Vikan - 25.09.1958, Blaðsíða 8
FAGRIR MUNIR
ÚR GULLI
OG SILFRI
Senðnm gegn póstkröfu.
Guðlaugur Magnússon
SKARTGRIPAVERZLUN
Laugavegi 22 A. — Sími 15272.
Valur- Vandar- Vöruna
SULTUR — ÁV AXT AHLAUP
MARMELAÐI — SAFTIR
MATARLITUR — SÓSULITUR
EDIKSÚRA — BORÐEDIK
TÓMATSÓSA — ÍSSÓSUR
— Sendum um allt land —
Efnagerðin Valur h.f.
Box 1318. — Sími 19795 — Reykjavík.
TRICHLORHREINSUN
(ÞURBHREINSUN)
BJ©RG
SDLVALLAGÖTU 74 • SÍMI 13237
BARMAHLÍÐ 6 SÍMI 23337
Prjónastofan Hlín h.f.
Skólavörðustíg 18. Símar 12779 og 14508.
Prjónavörur höfum við framleitt í
síðastliðin 25 ár úr íslenzku og er-
lendu gami.
Höfum ávallt á boðstólum fyrsta
flokks vinnu, og fylgjumst vel með
tízkunni.
Itendnm gegn póstkröfu um land allt.
Ég þakka þeim sem verzlað hafa í
Sölutuminum við Arnarhól ánægju-
leg kynni, og bið þá um að beina við-
skiptum sínum í
Hreyfilsbúðina.
Pétur Pétursson.
LITLA BLIKKSMIÐJAN
Nýlendugötu 21 A. Sími 16457.
Smíðar meðal annars:
Þakrennur, allar stærðir og gerðir.
Þakglugga, allar stærðir og gerðir.
Olínkassa í báta og skip.
Benzíngeyma í bíla og báta.
Loftrör, allar stærðir.
Lóðabala. Lofttúður o. fl.
I SHORnið
fT> M
Hvenær fara börn að tala?
TiB lesenda Heimilishornsins.
Drengir eru semni til en telpur.
Fátt er eins breytilegt og það hvenær börn
byrja að tala. Sum eru varla orðin eins árs, þeg-
ar þau kunna ýmis orð og setningar, en önnur
og þau eru fleiri, sem ekki bera við að tala fyrr
en tveggja ára. Margir foreldrar gera sér óþarfa
áhyggjur vegna þess, en það er staðreynd, að
þau börn, sem fara seint að tala þurfa ekki að
standa hinum að baki hvað almennan þroska
snertir. Börn sem snemma fara að ganga, tala
oftast seinna.
„Óskabarnið," — það er
að segja barn, sem er vel-
komið í heiminn og býr við
öryggi og reglusemi frá
fæðingu, fer fyrr að tala en
„slysabarnið" sem engum er
þægð i að fá.
Rifrildi og ósamkomulag
hefur einnig slæm áhrif á
barnið og getur það og
verið orsök þess, ef það er
seint til.
Að vísu eru til margar
undantekningar og þetta er
langt frá að vera algild
regla.
Það er athyglisvert, að
stúlkur tala yfirleitt fyrr
en drengir. Hins vegar
munu drengir vera fljótari
til að skilja það sem sagt
er við þá og finna ef
eitthvað er að á heimilinu.
Þegar barnið er fjögurra
ára er það venjulega orðið
altalandi. Það talar mikið
og líkir í öllu eftir því sem
það heyrir foreldrana og
fóstrurnar á barnaheimil-
inu segja. Oft getur verið
býsna erfitt að skilja hvað
böi'n segja, en umgangist
maður barnið að staðaldri
kemui' það fljótt.
Börn finna iðulega upp
á því að táka sérstöku ást-
fósti'i við viss orð og orða-
tiltæki sem þáð endurtekur
í sifellu. Og víst getur það
verið hálfþreytandi fyrir
foreldra að heyra alltaf
sömu orðin. En aldi'ei skyldi
þaggað ofan í barninu.
Foreldrar ættu að gæta
sín og láta barnið aldrei
hlusta á rifrildi milli þeirra.
