líka námsgrein við marga háskóla (þó ekki Háskóla
Islands). Erlend sendiráð gefa oft upplýsingar um
skóla í viðkomandi landi.
Kæra Vika!
Við erum tveir Islendingar staddir í Ríó, á norsku
skipi, og langar okkui' að komast í bréfasambönd
við stráka eða stúlkur, á aldrinum 17—19 ára.
Adressan er: Ragnar Halldórsson og Jóhann Ingi
Einarsson.
M/T VINGA,
A/S J. Luwig Mowinckels Rederi,
Begen,
NORGE.
Benzíntíkin
Reykjavíkurdrengur var sendur í sveit.
Svo hagar til um hundahald á bænum þar
sem hann er, að tík er þar ein hunda og var
sú jafnframt eina tíkin á stóru svæði og því
afarvinsæl af hundum sveitarinnar. Það var
því til bragðs tekið að bera benzín í tíkina.
Við það batnaði hundamórall í sveitinni að
mun. Gekk svo af sumarið að jafnan var hellt
benzíni á tíkina.
Undir haustið einn dag kemur Reykjavíkur-
drengurinn í óðagoti og blaðskellandi inn í bæ-
inn og tilkynnir:
Tíkin er orðin benzínlaus fyrir utan tún-
garð og það er hundur að reyna að ýta henni
í gang.
Roberto og Anna skríða saman á ný
PAUL NEWMAN er að
verða einn vinsælasti leik-
ari í Bandaríkjunum. Til
skamms tima hefur ROCK
HUDSON skipað efsta sæt-
ið, en nú virðist Paul ætla
að kveða hann í kútinn.
Þótt Paul sé ekki eins
myndarlegur og Rock er
hann betri leikari og sagður
einstaklega viðfelldinn.
JACK WEBB og JACKIE
LOUGHERY eru gift. Kom
þetta mörgum á óvart, þar
sem álitið var að þau hefðu
bæði fengið nóg af hjóna-
böndum. Hann hefur verið
tvisvar giftur áður og á
tvær dætur með konu núm-
er tvö. Jackie var gift
söngvaranum GUY MIT-
CHELL en hjónaband þeirra
var misheppnað frá byrjun
og entist aðeins örfáa mán-
uði.
Leikarinn ROBERT DO-
NAT er nýlega látinn. Hann
hafði átt við erfið veikindi
að striða um langt skeið. I
síðustu mynd sinni lék hann
á móti INGRID BERGMAN
Robert sagði við blaðamenn
skömmu eftir að mynda-
takan hófst: Ingrid Berg-
man er stórkostleg leikkoma
og gáfaðasta kona, sem ég
hef kynnzt. Það er hrein-
asta unun að leika á móti
henni. Ég get ómögulega
farið að deyja fyrr en ég
ei búinn með þessa mynd,
fyrst ég var svo gæfusam-
ur að fá tækifæri til að leika
móti Ingrid!“ Hann stóð
við orð sín og lauk mynd-
inni. Skömmu síðar andað-
ist hann.
ROBERTO ROSSELINI
og ANNA MAGNINI hafa
sést allmikið saman að und-
anförnu. Anna var ástkona
Robertos i fjölda mörg ár,
alveg þar til Ingrid Berg-
man kom til sögunnar. Síð-
an hefur verið kalt á milli
hjúanna, en nú virðast þau
sem sagt sátt aftur.
Eins og skýrt hefur verið
frá ætlar DEBORAH KERR
að skilja við eiginmann sinn
Tony Bartley. Nú hefur
Tony tilkynnt, að honum
komi ekki til hugar að láta
Deborah fá börnin. Það er
annars haft fyrir satt að
síðustu árin hafi hún aðeins
þraukað i hjónabandinu
vegna barnanna. Deborah
vill ekki una við þetta og
hefur kvatt lögfræðing sinn
— og sá ku vera nokkuð
fær — sér til aðstoðar.
Ekki er enn vitað, hvernig
málinu lyktar.
BING GROSBY og KAT-
HRYN GRANT, kona hans,
hafa nýlega eignast son.
Þau giftust fyrir ári og
höfðu vonast til að barnið
yrði dóttir. Mun Bing vera
búin að fá nóg af öllu ves-
eninu í hinum sonum sín-
um, sem eru fjórir að tölu.
Þá átti Bing með fyrri konu
sinni.
