Vikan


Vikan - 27.11.1958, Qupperneq 4

Vikan - 27.11.1958, Qupperneq 4
I Arnarhváli er landlæknisembættið til húsa. Jjegar Vilmundur tök við embætti, setti hann það skilyrði að hann gæti gengið í þráðbeina línu heiman að frá sér á skrifstofuna. — Hann hefur alla embættistið sína átt i Þistilfjarðarhéraði, þar til hann fór til Isafjarðar og tók þar við yfir- stjórn heilbrigðismála 1917. Hann var frábær læknir og skörungur í öllum greinum, sem hann kom ná- lægt. Af miklum myndarskap lét hann reisa stórt og gott sjúkrahús á staðnum og rækta tún og kýr í nánum tengslum við sjúkrahúsið. Hann sat í bæjarstjórn Isaf jarðar í 10 ár. Var formaður skólanefndar og hafði með höndum ýmis önnur trún- aðarstörf, eins og sagt er um góð- borgarana. SVO var það daginn fyrir höfuð- dag í haustmánuði 1931, að Vil- mundur var skipaður landlæknir. Hafði hann vakið mikla athygli hinna vitru og virtu stjórnmálamanna, sem sátu á friðarstóli í Reykjavík. At- orka hans og dugnaður var lands- kunnugt. Gott orð fór af sjúkrahúsi hans og læknisstörf öll þóttu frábær. Hann var ótrúlega skjótur til fram- kvæmda og sjúkdómsgreiningar stóð- ust alla gagnrýni. Eitt sinn var sá heima á Ingólfsstræti 15. EITT furðulegasta og merkileg- asta fyrirbæri þessa lands er án vafa Vilmundur Jónsson, land- læknir. Persónuleikinn er svo marg- slunginn og fjölhæfur og kynlegur, að hreinustu firnum sætir. Þó er hann sjálfum sér fyllilega samkvæm- ur og unir sér sennilega bezt í ein- rúmi eða fjörugum rökræðum við háfleyga lífsspekinga, einhverja af hinum stritandi stríðsmönnum lífs- ins og tilverunnar. Vilmundur Jónsson er gæddur fá- gætum persónutöfrum, þannig að jaðrar við klára dáleiðsluhæfileika. Eitt sinn mætti hann koltimbruðum merkismanni á leið í „ríkið“. Vil- mundur tók í hönd hans og leiddi við hlið sér beina línu suður Ingólfs- stræti. Timburmennirnir voru horfn- ir eins og dögg fyrir sölu, þegar þeir skildu fyrir utan hús landlæknis. Manni kemur ósjálfrátt í hug hinn snilldarlegi kafli i ævisögu séra Árna heitins Þórarinssonar, þar sem fjall- að er um Valdimar Ásmundsson og segulmagnaðan persónuleika hans. Vilmundur var eitt sinn staddur á rampólitískum fundi í kjördæmi sinu vestra. Andstæðingur hans var í pontunni og talaði af miklum móði. Þá reis Vilmundur úr sæti sínu, gekk til hans, stjakaði honum með sér baka til og sló upp í hrókasamræður, sem lauk þannig að þeir leiddust um sviðið, hlæjandi báðir. Gönguferðir með sjó fram í saggasömu veðri, þegar inspirasjónir berast mönnum tíðla til að diskútera, fílósófera og spekúlera, segja kunningjar hans, að séu með skemmtilegustu og upp- byggilegustu stundum lífsins. Kvöld- stundir með, landlækninum við arin- eld í rökkurkyrrð verða öllum ó- gleymanlegar. Leiftrandi mælska og gneistandi gáfur húsbóndans, koma mönnum algerlega úr jafnvægi, og þeir finna sárt til í brjóstinu vinstra megin. VILMUNDUR hefur komið víða við á langri leið. Hann er fædd- ur á Fornustekkum í Nesjum austur 28. maí 1889. Um uppeldi hans er oss að mestu ókunnugt, en sjálfsagt hefur hann árla verið jafn- mikill strákur og hann er enn í dag. Hann lagði leið sína til Akureyrar á Gagnfræðaskólann og hlaut prýði- lega einkunn við öll próf, sem hann þreytti þar. Síðan hélt hann til Reykjavíkur og lauk stúdentsprófi, að oss minnir, utanskóla 1911. Er margt skemmtilegt sagt um hann frá þessum árum, en