Það getur orðið til mikils
tjóns. Setjum nú svo að
mamman hafi í augnabliks
reiði kailað tengdamóður
sína eigingjarna norn. Næst
þegai' barnið sér ömmuna
má telja næstum öruggt
mál, að það segir henni frá
KÖTUKAKA
Uppskriftin, sem hér fer
á eftir hefur hlotið verðlaun
í Bandaríkjunum og er
„þjóðarréttur" í mörgum
fylkjum þar. Fyrir nokkrum
árum fékk dönsk kona upp-
skriftina senda frá vinkonu
sinni i U.S.A. Hún reyndi
kökuna og setti því næst
i öll helztu kvennablöð á
Norðurlöndum. Og nú loks-
ins er hún komin til Islands
og verður fróðlegt að vita,
hvort hún nær sömu vin-
sældum hér og í Bandaríkj-
unum og á hinum Norður-
löndunum.
Einn galli ei' þó á þessu.
Það verður eiginlega að
nota appelsínur og þær hafa
ekki fengizt hér lengi. Þó
má nota appelsínusafa úr
dós (verður að vera sætur)
og eina sítrónu, sem safinn
hefur veiið vandlega kreist-
ur úr. Kakan verður sjálf-
sagt ekki alveg eins ljúf-
feng, en það sakar ekkert
að reyna.
% kíló hveiti, 2 bollar
sykur, 1 bolli palmin
(jurtafeiti), 4 egg, 2 appel-
sínur, 2 bollar rúsínur, 2
bollar mjólk, 2 tesk. natron,
2 tesk. salt. 1 bolii = 1 dl.
Jurtafeitin er brædd og
hrærð með sykrinum. Egg-
in sett í, eitt í einu. Natroni
og salti biandað saman við
hveitið og það síðan hrært
út í deigið smátt og smátt.
Safinn pressaður úr appel-
sinunum og hann kældui'
vel. Appelsínurnai' síðan
hakkaðar og hrærðar út í
deigið ásamt rúsínunum.
Kakan bökuð í stórum
hringofni eða á pönnu.
Bökuð í 30—35 minútur.
Tekin út úr ofninum, en
látin vera í forminu. Safan-
urn hellt yfir ásamt hálfum
bolla af sykri, 2 tesk. kanel
og dálitiu af hökkuðum
möndlum.
Sett i ofninn aftur og
bökuð i um það bil fimm
mínútui'.
Okkur berast nú nær daglega uppskriftir fra
húsmæðrum. Við þökkum kærlega fyrir þapn á-
huga, sem þær sýna horninu með þessu. Við
þökkum einnig lofsamlega ummæli í garð þátt-
arins og er það okkur hvatning til að reyna að
gera Heimilishornið alltaf sem bezt úr garði.
Ennfremur væri það ánægjulegt, ef konur vildu
í bréfum sínum, benda á það sem betur má fara.
Að vísu er aldrei unnt að gera öllum til hæfis,
en við viljum reyna að uppfylla sem flestar ósk-
ir lesenda okkar.
RLSKIIMIMSVESTI
oiðum mömmu. Þegai'
amma er farin er barnið svo
hundskammað fyrir það sem
það sagði. Það er oftast að-
eins til ills. Barnið æsist
upp og endurtekur orðin
oftar en það hefði gert, ef
ekki hefði verið minnzt
frekar á þetta.
Framh. á bls. 14.
Rúskinsjakkar eru mjög
í tizku um þessar mundir.
Hér birtist mynd og snið
af rúskinsvesti, þ. e. á. s. úr
rúskinni að framan en bak-
stykkið er prjónað.
Skemmtilegur búningur á
ungar stúlkur einkum við
köflóttar siðbuxur.
Myndin af sniðinu er að
mestu auðskilin. Því skul-
um við snúa okkur fyrst
að prjónaða stykkinu.
Nota skal 200 g fjói'þætt
garn.
Stroffið er pi'jónað á pr.
r.úmer 2, en hitt á númer 3.
