Vikan - 02.10.1958, Page 8
Sendnm
FAGRIR MUNffi
ÚR GULLl
OG SELFRI
gegn póstkröfu.
Guðlaugur Magnússon
SKARTGRIPAVERZLUN
Laugavegl 22 A. — Sími 15272.
Valur- Vandar- Vöruna
SIJLTUR — AVAXTAHLAUF
MARMELAÐI — SAFTIR
MATARLITUR — SÓSULITUR
EDIKSVKA — BORÐEDIK
TÓMATSÓSA — ÍSSÓSUR
— Sendum um allt land —
Efnagerðin Valur h.f.
Box 1313. — Sími 19795 — Beykjavfk.
TRICHLORHREINSUN
(ÞURRHREINSUN)
BJ©RG
SDLVALLAGQTU 74 ■ SÍMI 13237
BARMAHLÍÐ G SÍMI 23337
Prjónastofan Hlín h.f.
Skólavörðustíg 18. Símar 12779 og 14508.
Prjónavörur höfum við framleitt í
síðastliðin 25 ár úr íslenzku og er-
lendu gami.
Höfum ávallt á boðstólum fyrsta
flokks vinnu, og fylgjumst vel með
tízkunni.
’Jendum gegn póstkröfu um land aUt.
Ég þakka þeim sem verzlað hafa í
Sölutuminum við Arnarhól ánægju-
leg kynni, og bið þá um að beina við-
skiptum sínum í
Hreyfilsbúðina.
Pétur Pétursson.
LITLA BLIKKSMIÐJAN
Nýlendugötu 21 A. Sími 16457.
Smíðar meðal annars:
Þakrennur, allar stærðir og gerðir.
Þakglugga, allar stærðir og gerðir.
Olíokassa í báta og skip.
Benzíngeyma í bíla og báta.
Loftrör, allar stærðir.
Lóðabala. Lofttúður o. fl.
Byrjið að safna til búsins í tíma
Spjallað við tvær ungar stúlkur með ölík viðhorf
FALLEGUSTU HATTARNIR
Nýlega fór fram í Bandaríkjunum keppni um
hvaða konur bæru fallegustu hattana. Fyrstu
verðlaun hlaut frú Elenor Searle Whitney (mynd
til vinstri) og í öðru sæti varð frú Titus Haffa
frá Chicago (mynd til hægri).
IWSTÁRLEGUR BRIJÐARKJÓLL
»
Margar stúlkur eru svo
hyggnar að byrja að safna
til búsins löngu áður en þær
hitta nokkurn, sem þær
hafa augastað á sem eig-
inmanni. Það er mjög
skynsamlegt að reyna eftir
megni að afla sér að
minnsta kosti nauðsynlegra
hluti í eldhús.
Aðrar hafa engan áhuga
á þessu. Þeim finnst ekk-
ert liggja á. Nógur sé tím-
inn. Ég þekki stúlku, sem
er trúlofuð pilti, en þau
geta ekki gifzt næstu þrjú
fjögur árin. Ég spurði hana
fyrir skömmu, hvort hún
væri samt ekki farin að
kaupa handklæði og visku-
stykki, en á því byrja flest-
ar.
Hún rak upp mikla hlát-
ursroku og sagðist halda að
það lægi ekki mikið á. Þau
myndu hvort eð er ekki gift-
ast á næstunni svo allt væri
i lagi enn.
Þessi stúlka hefur alla
tíð búið hjá foreldrum sínum
og aldrei borgað heim, þótt
hún vinni hvert sumar fyrir
góðu kaupi. Hún er í skóla
á vétrum, fær vasapeninga
hjá pabbanum, ef hún er
blonk, mamman lánar henni
fyrtr peysu eða sokkum og
mmnist sjaldan á greiðslu.
Hún sniður og saumar fyrir
hana föt og ef hún þarf að
kaupa sér kápu er aftur
farið tfl pabba. Hún hefur
aldreí lagt eyri í banka, og
hefur ekki hugmynd um að
fáein handklæði og nokkur
viskustykkí geta kostað
talsvert á þriðja hundrað
krónur.
Ég þekki aðra stúklu, sem
er til alirar hamingjú þrosk-
aðri og heilbrigðari á flest-
an hátt, þótt hún sé ná-
kvæmlega jafngömul hinni.
Sú hefur unnið úti í tvö ár.
