Vikan


Vikan - 11.12.1958, Síða 10

Vikan - 11.12.1958, Síða 10
w DRAUMUR BORGARBÚA Háskólakennaralajón í Miinchen hafa byggt þetta glæsilega hús upp í sveit. Hús þetta kostaði um það bil 120 þús- und mörk en varla er hægt að segja að peningunum hafi verið kastað á glæ, því vandleitað er að byggingu sem hefur á sér svo fagurt yfirbragð og þokkafullt. Að nokkru leyti er það hinu hrikafagra landslagi að þakka þó ekki sízt arkitekt- inum Gerd Wigand og aðstoðarmanni hans M. E.. Sehultz. Þeir hafa uppfyllt óskir eigandanna svo sem frekast má verða. Þó varð að nokkru leyti að binda sig við reglur og lög, sem gilda í Bæjaralandi varðandi stíl. Stórir glerveggir og víðar svalir og sólríkar gefa útsýn um blóm- legar byggðir nærlendis. Þrátt fyrir alla rausn byggingarinnar var þess vandlega gætt að gleyma engu smáatriði. Stórborgarbúar vænta þess að geta not- ið hvíldar og sólar í sveitagörðum sínum, vilja hafa þau afskekkt og fjarri öllum skarkala. Ovíða prýða þessir kostir svo einn stað sem hér. Og þess var gætt eftir kostum að byggingarlagið væri í sem mestu samræmi við umhverfið. Hægt er að njóta hins fagra og hrikalega fjallalands- lags hvar sem maður er staddur í húsinu, hvort heldur í svefnherbergjum, vinnuher- bergjunum eða á svölunum. Og þegar dags- ljósið dvín skína ljósgeislarnir útum hina risastóru glugga hússins og varpa ljóma á nágrennið. Eftir erilsama daga og amst- ur og annríki borgarlífsins er ákjósan- legt að njóta friðar og hvíldar á slíkum stað. i I setustofunni er einnig óbrotinn en smekklegur arinn. Handan við eru svalir. tísýnið er lika undurfagurt. 1 setustofunni er lítill krókur í einu horninu. Þaðan er gengið beint út í andvarann á svölunum. 4 10 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.