Vikan - 23.10.1958, Qupperneq 22
Útvegsbanki
A
Islands
Reykjavík
Útibú á Laugavegi 105
ásamt útibúum á Akureyri, Siglu-
firði, ísafiröi og Vestmannaeyjum.
Annast öll venjuleg
bankaviðskipti
innan lands og utan, svo sem inn-
heimtur, lcauy og sölu erlends gjald-
eyris o. s. frv.
Tekur á móti fé
á hlaupareiTcning og til ávöxtunar
með sparisjóðskjörum með eða án
uppsagnarfrests.
Ábyrgð ríkissjóðs
er á öllu spariffé í bankanum og
útibúum hans.
Sparisjóðsdeild bankans í
Reykjavík, er auk venjulegs
skrifstofutíma
opin frá kl. 5—7 alla virka daga,
nema laugardaga.
Afgreiðsla útbúsins á
Laugavegi 105
er opin sem hér segir: Kl. 10—12,30
og kl. 3,30—6,30 síðdegis, nefna á
föstudögum til kl. 1,30 síðd. Á laug-
ardögum kl. 10—12,30 f. h.
Bankinn hefur örugg geymslu-
hólf til leigu.
A VEGAMOTUM
(Saga eða
Við erum ekki sammála um söguefni.
Þér finnst, að sagan verði að hafa ein-
hvern tilgang, lýsa af hverju persónurn-
ar gera þetta eða hitt. Mér þykir nóg, ef
sagan segir frá einhverju, sem mér virð-
ist sérkennilegt eða skemmtilegt, ein-
hverju, sem ég eða aðrir hafa lifað á
einhvern hátt. Líf er svo margvíslegt.
Það er fleira líf en hinn venjulegi og
viðurkenndi veruleiki. Hugsunin er líka
Efftir Jón H. Guðmundsson
ritsijóra
líf, þó að hún sé ekki veruleiki í lífinu.
Það er bezt að koma með dæmi og vita,
hvað þú segir, þegar þú ert búinn að
heyra söguna.
Sagan um okkur. Við erum gamlir fé-
lagar. Jafnaldrar. Núna um þrítugt. Við
vorum kátir strákar í uppvextinum og
fjörmiklir. Það var oft margt um mann-
inn á horninu í gamla daga. Yndislegt
kvöld. Þú manst eftir því, hve við vorum
kátir, þegar vaktarinn kom með luktina
og kveikti á gasluktinni. Hún var á hús-
inu nr. 1. Við hrópuðum húrra fyrir vakt-
aranum og ljósinu og hann brosti til okk-
ar og hélt áfram skyldustörfum sínum. En
við lékum okkur á horninu undir luktinni.
Og okkur þótti það skrítið, þegar einn og
einn eða tveir og tveir eða ein og ein eða
tvær og tvær af eldri félögum komu beint
heiman að frá sér, staðnæmdust ekki á
horninu, gengu framhjá okkur og upp í
bæinn, í leit áð nýjum ævintýrum, sem
við yngri krakkarnir höfðum ekki hug-
myndum, hvar væri að finna. Ég veit
þú manst þetta engu síður en ég.
Þú manst eftir mókofanum hans pabba.
Hann var á horninu, vestan við Smiðju-
stíginn, uppi við grjótgarðinn. Nú þætti
hann ekki sérlega virðuleg bygging. En
hann var dýrleg höll á æskuárum mínum.
Kofinn var 3—4 metra langur og líklega
rúmur metri á breidd. Hann var sleginn
saman úr allósamstæðu timbri og austur-
hliðin grjótgarðurinn og ekki hærri en
svo, að einungis risið náði upp fyrir garð-
inn. Á þakinu var bárujárn, sem keypt
hafði verið eftir bruna, marglitt og sum-
staðar brunnið í sundur af ryði.
Þegar búið var að taka af mónum, þá
fengum við krakkarnir að leika okkur 1
kofanum. Þar var farið í margan mömmu-
leikinn, mörg kakan gerð og sett í mót,
sagðar sögur og sungið. Stundum allt
í bróðerni, stundum rifizt, jafnvel sleg-
izt, klórað, grátið og hlaupið heim og
klagað. Þá var ekki tilgangslaust að lifa.
Nóg að gera á hverjum degi og ekki
beðið eftir tímanum. Hann leið af sjálfu
sér.
Og það var morgunn og það var dag-
ur og það var kvöld og svo kom nóttin
og síðan nýr dagur.
Einn daginn vorum við bara þrjú úti
í kofa. Þú og ég og Ásta. Ætli við höfum
ekki verið fimm ára þá.
Það var Ásta, sem fann upp á leikn-
ekki saga)
um. Hún var svo athafnasöm og úrræða-
góð, aldrei hrædd við neitt, grét aldrei,
beit bara á jaxlinn og brúkaði munn. Hún
dó í inflúenzunni 1918.
Ásta sagði, að við skyldum leika hjón
og barnið þeirra. Hún var mamman, þú
varst pabbinn og ég litli drengurinn þeirra,
sem stalst niður á bryggju til að veiða,
datt í sjóinn og maðurinn kom heim með
hann, rennandi blautan og lagði hann í
rúmið, og þar dó litli drengurinn, en
mamma og pabbi voru grátandi við rúm
hans.
Ásta breiddi úr poka á kofagólfinu, sótti
vatn í berjafötuna í tunnuna, sem stóð
undir rennunni við vesturgaflinn á hús-
inu okkar. Hún hvolfdi úr fötunni yfir
mig og skipaði mér að bíða og sendi þig
eftir annarri. Hún skvetti úr henni fram-
an í mig. Þá fór ég að grenja og vildi
fara heim. En hún aftraði mér, sagði að
ég ætti að gráta, af því að ég hefði dott-
ið í sjóinn og orðið hræddur og mundi
brátt deyja. Bara í gamni, bætti hún við.
Svo tókuð þið mig á milli ykkar, báruð
mig að pokanum og lögðuð mig á hann,
breidduð tusku yfir mig og sögðuð mér
að loka augunum og deyja. Eg vildi helzt
ekki gera það, ætlaði að rísa upp aftur.
En Ásta skipaði mér að liggja kyrr,
það væri svo gott að deyja, fara til guðs
og verða engill.
Og ég lokaði augunum og þóttist deyja,
en þið grétuð við rúmið mitt og Ásta hugg-
aði þig með því, að þetta hefði átt svona
að fara. Kannske munduð þið eignast
• Framhald á bls. 55.
SÍMI 1158
er símanúmerið, sem þér
eigið að biðja um, ef
yður vanhagar um eitt-
hvað, sem viðkemur raf-
magni.
Verðið er hæfilegt.
Úrvalið mikið.
Viðskiptin greið.
Utanáskrift skeyta: ELECTROCO.
Raftækjaverzlunin
ELECTRO Co
Akureyri.
22
VTKAN