Ennfremur eignuðust
KIRK og ANNA DOUGLAS
son fyrir skemmstu. Það er
annað barn þeirra og höfðu
þau sömuleiðis vonast eft-
ir stúiku. Þau áttu einn
dreng fyrir og með fyrri
konu sinni átti Kirk einnig
tvo syni. Nú þegar barnið
er komið segjast hjónin
vitanlega ekki vilja skipta
á honum og tiu stúlkubörn-
um.
KIM NOVAK hefui’ lýst
því yfir að hún ætli aldrei
að giftast TRUJILLO. Hún
heldur samt enn áfram að
fara út með honum.
TYRONE POWER og
nýja konan hans DEBBIE
MINDAROS eiga von á
erfingja í febrúar. Tyrone
rauk upp til handa og fóta,
þegar frúin sagði honum
þessar gleðifréttir. Hann
hringdi þegar í Louella Pai'-
sons, sem er einn annálað-
asta kjaftakerling í Holly-
wood og sagði henni frá
þessu. Hún var vitanlega
ekki tengi að koma frétt-
inni á framfæri.
PETER BROWN og DI-
ANE JERGENS hafa opin-
berað trúlofun sína.
Judith Lewis, dóttir leik-
konnnnar LORETTU
YOUNG gifti sig fyrir
nokkru. Maðurinn hennar
heitir Joseph Tinney.
Fósturdóttir ALANS
LADD, Carol Lee Ladd gifti
sig fyrir nokkru og á von
á fyrsta barni sínu. Hún
var gift áður, en hjóna-
bandið entist aðeins örfáa
mánuði. Kona Alans átti
Carol þessa með fyrri manni
sínum. Sagt er að Sue og
Alan bíði mjög óþreyjufull
eftir fyrsta barnabarninu.
RICKY NELSON er einn
yngsti rokksöngvarinn.
Hann þykir minna nokkuð
á hinn fræga ELVIS PRES-
LEY og er sagður skemmti-
legri söngvari.
ROBERT STACK og kona
hans hafa nýlega eignazt
son. Þau áttu 18 mánaða
gamla dóttur fyrir.
DAVID NIVEN og
HJÖRDIS kona hans lögðu
fyrir skömmu af stað upp
í ferðalag • um Evrópu.
Lengst munú þau dveljast
í Sviss.
TOMMY SANDS hefur
upp á síðkastið verið mikið
með PAT MITCHELL. Þeim
var ásamt fleira fólki boðið
i partí til fyrrverandi kær-
Mstu Tbmmys, MOLLY
BEE. Þau Tommy og Molly
íæddust lítið við um kvöld-
ið og vék hann ekki frá Pat
og vildi helzt ekki leyfa
neinum öðrum karlmönnum
að yrða á hana.
JEFF RICHARDS og frú
hans hafa hætt við að
skilja. Þykja það mikil
gleðitíðindi.
SANDRA DEE leikur
dóttur LÖNU TURNER í
næstu mynd. Sandra er sögð
mjög efnileg leikkona. Hún
er aðeins nýiega sextán
ára.
Kynningar- og vináttumánuður IVIÍR
15. sept. til 15. okt. 1958.
Maríne Jashvíli
Nú um miðjan mánuðinn er vænt-
anleg hingað listamannanefnd frá
Sovéti'íkjunum, á vegum MlR. Lista-
mennirnir munu dveljast hér um
mánaðar skeið, og halda hljómleika í
Reykjavík og víðar um land á vegum
MlR-deildanna.
Þessir listamenn eru:
Grígoríj Nesterov, bariton.
Veróníka Pílane, flúrsópran.
Maríne Jashvílí, fiðluleikari.
Aiexander Igkarev, pianóleikari.
Míkhaíl Bank, undirleikari.
Júríj Bazakov, harmoníkuleikari.
Evganíj Blínov, balalaikuleikari.
Nína Pavlenkó, Tamara Pólístsúk,
og Valentína Trétjakova, bandúru-
tríó. Auk þess zimbalólejkai'i.
MlR er upphaflega stofnað til að
koma á nánari menningartengslum
milli Islanls og Sovétríkjanna. Und-
anfarin ár hafa komið hingað lista-
mannanefndir frá Sovétríkjunum á
vegum MlR.
Að þessu sinni megináherzla lögð
á að kynna alþýðutónlist.
Væntanlega veða tvennir hljóm-
leikar í Reykjavík. Auk þess mun
listafólkið fara út á land og halda
þar hljómleika. Einnig hefur komið
til tals að píanistinn léki með syn-
fóníuhljómsveitinni.
Júrij Bazakov
Utgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaóur: Jökull Jakobsson, Tjamargötu 4, sími 15004, pósthólf 149.