Vikan - 27.11.1958, Side 2
Tilvalinn
a
jóla-
Á TAKMÖRKUNLIM
Þekktur borgari kom inn í veitingahús llér í
bænum og settist við eitt borðið. Þerna kom strax
til hans og byrjaði á því að snúa við dúknum á
borðinu. Þá varð manninum að orði:
— Ósköp er að sjá til þín, manneskja! Aldrei
mundi ég taka í mál að láta konuna mína snúa
við lakinu!
—O—
Præg íslenzk söngkona hafði verið gift dönsk-
um manni, en þau höfðu slitið samvistum. Söng-
konan var að æfa aðalkvenhlutverkið í frægri
óperu, þegar hún fékk allt í einu slæmt kvef og
varð að hætta æfingum. Þegar svo var komið,
sendi hún fyrrverandi manni sínum svohljóðandi
skey ti:
„Har tabt Stemmen. Maa jeg komme?"
—O—
Jakob Thorarensen skáld og Jakob Thoraren-
sen farandsali, sem látinn er fyrir nokkrum ár-
um, voru náfrændur. Eitt sinn var Jakob far-
andsali búsettur í Reykjavík um skeið og gaf þá
út blað, sem hét Klukkan hálf tólf. Ekki vildi
Jakob skáld láta bendla sig við þetta blað og
birti því í Morgunblaðinu svohljóðandi yfirlýs-
ingu:
„Ef hér skyldi verða gefið út blað með rit-
stjóranafninu Jakob Thorarensen, eru menn vin-
samlegast beðnir að athuga, að það er ekki und-
irritaður. Jakob Thorarensen skáld.“
Daginn eftir birtist í Morgunblaðinu eftirfar-
andi yfirlýsing:
„Ef hér skyldi verða gefin út ljóðabók með
höfundarnafninu Jakob Thorarensen, eru menn
vinsamlegast beðnir að athuga, að það er eklii
undirritaður.
Jakob Thorarensen ritstjóri.11
STUÐLAMÁL
Um lausbeizlaðan þingmann
Allra flokka föðurlands
flóttamaðurinn vitjar.
• Lítilmennska og lausung hans
leggja saman nytjar.
Tveggja maki
Bóndi einn á Norðurlandi bjó með tveimui'
systrum. Var hann kvæntur annarri, en átti
börn með báðum. Silungsvatn stórt var á
heiðifini upp af bænum. Eitt sinn sást bóndi
á hlaupum niður heiðina með silungakippu á
bakinu. Þá var kveðið:
Þykir vænt um veiðina
vöskum maka tveggja,
Hendist ofan heiðina
heim til þeirra beggja.
HIIVIIR IVSISVITRU SÖGÐU
Að skapa hugsun
„Hann sagði m. a. að eitt frumskilyrði til
endurheimtar andlegrar heilbrigði væri a'*
skapa sjúklingum starf, sem dreifði hugí
þeirra frá eigin bágindum og skapaði þeim
hugsun um hagnýta hluti.“
Alþýðublaðið
Gestahoð fyrir ólóða
„Fyllti lögreglan fangageymsluna á skammri
stundu með ölóðum mönnum, en aðra varð
hún að flytja heim til sín.“
Vísir 11. nóv. ’58
Með nýju tungli
„Nýtt Sigrún Ragnarsdóttir syngur og
leikur á gítar.“
Auglýsing frá Silfurtunglinu í Morgunblað-
inu 17. okt ’58.
Breytt mataræði
„Við erum hættir að snæða trúboða sögðu
Indíánarnir og buðu upp á apakjöt, sem þeir
höfðu áður tuggið til að sýna, að það væri
ekki eitrað."
Tíminn 12. nóv. ’58.
VIKAN