Vikan


Vikan - 23.10.1958, Page 17

Vikan - 23.10.1958, Page 17
FAEIN OR UM TUNDU Eftir Jónas Guðmundsson áhrif og segulmagnsbreytingar sprengja duflið. T. d. nægja þau rafmagnsáhrif, sem myndast við að skip rennur gegnum sjóinn, til þess að sprengja duflið, svo ekki sé talað um járnskip, sem ekki eru „afseg- ulmögnuð", eins og gert var í stríðinu. Ægilegust og flóknust eru svo hljóð- duflin. Duflin, sem minnsti hávaði spreng- ir, svo ekki sé talað urn högg. Hljóð skip- anna sprengir þau. Þ. e. a. s. hljóðbylgjan. Til merkis um það, hversu viðkvæm duflin eru, má nefna, að högg, eins og mað- ur lemur við að draga ýsur, er yfrið nóg til þess að sprengja svoleiðis dufl. Hugsum okkur, að duflið stæði í her- bergi og væri virkt. Þá myndi það nægja, ef einhver gengi harkalega um, til að sprengja duflið. Þessi dufl eru afar hættuleg fyrir menn- ina, sem gera tundurduflin óvirk. Það er nú svo, að í fátt hafa mennirnir lagt meiri kænsku en tundurduflin. Meira að segja eru til radio-dufl, sem sprengd eru með ,,símskeyti“, ef svo má að orði komast, svo eitthvað sé nefnt. I»Ai: FLUTU ÞUSUNDUM saman. Á stríðsárunum, var mikið af tundur- duflum lagt í Atlantshaf. Mátti heita að samfellt tundurduflabelti væri frá Skote- landi til Grænlands. Beltið lá um Fær- eyjar og Island. Mörg þessara dufla fóru Stríðið er búið, en samt heldur það áfram að spilla verðmætum og valda mönnum örkumlum og jafnvel dauða. Þau veiðast í botnvörpur, þau rekur á fjörur, og þau velkjast um höfin. — Tund- urduflin. I stríðinu lögðu hemaðarveldin tundurdufl um öll heimsins höf. Venju- legast á fjölfarnar siglingaleiðir, til þess að granda skipum óvinarins. Og svo kom hinn langþráði „friður“, sem við könn- umst öll við, en þá var fjöldi tundurdufla í sjó, bæði hjá bandamönnum og Þjóð- verjum. Var strax hafizt handa og farið að hreinsa siglingaleiðimar af tundur- duflunum. I árslok 1945 var búið að ná upp 1.389.281 stykki og var þó mikið eftir, svo menn geta séð, að það hefur ekki neitt smáræði verið lagt af duflum Þessi hreinsun var ekki framkvæmd án fórna, því 149 menn létu lífið og 165 særð- ust hættulega. 167 hlutu skrámur. Allt voru þetta sérfræðingar í eyðingu dufla og aðstoðarmenn þeirra. Ekki er kunnugt, hversu miklu af dufl- um hefur verið eytt síðan, en það er ekk- ert smáræði, og enn eru þau að finnast hér og þar og granda skipum þótt liðin séu mörg ár frá því að þau voru lögð. Hér á Islandi, höfum við ekki íarið var- hluta af tundurduflahættunni. Ekki eru mörg ár liðinn, síðan glæsilegur nýsköp- unartogari FYLKIR fékk dufl í vörpuna og sökk. Þessi atburður er að vísu eins- dæmi hér við land, en þess er að minnast, að þessháttar slys em sífellt að ske út í heimi. Þettn tundurdull er „seguldufl“. Ennfremur hefur það 11 takka. Þetta dufl er afar hættu- legt, og gott dæmi uppá það, hversu mennirnir eru hugkvæmir, þegar þeir gera vítisvélar. Þessi dufl eru sérlega hættuleg fyrir mennina, se mgera þau óvirk. Oft hefur „duflasmiðurinn“ einnig sett sérstaka (gildru) fyrir tundur- duflaeyðinn, þannig, að ef einhver ákveðinn hlut- ur er hreyfður meðan verið er að gera duflið óvirkt, þá sprengir þessi vitisvél duflið. Margir menn hafa farizt á þennan hátt. HVAÐ ER TUNDURDUFL? Það má segja að það sé tunna með sprengiefni. Annars má skifta þeim í nokkra flokka, mishættulega og misvand- aða. Algengustu timdurduflin eru með tökk- um, sem sprengja duflið, ef við þá er kom- ið. Ef komið er við takkann, þá hleypir hann rafstraum á hvellettu, sem sprengir sprengjuna. Svo eru það loftnetsduflin. Úr þeim eru stundum loftnet, bæði að ofan og neðan. Ef loftnetið verður fyrir minnstu snert- ingu frá segulmögnuðum hlut, t. d. skipi, springur duflið. Auk þessa hafa loft- netsduflin venjulega takka. Þá eru það segulduflin, sem margir hafa heyrt nefnd. 1 þeim er flókin vítisvél, sem er gesyilega flókin. Minnstu segul- Gunnar Gíslason skipherra. Hann gerir f!est tundurdufl, sem finnast, óvirk. fljótt á rek. Voru þau þá orðin jafn hættu- leg báðum stríðsaðilum, þess vegna varð að sökkva þeim. Islendingar byrjuðu árið 1940 að gera út sérstök skip til að sökkva tundurduflum við strendur landsins. Einnig störfuðu varðskipin að tundurduflaeyðingu, eins og gert er enn í dag. Á þessum árum var duflunum sökkt í þúsundatali. Mest bar á þessum vágesti við Austurland. Einnig var mikið um dufl fyrir Norðurlandi. Þessi herferð var allhættuleg. Helzt máttu skipin ekki vera nær duflunum en 200 metra, en þá var erfitt að hæfa þau. Einkum í sjógangi á litlum skipum. Var þá oft látið skeika að sköpuðu og farið alveg að duflunum og þeim sökkt. Ekkert slys varð þó af þessu, sem betur fór. Þó mun tundurdufl hafa sprungið allnærri varðskipinu Óðni á þeim árum. MAÐURINN, SEM EYÐIR TUNDUR- DUFLUM. Hann hefur sérstöðu, því það öfunda Framhald á hls. 45 VIKAN 17

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.