Hún borgar húsaleigu, mat
og föt sjálf án nokkurrar
aðstoðar. Hún er utan af
landi, missti ung föður sinn,
en v'ar styrkt í skóla gegn
því hún borgaði það aftur
síðar.
Maður skyldi þvi ekki
ætla að hún ætti mikið af-
gangs af kaupinu, þegar
lagt hefur verið til hliðar
fyrir húsaleigu, mat, föt-
um, sjúkrasamlagsgjöldum
og ótal mörgu fleiru. En á
einhvern óskiljanlegan hátt
hefur henni samt tekizt að
safna allmiklu af silfur-
munum og ýmsum nytsöm-
um hlutum til heimilis.
Ég spurði stúlku þessa,
hvenær henni hefði dottið í.
hug að fara að safna til
oúsins.
— Það var þegar ég fór
að vinna úti. Meðan ég var
í skóla átti ég aldrei pening
til neins.
— Var eitthvað sérstakt
sem ýtti undir þessa söfn-
un þína?
— Tja, ég var með strák
/ K.
og hélt að við myndum
giftast. Ég var ung og sak-
laus og ofan úr sveit, skil-
urðu. Mér datt í hug að
skynsamlegt væri að öngla
einhverju saman, svo að við
þyrftum ekki að kaupa allt
á einu bretti. Nú, svo slitn-
aði upp úr þessu á sínum
tíma, en þá var ég orðin
svo spennt að safna og hélt
áfram.
— Hvað hefurðu mikið í
kaup?
— Nú hef ég um það bil
3.600, en byrjaði með 2.600.
Af þessu fara 600 í húsa-
leigu 800 til 1000 í mat,
annars reyni ég að spara
við mig í mat, borða sjald-
an úti. Ég byrjaði með að
kaupa mér hraðsuðuketil
og gat soðið í honum egg
og pylsur og hitað kaffi.
Ég held ég megi segja,
að ég borði pylsur þriðja
hvern dag. Það er ágætt.
Fyrst fannst mér þær nefni-
lega afar góðar og borðaði
kannski allt upp í 5 eða 6
stykki. Nú þykir mér gott
ef ég kem niður einni. Spara
á því!
Síðasta ár fékk ég um
sex þúsund í skatta og út--
svör, þegar skyldusparnað-
ur er meðtalinn. Ég veit
ekki, hvernig ég' á að
kljúfa það.
— Ferðu með fasta upp-
hæð i búmuni á mánuði ?
Nei, það er mjög mis-
jafnt. Ég hef líka reynt að
leggja í banka, ætlaði að
hafa það eins konar vara-
sjóð. Nú er ég búin að
skíra hann skattasjóð, því
að ég verð að taka allt út.
tfl að geta borgað skattana
og hrekkur samt ekki til.
-— Hvaða munir eru það,
sem þú hefur fengið þér til
þessa?
—- Ég hef keypt talsvert
af silfurmunum, kaupi 1—
3 stykki á mánuöi. Svo hef
ég beðið kunningja mína,
sem gefa mér jólagjafir að
gefa mér slíka muni frekar
en eitthvað annað. Ég á nú
sex teskeiðar og sex köku-
gaffla, auk þess sultuskeið,
rjómaskeið og fáeina í við-
bót. Svo á ég 10 handklæði
og 12 viskustykki. Ég hef
dundaði við að merkja þau
á kvöldin, þegar ég hef
setið hjá börnum. Nokkra
kökudiska á ég, sex mokka-
bolla, fáein betri glös og
fjöldann allan af venjuleg-
um vatnsglösum. 1 síðasta
mánuði keypti ég mér
brauðrist, hún var svo dýr
að ég gat ekki keypt neitt
annað.
— En húsgögn ?
— Ekki önnur en þau
bráðnauðsynlegustu, dívan,
skáp, lampa, lítið borð og
nokkra stóla, sem ég erfði
eftir frænku mína. Þeir eru
komnir til ára sinna og bún-
ir að lifa sitt bezta, en það
má notast við þá, þangað
til ég get fengið mér skárri.
1 vor keypti ég málverka-
eftirprentun hjá Helgafelli.
Herbergið mitt er allt ann-
að síðan, og ég vonast til
að geta keypt mér fleiri
smám saman.
— Þú getur ekkert farið
út?
— Nei, biddu fyrir þér.
Ég ætlaði kannski næsta
sumar og varasjóðurinn var
stofnaður í þeim tilgangi að
gera mér það kleift. En eins
og ég sagði er hann nú
galtómur og ekki útlit fyrir
að ég komist út í bráð.
