Vikan


Vikan - 23.10.1958, Side 21

Vikan - 23.10.1958, Side 21
TÍZKAN Tizkubreytingar eiga sér stöðugt stað og kennir þar margra grasa, einkum í kvenklæðnaði. Nýrri kvenbúningur er lítið að- skorinn, með mildum, aflíðandi línum. Kjólar koma mikið i beinni línu frá handarkrika niður á lendarnar, en þar er vinsælt að falda klæðið. Síðan er neðsti hlutinn ýmist skor- inn að, eða kjóllinn víkkaður út. Mikil fjölbreytni er í hliðum hinna /msu klæða, enda virðist allt gert, til að allskyns líkamsbygging njóti sín. Ermar á blússum og kjólum eru af illum lengdum. Alerma flík er nokk- ’ð algeng sjón í U. S. A. um þessar mundir. Pokalínan á ennþá mikil ítök, en íenni er oft breytt, og hún kryddu? ’pannig, að pokinn fær meiri svip. 1 þessum tilgangi notar saumakonan bekki, sem hún setur á kjólinn neð- arlega að aftan, eða ofarlega að framan, að rikkingin kemur þétt í brjósthæð, en víkkar út, þegar neðar iregur. Bekkir með breiðu slöri eru Dft saumaðir allt í kring á kjólinn aeðanverðan, en þetta er skrautlegt og hylur ágætlega breið læri. Háls- mál er útbúið á marga lund, og ekki eins nakið sem fyrr. Þar notast gjarnan trefilkragi, sem kemur að hálsinum, eins og óhnýttur trefill. Slikan kraga má hafa lausan, og er hasn tíðast hvítur að lit. Venjulegs skyrtukragastíls gætir mjög í blúss- saumi og gamla, ófaldaða höfuð- opsins, sem alltaf verður auðvelt í umvöfum. Hnappar eiga litið upp á pallborð- ið á kjólum, en blússan heimtar þá aftur á móti, og eru þeir gjarn- an yfirdekkaðir. Stutta tízkan ætlar eigi að gera byltingu, þótt henni skyti upp á úmabili. Mun þetta gleðja þær kon- ur, sem hafa efnismikla fætur. Lítið gerist af róttækum hlutum i kápusaumi, enda fáu hægt að bæta 'par við. Auk þess virðist kápan ekki úga eins miklum vinsældum að fagna og áður. Því valda hinar ýmsu -jerðir af úlpum og jökkum, sem nú u-u svo mikið í tizku. I Bandaríkj- mum er mikið um að konur klæðist 'oplinjökkum með prjónuðum kraga. Hru þessir jakkar ýmist fóðraðir eða 'kki. Líka er algengt að hafa fóðr- 3 smellt þannig, að hægt sé að taka >að úr, þegar tekið er að vora. Athyglisvert er, að tízkukóngar uæla með lægri hælum en áður, og .elja margir það hið mesta þarfa- úng. Vonandi fylgist íslenzka kon- m með erlendum tízkustraumum eins >g áður, svo karlar hafi nóg að dá. VIKAN 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.