Vikan


Vikan - 23.10.1958, Síða 8

Vikan - 23.10.1958, Síða 8
selskapspáfagauka, — þeir verða að vera margir saman, annars eru þeir góðir með að drepast úr leiðindum. Það sagði að minnsta kosti fröken Lina. — Þetta búr var fyrir aðeins einn fugl, en framúrskarandi vandað og fallegt. Rimlarnir voru úr grænu og brúnu plasti, eftirlíking af trjágreinum, meira að segja með laufi á, og það var svo vel gert að það virtist í fljótu bragði vera lifandi. Inni í búrinu var dálítil róla, sömuleiðis úr plasti. Hún var einsog vafningsviður, meira að segja blómstrandi í rauðu og fjólubláu. Þarna átti fuglinn að róla sér að gamni sínu og helzt að syngja á meðan. Þarna var líka hreiður úr logagylltu basti stoppað með snjóhvítri viðarull, og í því var Smásaga eftir LJÓSIÐ sindraði í óhreinum rúðunum og bak- aði upplituð, rykmettuð húsgögnin. Mollan i stofunni var orðin óþolandi. Fröken Valborg var farin að bisa við einu gluggaboruna sem mögulegt var að opna, þegar hún mundi eftir fuglinum. Hann var nefnilega ekki á sinum stað, — í búrinu — heldur var hann laus og liðugur á eirðarlausu flögri fram og aftur um stofuna. Þetta augna- blikið sat hann á gyllta þunga rammanum á f jölskyldumyndinni. Þarna sat hann, reyndar alls ekki kyrr, heldur á sífelldu iði, rykkti til höfðinu og veifaði stélinu. En ekki datt honum í hug að syngja. Fröken Valborg tók til hjartans af gömlum vana. Hamingjan góða! Ef hann . . . Hún var svo hrædd um að hann kynni að gera á rammann. Fröken Valborg klöngraðist niður af stóln- um og stundi þungan. Hann vaa' erfiður, þessi fugl þó að hann væri viðunanlegur, þegar hann var í búrinu sínu. En hún fröken Lína hafði sagt að hann þyrfti hreyfingu — hann þyi'fti að fá að fljúga um öðru hvoru, annai's fengist hann tæplega til að syngja. Það var vonin um að fuglinn syngi, sem hélt fröken Valborgu við í öllu þessu stríði. Og fröken Lína var svo vel inni í öllu svonalöguðu. Potta- plöntur, gullfiskar, kanarífuglar, selskapspáfa- gaukar, — þetta voru sérgreinar fröken Línu. En Jesús minn góður að koma honum í búrið aftur! Það var enginn barnaleikur. 1 fyrsta skiptið varð hún að fá alla fjölskylduná á hæðinni til hjálpar, — frúna, • dótturina, vinnukonuna, hús- bóndann og strákana. Og loks tókst húsbóndanum að handsama fuglinn. Guð, hún hafðl verið svo hrædd um litla vesl- inginn i þessum stóru krumlum mannsins. En til allrar hamingju bar ekki á að hann hefði meiðzt, hann var bara dálítið úfinn og kúrði sig niður í fjarsta horni búrsins og skalf. Það mátti sjá utan á litla brjóstinu, hvemig hjartað hamaðist. Frök- en Valborg varð svo hrædd að hún þorði ekki annað en sækja fröken Línu. — Þetta er allt í lagi, sagði fröken Lína. — Hann hefur bara orðið dálítið hræddur við ykkur, svona mörg. Þetta lagast strax. -—- Það lagaðist líka strax. Um kvöldið var fuglinn orð- inn rólegur að sjá. Hann sat hreyfingarlaus í horninu og var búinn að stinga höfðinu undir vænginn löngu áður en fröken Valborg kom með græna flosteppið og breiddi yfir búrið. Hann var sennilega þreyttur, veslingurinn litli. Hann hafði orðið svo hræddur. Annars hafði fröken Línu skjátlazt í einu. Hún sagði að fuglinn mundi venjast búrinu og fara inn í það sjálfur, þegar frá liði. Það gerðu allir fuglar sem hún hafði haft undir hendi. En þessi gerði það bara ekki. Hann virtist aldrei geta vanizt því. Hann ætlaði hreint að tryllast þegar hún var að handsama hann og koma hon- um i það, og var lengi að verða rólegur þó að hún væri búin að loka því . og láta hjá honum gráfíkjur og fuglafræ og vatn í fallegu postu- línsskálina. Hún heyrði hann jafnvel oft flögra eirðarlausan þar inni, þegar hún var búin að breiGa græna flosteppið yfir búrið og var háttuð sjálf og búín að slökkva ljósið. Það var mjög óviökunnanlegt að lieyra, — vængirnir struk- ust við rimlana svo skrjáfaði í, og rólan dingl- aði til með óreglulegu tifhljóði. Það var einsog reimleiki, maður gat ímyndað sér að þarna væri fi'iðlaus vofa á reiki í myrkrinu. Fröken Valborg varð að bæta við sig tveim- ur svefntöflum og margendurtaka þá hugsun að þetta væri bara fuglinn. Nei, þar skjátlaðist fröken Línu. Fuglinn fór aldrei sjálfur inn í búrið og virtist aldrei ætla að venjast því. Það var nú nokkuð annað. Þó var þetta það yndislegasta búr sem hægt var að hugsa sér. Það var amerískt og hafði upphaf- lega kostað á sjötta hundrað krónur á Vellin- um. Hún hafði fengið það fyrir fjögur —1 selj- andinn gat ekki notað það, það var of lítið fyrir Astu Sigurðardóttur ofurlítið dröfnótt plastegg svo yndislega sætt. Áreiðanlega var sá fugl ekki til sem gat búið til svona dásamlegt hreiður. Svo var þarna blá- græn postulinsskál með hvitum sandi í botnin- um, full af tæru vatni. Það var baðkai'ið fugls- ins, — þvi fuglar þurfa að baða sig — og svo hafði hún lánað honum litla, hvíta sykurkarið sitt undir drykkjarvatn. Hún trúði því ekki, að hann væri svo óþrif- 8 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.