Fitjið upp 100 lykkjur og
prjónið 15 sentimetra (ein
slétt, ein brugðin). Aukið
þá út um 10 lykkjur og
prjónið slétt. 1 byrjun og
endi hvers prjóns er síðan
aukin við ein lykkja. Þegar
stykkið er orðið 35 senti-
metrar eiga að vera 130
lykkjur á prjóninum,
Þá er farið að hugsa fyr-
ir handveginum.
Takið tvær samay hvoru
megin, aðra hverja umferð,
alls tiu sinnum. Haldið þá
áfram með slétt prjón þar til
stykkið er 52 sentimetrar.
Næst er að athuga axl-
irnar.
Felldar af 7 lykkjur hvoru
megin í fimm umferðum,
samtals 35 lykkjur. Síðan
eru þær lykkjur sem eftir
er ufelldar af i einni um-
ferð.
Framstykkið.
Athugið: Reiknið með 3
sentimetrum í sauma, nema
að neðan, þar ætti að
nægja að hafa tvo.
Og að reitirnir verða að
vera nákvæmlega mældir
10x10 sentimetrar.
GÓÐ RÁÐ
Fáein saltkorn í kaffi-
pokann, þegar hellt er á,
gefur kaffinu betra bragð.
Nylonsokkar, sem ekki
hafa verið notaðir lengi,
verður að þvo, áður en
farið er aftur í þá.
Margir þola illa máln-
ingarlykt. Til að losna við
hana ættuð þér að setja
nokkur einiber í skál og
kveikja í þeim. Við það á
lyktin að hverfa.
J. K.
Verður ELVIS PRESLEY kveöinn í kútinn
Ricky Nelson nappaði stúlkunni hans —
nappar hann einnig frægð hans?
Rokksöngvarinn Rirky Nelson, sem áður hefur
verið minnzt á hér í dálkunum á sívaxandi vin-
sældum að fagna meðal bandarísks æskufólks.
Hann líkir mjög eftir Elvis Presley, klæðist eins og
hann, leikur á gítar og beygir sig og sveigir, eins
og Presley. Er það haft fyrir satt, að Elvis eigi
á hættu að missa aðdáendur sína til Rickys.
Þessa stundina eru er-
lendar leikkonur mikið í
tízku í Hollywood. Má
nefna May Britt frá Sví-
þjóð, Kay Kendall, ensk,
Erlendar Eeikkonur í
Maria Schell frá Austurríki,
Brigitte Bardot og Sophiu
Loren. Hafa þessar allar
fengið hvert lilutverkið á
fætur öðru og jafnan fengið
fHoc/i
neitar aS horga.
Þegar Rock Hudson
skildi við Phyllis konu
sina, var honum vita-
skuld gert að greiða
henni vissa peningaupp-
hæð mánaðarlega. En
hann virðist ekki aldeil-
is á því og hefur ekki
borgað grænan eyri. Á-
standið er nú orðið svo
slæmt hjá Phyllis, að
hún verður að ganga
milli vina sinna og fá
lánaða peninga hjá þeim.
Meðal þeirra, sem greið-
viknastir hafa verið við
fyrverandi frú Hudson,
er Marlon Brando. Anna
Kasfi og Phyllis hafa
lengi verið miklar vin-
konur og heimtaði Anna,
að Marlon hjálpaði vin-
stúlku sinni.
Harry James
nýtur enn mikilla vinsælda.
Ricky þessi er annars
mesti sómapiltur. Honum
þykir afarvænt um foreldra
sína og fer stundum með
móður sinni i bíó, til að
sýna aðdáendum sínum,
hvað hann sé góður strák-
ur.
Tældi vinstúlkuna.
Ricky þykir heldur reik-
ull í ástamálum og hefur á
stuttum tíma verið orðaður
við fjölmargar stúlkur.
Meðal þeirra var fegurðar-
drottning Illinoisríkis, Mari-
enna Gab, Síðan var það
söngkonan Lorrie Collings.
Var jafnvel farið að gizka
á, að þau ætluðu að giftast,
þegar hann sagði henni upp
og fékk sér nýja, sem hann
er ennþá með. Hún heitir
Yvonne Lime. Var hún lengi
mikil vinstúlka Presleys og
gekk það svo langt að hann
fór með hana heim og
kynnti hana fyrir foreldrum
sínum.
