Vikan - 27.11.1958, Side 23
kringla eftir öllum duttlungum þínum, Mike
Hallovan ?
Hann horfði aftur á hana svörtum, leiftrandi
augum. — Það er betra fyrir þig, sagði hann
með hægð. — Annars fer ég með þig, eins og
þú stendur. Ég hef aðeins tíu daga orlof . . .
—■ Og ég gæti verið orðin ekkja eftir Hallov-
an að mánuði liðnum . . .
— Það gæti vel farið svo, sagði Mike dapur-
lega. — En í tíu daga skaltu vera ástkona mín,
Meg litla. Svo þér er bezt að hafa hraðann á!
— Er þér . . . er þér alvara, Mike? Málrómur
hennar var blíður og mjúkur. Þú tekur ástina
fram yfir dauðann.
— Mig langar til að lifa meðan ég lifi, sagði
hann. — Ó, flýttu þér nú Meg.
Hún hljóp til hans, vafði örmunum um háls
honum og kyssti hann.
Tíu mínútum seinna var hún komin út í bíl-
inn hans, sem stóð undir álmviðartrjánum. Hún
þrýsti sér fast upp að honum.
— Ó, Lochinvar, sagði hún og lagði vangann
upp að handlegg hans. — Aktu nú hratt.
Þau námu ekki staðar fyrr en þau voru komin
yfir landamærin. Þar námu þau staðar fyrir
framan hús friðdómarans. Og þar voru þau
gefin saman.
Mike stóð við hlið hennar, þegar hún hringdi
til fjölskyldu sinnar. Það var Paula systir henn-
ar, sem kom fyrst í símann og fékk fréttirnar.
— Þetta er ekki til að gera veður út af, Paula,
sagði Meg. — En þú getur hæglega fengið þér
aðra brúðarmey. Ég var að reyna brúðarkjólinn
þinn og ég held að þú ættir að láta víkka hann
um svo sem eina og einn þumlung. Jæja, talaðu
nú við Mike. Hann stendur héma hjá mér og
virðist vera eitthvað órótt. Ekki veit ég hvernig
á því stendur!
Ráðning á 3. Verðlaunakrossgátu.
FAN&ELSISVIST + SA
YLUR + ÖKLAR + KAKAN
REGIN + ALT + VAKUR +
SIGÐ + SPAAK + R+ RIS
TN + AA + N + + LÖFÖT + 0
I+VETRARDAGUR + ÖS
+ TE + ARÐA+KERALD +
R E I Ð + + US + KR + KAUP
ÖAR + ARRISUL + AGGI
SKARTA+N'AREIÐ+NN
A + + ÖTTA + L + GLUFAN
MÖK + VARGUR + IR + ÐI
ARSTIÐIR + EIN+FUN
LA + ÖSIÐ + GIN + BARN
POSTURINN
Framhald af bls. 2.
Kæra Vika:
Mikið þakka ég þér fyrir allar góðu stundirn-
ar- sem þú hefur veitt mér. Mig langaði að bera
undir þig eitt atriði. Ég er búin að vera trúlofuð
lengi (2 ár táep) og alltaf sama stráknum. Hann
er að læra iðn og á eftir 3 ár. Hann var dálítið
laus við og blautur (eins og það er kallað) þegar
ég kynntist honum, en hætti fljótlega eftir að við
opinberuðum og varð bezti strákur, fór að læra
en hafði áður ekkert viljað læra. En nú upp á
síðkastið hefur hann farið að drekka aftur og
það meii' en góðu hófi gegnir.
Ég held að það sem á aðallega sök á þessu
nýupptekna fyllerii, sé það, að vinur hans einn
sem lengi hefur verið í siglingum á norsku skipi,
er kominn aftur til landsins og hefur leitt hann
út í þetta. Það þýðir ekkert þó ég reyni að tala
um fyrir honum, það er eins og hann sé hætt-
ur að taka mark á mér og ég get varla á heilli
mér tekið, stundum þegar verst gegnir er ég að
hugsa um að slita trúlofuninni en mér þykir svo
vænt um hann að ég get það ekki.
Viltu gefa mér einhver góð ráð, kæra Vika.
Þín D.