— Eitthvað sérstakt, sem
þú vildir segja að lokum?
— Ekki nema það, að ég
myndi vilja hvetja allar
stúlkur til að byrja nógu
snemma að safna. Þegar
maður er líka einu sinni
byrjaður er svo gaman að
sjá ,,safnið“ smávaxa. Og
þótt það sé ekki mikið, sem
ég á enn sem komið er,
hefði það kostað drjúga
upphæð, hefði það verið
keypt allt i einu.
Við birtum hér mynd af
ungri brúður. Hvað hún
heitir, eða hvaðan hún er
vitum við ekki, en höfum
grun um að hún sé amerisk.
Það var þó ekki stúlkan
sjálf, sem vakti athygli
okkar, heldur brúðarkjóll-
inn hennar. Þetta ku vera
allra nýjasta tizka og tízku-
frömuðir gerðu sér glæstar
vonir um að hann slæi f
gegn. Baunin hefur þó orð-
ið önnur og er ekki vitað
til að fleiri brúðir en sú
á myndinni hafi kiæðzt
svona kjól. lslenzkar stúlk-
ur geta nú athugað, hvort
Þorskur
sfeiktur í formi
,,Roskin húsmóðir“ sendir
uppskrift af fiskrétti og
tökum við því með þökkum.
Þótt birtar hafi verið nokkr-
ar um daginn, er ekki að
efa að húsmæðrum þykir
fengur í að fá enn fleiri
til að velja um.
Þorskur, sem vegur um
það bil eitt og hálft til tvö
kíló þveginn og skafinn.
Hausinn má vera á. Settur
í smurt fat, smurður með
eggjahvítu og raspi og salti
og pipar dreift á hann.
Smjör og smjörlíkisbitar
settir á víð og dreif á fisk-
inn, síðan er hann settur í
heitan ofn.
Þegar fiskurinn er orð-
þær myndu kæra sig um að
skrúðast. slíkum húningi á
brúðkaupsdaginn.
inn ljósbrúnn, er hellt yfir
hann dálitlu af rjóma og
mjólk. Látinn steikjast í 35
mínútur. Soðið jafnað með
25 g hveiti og 25 g smjör-
líki. Sítrónusafi (fáeinir
dropar) blandað í og fisk-
urinn er tilbúinn til átu.
Tómatsósa og heitar kart-
öflur hafðar með.
Paprikastjörnur
125 g smjör, 125 g hveiti,
% dl rjómi. Smjörinu og
hveitinu blandað saman og
rjómanum bætt i. Hnoðað
vel. Flatt út (þunnt) og
skorið í stjörnur, tígla,
hjörtu o. fl. Þunnu lagi af
paprika sáldrað yfir, sett í
ofn og bakað í um það bil
sjö mínútur.
Daniel og Sylvia eignast annan son
Daniel Gelin og Sylvia
kona hans hafa nú tekið
gleði sína á ný. Eins og
skýrt hefur verið hér í dálk-
unum misstu þau einkason
sinn af slysförum fyrir
rúmu ári. Drengurinn var
aðeins 14 mánaða gamali.
nú hafa þau eignazt annan
dreng og eru vitanlega í
sjöunda himni af liamingju.
Daniel var að leika í mynd-
inni „Fylgið mér, ungi mað-
ur“, þegar hann fékk boð
um, að konunni hans hefði
verið ekið á fæðingardeild-
ina. Beið hann ekki boðanna
heldur hraðaði sér heim og
náði þangað fáeinmn mín-
útum áður__ en sonurinn
fæddist. Hjónunum hafa
borizt skeyti og gjafir
víðs vegar að úr heiminum
og litli drengurinn hefur
fengið svo mikið af fötum
og leikföngum frá aðdáend-
mn Gelins að foreldrar hans
segja að það myndi nægja
til að fylla a. m. k. þrjú eða
fjögur stór herbergi.
Bonar Colleano
ferst í bílslysi
Fyrir skömmu fórst enski
leikarinn, Bonar Colleano í
bifreiðarslysi. Hann var á
leið heim úr samkvæmi og
ók sjálfur en mun hafa ver-
in nokkuð drukkinn. Kunn-
ingi hans Michael Balfour
sem með honum var, slas-
aðist nokkuð, en ekki al-
varlega.