að þessu sinni er vart rúm til þeirra sálma. Hann hóf svo læknanám og lauk þvi við mikinn orðstír 1916 og fékk hátt í tvö hundruð stig við prófið og var það geypiframmistaða og er enn. Svo sigldi hann og forframaðist í grein sinni í Englandi Noregi og Danmörku. Að svo búnu hélt hann aftur til Is- lands og gegndi héraðslæknisembætti HANN LÆTUR VINNINGINN LIGGJA VILMUNDUR JDNSBDN Ingólfsstræti 15 — beinar línur. sem þetta hripar staddur í Kamp Knox hjá gömlum sæmdarhjónum að vestan, sem fluttust á mölina í stríð- inu. Dóttir þeirra hafði gengizt und- ir uppskurð i Landspítalanum. Að- gerðin mistókst, stúlkan dó og gömlu hjónin voru niðurbrotin. Þau börmuðu sér og maðurinn sagði, að þetta væri allt sér að kenna, hann hefði bara átt að biðja hann Vilmund um að skera telpuna upp og „hana Kristínu að hjálpa til“, þá hefði allt farið vel. Einungis þetta smáatvik sýnir það traust, sem Vilmundur og Ki-istín kona hans nutu þar vestra. Heilbrigðismálaráðherra var um þess- ar mundir Jónas Jónsson frá Hriflu. Hann var Framsóknarmaður eins og kunnugt er. Vilmundur var einn af höi-ðustu Alþýðuflokksmönnum. Jón- as sá og viðurkenndi hæfileika Isa- fjarðarlæknisins. Honurn þótti trú- legt, að hann gengdi rösklega fram í embættinu, ef hann yrði skipaður landlæknir. Þessvegna gekk hann í berhögg við marga merka Framsókn- aimenn og afhenti Vilmundi Jóns- syni lyklana að skrifstofum land- læknis. Síðar hefur Jónas að visu lýst það hálfgerð mistök, að hann skipaði Vilmund í embættið. Vér hyggjum samt, að dómur sögunnar verði annar, þrátt fyrir alkunna sagnfræðihæfileika ráðherrans. Eng- inn hefur fundið réttilega að störfum landlæknisins. Hann hefur áreiðan- lega ávallt viljað hafa það, sem sannast reyndist. Embættisfærsla öll hefur verið með ágætum og skrif- stofuhaldið jafnan sparneytnara en tíðkast á opinberum skrifstofum. Isfirðingum fannst mikið koma til frama læknisins, þótt þeim fyndist að vísu súrt i broti verða af kröft- um hans. Þeir þökk- uðu honum því frábæra forystu í heilbrigðismálum staðarins og kusu hann á þing, sama ár og hann var fluttur til Reykjavíkur. Vilmundur sat á þingi fyrir Isfirðinga 1931—33 síðan fyrir Norður-lsfirðinga 1933— 34 og enn 1937—1941. Þá sagði hann af sér þingmennsku. Þar kemur fram ein kynlegasta ástríða mannsins. Hann lætur vinninginn liggja. Ann- að dæmi má nefna. Eitt sinn ritaði Vilmundur bók eina mikla. Sendi hana svo Háskólanum og var hún tekin gild til doktorsvarnar. Land- læknir lét sér aldrei til hugar koma að verja ritgerðina. Hann lét vinn- inginn liggja. „Curationes" er senni- lega skemmtilegasta doktorsritgerð, sem samin hefur verið af íslenzkum manni. Hún á ekki heirna í bókahillu með leiðinlegustu og tyi'fnustu bók- mentum, eins og íslenzkar doktors- ritgerðir virðast þurfa að vera. VILMUNDUR vai' afar vinsæll þingmaður. Kjósendur hans kusu hann ekki fyrst og fremst vegna þess að hann var Alþýðuflokksmað- ur, heldur af því að hann var fyrr- verandi læknir þeirra og velgerðar- maður. Kosningafundir hans voru eindæma skemmtilegir. Eldleg mælska þingmannsins og frábær rökfimi vöktu aðdáun. Sagt, er án þess að vert sé að leggja of mikinn trúnað á, að Vilmundur hafi meðal annars komið þvi að í kostningahríð, að hinn gamli þingmaður þeirra Norður-lsfirðinga hefði nú setið lengi Framhald á bls. 25. 4 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.