Svar: Slík mál sem þín eru jafnan erfið við-
favc/s. Ég get ekki ráðlagt þér annað en reyna
enu að tála um fyrir honum, sýna honum fram á,
að ef hann hyggist hálda svona áfram verði
öllu lokið milli ykkar. Því að ég hef satt að segja
ekki trú á að hann bceti sig, þó að þið giftust.
Tálaðu við hann af festu og stillingu og forð-
astu að œsa þig upp eða gráta. Það hefur yfir-
- SPAUG -
Árni Pálsson, prófessor, ræddi
þýzk stjórnmál við kunningja
sinn og lét jafnframt í Ijósi sínar
persónulegu skoðanir á forvígis-
mönnum þýzku þjóðarinnar. Um
Goebbels sagði hann þetta: Það
er áreiðanlegt, að Goebbels er
Gyðingur, og mikið má það vera,
ef hann er ekki afkomandi annars
hvors ræningjans, sem krossfest-
ir voru með Kristi og mér er nær
að halda, að hann eigi ætt sína að
rekja til ræningjans, sem ekki
iðraðist!
—o—
Sveinn Sæmundsson, hinn góð-
kunni yfirmaður rannsóknarlög-
reglunnar, er ættaður úr Austur-
Landeyjum, og eru sveitungar
lians mjög hreyknir af honum.
Sumar nokkurt, þegar Sveinn var
erlendis að kynna sér lögreglu-
mál kemur bóndinn á Vatnshóli,
sem Oddur heitir Þórðarson, að
Krosshjáleigu í Landeyjum. Bónd-
inn þar heitir Þorvaldur og er
ræðinn og skemmtilegur karl.
Talast þeir nú við um tíðafar og
heyskap, þar til Þorvaldur spyr
Odd, hvort hann viti nokkuð um
Svein sinn Sæmundsson.
— O—jú, segir Oddur og tekur
hraustlega í nefið, hann er ný-
lega farinn utan til þess að kynna
sér hegningaraðferðir og æfa sig
í glæpaverkum.
TVÍBURABELTIN
Lady - Rollon Lady - „Bux
komin á markaðinn.
Léttir fallegir litir.
Lady h.f.
Barmahlíð 56 — Sími 12-8-41.
leitt slœm áhrif og fyllir hann stífni og þrjózku.
Auðvitað vil ég ekki ráðleggja þér að slíta trú-
lofuninni fyrr en í fulla hnefana, en þó er betra
að segja skilið við hann áður en þið til dœmis
eignist börn. Mcð beztu kveðju og óskum um
gott gengi!
Vikan, Reykjavík:
Dagbókin frá Litla-Hrauni er einstök í sinni
röð og Vikan hefur sýnt mikla djörfung með því
að birta hana. Hún er „mannlegt plagg“ eins og
það er réttilega orðað. Meira af slíku. Hún er á
köflum átakanleg lesning og ýtir óþægilega við
manni ....
En úr því ég er farinn að skrifa ykkur lang-
ar mig at> spyrja hvort þið hafið gleymt að rífa
af almanakinu þarna á ritstjórnarskrifstofunni ?
Jurtasöfnun á ekki að vera á þessum árstíma.
Kannski þið getið frætt mig á því hvar hægt sé
að tína blóm nú í nóvember? Og útieldstæði! Á
hvaða breiddargráðu eruð þið staddir? Væri ekki
ráð að endurskoða hnattstöðuna? Að öðru leyti
er ég harðánægður með Vikuna. Hún er alltaf
að batna og er því bezt að lifa.
Kær kveðja,
Sigurður Magnússon.
Svar: Við þökkum falleg orð um blaðið og er
gleðilegt, að fólk tekur því vel. Dagbókin er að
sönnu einstakt plagg, sem lengi mun vœntanlega
í minnum haft. Svo var það almanakið. Víst er
hér dagatál og reynt að fylgjast bœrilega með
tímanum. Blóm má lika fá víða, t. d. hjá Krist-
manni og í Alaska og miklu viðar og á veturna
er einmitt bezti tíminn til að ganga frá blóma-
söfnum, sem aflað hefur verið undangengið sum-
ar. Útieldstœði eru einnig mjög nytsamleg og nti
ganga hvort sem cr kuldar í garð, svo þeirra er
cinmitt mest þörf. Með beztu kveðjum.
VIKAN