Vikan - 09.10.1958, Page 5
— Ég geri það.
—Hefur nokkuð komið fyrir?
— Já.
— Ég hélt það.
Það varð stutt þögn.
— Mér þykir svo vænt um þig Drew, en ég elska þig ekki. Ég verð að
segja þér það. En ef þú vilt enn giftast mér . . .
— Þú veist, að é g vil það. Hann tók um hönd hennar. — Hvenær, vina
mín?
— Ekki strax. Sir Reginald er veikur. Ég get ekki farið núna. En við
getum trúlofað okkur.
Drew leyndi vonbrigðum sínum. Hann hafði vonað, að þau gætu gift
sig strax, áður en hún hefði tíma til að breyta um skoðun. Þvi hann var
ekki alveg viss með hana. Nú vildi hún, að þau trúlofuðust. En það var
ekki allt með felldu. Þessi athugasemd um að hún ekki elskaði hann. Hann
hugsaði um hvað mundi hafa komið fyrir milli hennar og Símonar. Hann
var viss um, að þau hefðu rifist. Guð minn góður, mikil er heimska mann-
anna! Hvernig gat Símoni hafa sést yfir Nan og búið í sama húsi, farið til
Frakklands og komið til baka trúlofaður Pollí? Hann átti það skilið, að
giftast Pollí. En það var hræðilegt fyrir þau bæði, að hún yrði máttlaus
alla æfi.
Nan sagði fjölskyldunni fréttirnar daginn eftir og allir urðu hrifnir.
Það var bara Stella, sém varð dálítið undrandi og rugluð. Þetta passar
ekki, hugsaði hún. 1 gær grét Nan sig í svefn, og í dag er hún trúlofuð
Drew. Stúlka eins og Nan trúlofar sig ekki svona. Eða var það? Stellu
langaði til að spyrja um margt, en hún gerði það ekki.
Eftir hádegið fór hún að heimsækja Pollí. Hún var að fara til London
eftir nokkra daga og mundi ekki koma strax aftur svo henni fannst að hún
yrði að líta til hennar.
— Nan ætlaði að giftast Drew, sagði hún þegar þær voru búnar að tala
saman dálitla stund. — Hún sagði það við morgunverðarborðið í morgun.
Hún þóttist sjá það á Pollí, að henni létti.
— Ég hélt hálfpartinn, að hún ætlaði að gera það, sagði Pollí.
—Þau eiga vel saman. Hvorugt þeirra er verulega skemmtilegt. Ég
vona, að bólún hans Drew sé dálítið skemmtilegri en höfundurinn.
— Persónulega finnst mér Drew mjög skemmtilegur. Og Nan er indæl.
— Pollí yppti öxlum.
— Það hefur hver sinn smekk. Hvenær ætla þau að gifta sig?
— Ekki alveg strax. Pabbi er veikur eins og þú veist og Nan vill ekki
fara frá honum fyrr en hann er orðinn betri.
— Það var fallegt.
Stella horfði á tilvonandi mágkonu sina.
—Hvers vegna er þér alltaf svona illa við Nan, Pollí?
— Mér líkar ekki við hana.
— Afbrýðissöm vegna Símonar og hennar?
— Vertu ekki með neina heimsku. Pollí teygði sig og geispaði.
— Hvað er klukkan ?
— Bráðum fjögur.
— Dagarnir eru svo langir hér á þessum arma stað. Annars segir
læknirinn, að ég megi fara í vikulokin. Er það í lagi, að ég komi heim til
ykkar ?
— Auðvitað, sagði Stella, en hún var að hugsa um það hvernig móðir
hennar mundi kljúfa það, að hafa tvo sjúklinga í húsinu i einu. En hún
hafði seinast í morgun sagt, að hún vildi ekki ganga á bak orða sinna.
Símon vildi það líka, svo auðvitað mundi Pollí verða heima hjá þeim.
— Er ekki meiningin, að ég fái með mér hjúkrunarkonu ?
— Það verður ágætt. Þar er ein fyrir, sem hugsar um pabba. Það
verðui' heill spítali heima.
Pollí var flutt í sjúkrabíl til Highland Hall daginn eftir. Nan sá til
þess, að hún fékk gott herbergi, stærsta og þægilegasta herbergið með
glugga út að rósagarðinum þar sem síðustu rósir haustsins stóðu í blóma.
Hún var borin upp stigann og lögð í rúmið. Brátt átti hún að fá hjólastól
og læknarnir bjuggust við því, að hún mundi geta gengið við staf um jól.
Nan hafði verið úti kvöldið áður og ekki séð Símon. Daginn eftir stóð
hún skyndilega augliti til auglits við hann þegar hún kom út af skrif-
stofunni.
— Ég heyri, að ég megi óska þér til hamingju.
— Þakka þér fyrir.
— Ég vona að þið verðið mjög hamingjusöm.
Hún hafði ákafan hjartslátt. Guð minn góður, hvað hún hafði verið
heimsk, að halda, að hún mundi lcomast yfir það. Hún skalf við það
eitt að heyra rödd hans.
— Ég komst að þeirri niðurstöðu, að það væri bezt að fara að þínum
ráðum, sagði hún.
—- Það var snjallt af þér.
Það var allt og sumt. Hann var farinn og hún stóð eftir og velti því
fyrir sér hvort honum væri eins sama og hann vildi vera láta. Auðvitað
er honum það, sagði hún biturlega við sjálfa sig. Hvað var að henni? Hún
varð að vakna af þessum vonlausa draumi fyrir fullt og allt. Átti hún ekki
til heilbrigða skynsemi?
Framliáld í næsta blaði.
Gerist áskrifendur VIKUNNAR
IVIOLY8PEED
er nýtt Molybdenum efni til
að blanda í smurolíuna.
Þunn Molybdenum himna
sez± á slitfleti vélarinnar og
þar sem þessi himna þolir
hærri þrýsting (7000 kg.
cm2) og hærri hita (400°C)
heldur en smumingsolía, er
Molybdenum himnan vélinni
hin mesta vöm undir erfið-
um kringumstæðiun, jafn-
framt því sem hún auðveld-
ar ræsingu og gang við
venjulegar aðstæður.
Fyrir bifreiðastjórann þýðir notkun Molyspeed:
Meiri viðbragðsflýti í ræsingu — léttari gang vélar-
innar — vörn gegn rispum í legum — aukið afl —
minni eyðslu.
Molyspeed stíflar ekki olíusigti og blandast við all-
ar tegundir smurolíu, þar með taldar efnabættar olí-
ur og f jölþykktar olíur.
Ráðlagt er að blanda Molyspeed í smurolíuna í ann-
að hvert sinn, sem skipt er um olíu.
Aðalumboð: Fjalar h.f.
Skólavörðustíg 3 — Reykjavík.
Símar 11915—11916
Til þess að vernda húð yðar
ættuð pér að verja nokkrum mínútum ó hverju kveldi til
að snyrta andlit yðar og hendur með Nivea-kremi. Það
hressir, styrkir og sléttir andlitshúðina og hendurnar
verða mjúkor og follegar. Nivea-krem heflr inni að
haldo euzerit, sem er skylt eðlilegri húðfitu. Þess vegna
genaur það djúpt inn í húðina, og hefir óhrif langt
inn fyrir yflrborð hörundsins. Þess vegna er Nivea-krem
svo gott fyrir húðina.
AC 177
VIKAN
5