Ricky leikur um þessar
mundir í fyrstu kvikmynd
sinni. Sú nefnist Rio Bravo.
Aðalhlutverkið er leikið af
John Wayne.
Vinsælustu lög Nelsons
hingað til eru I’m walking
og Teenager Romance.
1 myndinni That is rnusic
kemur fram fjöldinn allur
af frægum djasssöngvurum
og hljómlistarmönnum.
Meðal þeirra eru Harry
James og hljómsveit hans,
The Mills Brothers, Jeri
Southern, The Diamonds,
The four Aces og Fats
Domino. Harry James er
kominn nokkuð á sextugs-
aldur og hefur verið einn
af fremstu og vinsælustu
djasshljómlistarmönnum í
Ameríku i áratugi.
Kona hans er leikkonan
Betty Grable. Hún mun þó
að mestu hætt kvikmynda-
leik segist vera orðin of
gömul. Fyrir nokkru hitti
blaðamaður einn, Betty að
máli og spurði hana hvort
hún væri hætt kvikmynda-
leik fyrir fullt og allt. Hún
játti því, en kvaðst sjá um
sjónvarpsþátt einu sinni í
viku. Og Betty Grable bætti
við: Leikkonur ættu yfir-
leitt að hætta áður en þær
verða fertugar, ég segi yfir-
leitt. Auðvitað eru margar,
sem geta haldið miklu leng-
ur áfram. Ég á einkum við
stjörnur, sem hafa aðallega
leikið, dansað og sungið.
Ég hef aldrei verið leik-
kona. Ég hef bara fallegar
fætur og hér á yngri árum
hef ég kannski verið lag-
leg. En nú, nú er ég orðin
of gömul.“
Baby Doll
i nýrri mynd.
Caroll Baker, sem
mesta frægð hlaut fyrir
leik sinn í myndinni
Baby Doll, hefur lítið
leikið uppá síðkastið.
Hún hefur eingöngu
helgað sig manni sínum,
sem er Jack Garfein og
börnum þeirra tveim.
Hið yngra fæddist í
byrjun þessa árs. Nú
hefur Caroll látið til-
leiðast að taka við að-
alhlutverki í mynd, sem
heitir The Miracle.
lofsamlega dóma. Er ekltí
laust við, að gamlar Holly-
wood leikkonur lfti „inn-
rásarlierinn“ illu auga, Sem
dæmi upp á það, hve evr-
ópskum stjömum gengor
vel að fá hiutverk í Banda<-
ríkjumun, má nefna að þeg-
ar Marylyn Monroe sncri
tízku í Hollywooi
aftur heim til að taka við
hlutverki í Some Like It
Hot, var henni tekið mcff
lítilli hrifningu. Lcikstjór-
inn lét hafa það eftir sér, aff
liann hefðl miklu fremnr
kosið að Birgitte Bardof
fengi hlutverkið, eh hann
liynni ekki við að rifta
samningum við Maryiyn.
Hún væri vís til að fam I
mál við félagið og myndi
sjálfsagt vinna það og
krefjast offjár í skaðabæt-
ur.
Audie Murphy
loksins
kominn aftur.
Aðdáendmn sínum til
sárrar hryggðar fann Audio
Murphy allt í einu upp á
því að hv’erfa burt frá
Holij’vvood fj'rir svo sem
tveim árum. Hefur siðan
lítið sem eiikert frétzt al
honum, fyrr en nú fyrir
skömmu, að liann skaut upp
kollinum í kvikmyndaborg-
inni á ný og lieimtaði hlut-
verk, hvað liann fékk sam-
stundis. Mótleikarar hans
em Georgia Moll og Mieh-
ael Redgrave.
Leikaramir vinsælu,
Kirk Douglas og Burt
Lancaster leika aðal-
hlutverkin í nýrri mynd,
sem verið er að taka í
London þessa daga.
Hvorugur mun hafa
leikið svipuð hlutverk
áður, þvi að þeir koma
meðal annars fram í
myndinni sem dansar-
ar og söngvarar.
8
VIKAN
VIKAN
9