Bonar var kvæntur hinni
frægu leikkonu Susan
Shalw, sem er ensk. Hún
hefur lítið ieikið síðustu
þrjú árin, eða síðan dóttir
þeirra hjóna fæddist. Bonar
var kvæntur áður, en skildi
við þá konu sina 1951. Síðan
hefur hann tvisvar komið
Töffgæjar stóöu heiöursvörö
viö kirkjuna
Rokksöngvarinn
Terry Dane, sem er 22
ára gamall giftist Mari-
anna Vinciguerra, sem
er 19 ára að aldri á
dögunum. Heiðursvörð
við kirkjuna stóðu rokk-
söngvarar og töffgæar
og er brúðhjónin gengu
út úr kirkju mynduðu
þei'r göng úr tuttugu
gítörum. Áður en hjón-
in stigu inn í bifreiðina,
sem flytja skyldi þau til
veizlunnar söng Terry
nokkur rokklög með
undirleik gítarberanna.
anna.
við sögu í skilnaðarmálum,
var sagður hafa tælt frúrn-
ar frá eiginmönnununi.
Síðasta mynd Bonar
Colleano hét No Time To
Die, sem lauslega þýtt er:
Enginn tími til að deyja.
ÍJlynh ombci
giftist sálfrœJnngt
Sheree North, sem um
nokkurt skeið var nefnd
Marylyn Monroe númer
tvö, er í þann vcginn
að ganga í heilagt hjóna-
band (ef hún er þá ekki
búin að því núna). Sá
hamingjusami lieitir Ger-
hardt Sommer og er sál-
fræðingur að meimtun...
....Sheree segist alla tið
hafa haft mikinn áhuga
á sálfræði, en sá áhugi
hennar eigi ekkert. skylt
við ákvörðun þeirra að
giftast.
„Við hittumst fyrir
rúmlega hálfu ári og við
giftumst af sömu ástæðu
óg fólk almennt — af
því að við elskum hvort
annað og af því að við
höfum að flestu leyti
sömu skoðanir á mann-
lífiiiu. Ég veit að við
verðum mjög hamingju-
söm.“
Sheree hefur aldrei
slegið almennilega í
gegn. Hún segist vilja
fá hlutverk alvarlegs
eðlis, hún sé sannfærð
um að þau eigi betur við
sig en eilíf glanshlut-
verk.
Dr. Sommer er þriðji
eiginmaður Sheree.
IMatalie
mótmælir
Natalie Wood og Ro-
bert Wagner hafa harð-
lega mótmælt grein, sem
birtist um þau á dögun-
um. Átti Natalie að
hafa sagt, að þau kærðu
sig ekkert að eignast
börn þau væru leiðinleg
og að hún myndi kann-
ski ófríkka við það.
Natalie fylltist réttlátri
reiði og sagði greinina
uppspuna • frá rótum.
Þau hjónin vildu eign-
ast að minnsta kosti
þrjú ef ekki fleiri börn,
sagði leikkonan.
Christine Carere í „Einskonar bros“
Sophia Loren vildi verða falleg
— og tókst það
„Allar stúlkur geta verið
fallegar," segir Sophia Lor-
en. Því til sönnunar sýnir
hún mynd af sér, sem tek-.
in var þegar hún var sautj-
án ára gömul. Og það er
harla erfitt að þekkja þar
þá Sophiu, sem heimsfræg
er í dag. Hún er klunna-
leg og illa vaxin, ósmekk-
lega klædd, ieiðinlega
greidd og almennt mjög
lítið töfrandi. „Ég vildi
verða falleg," bætir Sophia
við „og ég tel, að mér hafi
heppnast það. En hamingj-
an góða, allur tíminn sem
ég eyddi til þess . . .“
Fyrir ekki alllöngu var
lokið við að taka myndina
Bonjour Tristesse, eftir
skáldsögu frönsku stúlk-
unnar Francoise Sagan. Um
þessar mundir er að ljúka
töku myndar eftir sögunni
„Einskonar bros," eftir
sama höfund. Aðalhlutverk-
ið, ungu stúlkuna Domini-
ques, leikur efnileg leik-
kona, sem heitir Christine
Carere. Christine er talin
í hópi þeirra stjama, sem
mestar vonir eru bundnar
við í framtíðinni. önnur
stórhlutverk eru í öruggum
höndum Joan Fontaine
(leikur Francoise) og Ross-
ano Brassi, sem leikur eig-
inmanninn Luc Ferrand.
Bertrand er leikinn af Brad-
ford Dillmann.
9
8
VIKAN
VIKAN