Vikan - 11.12.1958, Side 13
Hvað segir Birgette við þessu?
Haft er eftir franska
leikaranum Charles, Boyer,
að Frakkar telji Birgitte
Bardot langt frá því að
vera glæsilegustu og vin-
sælustu kynbombuna sína.
Boyer segir, að þeim finnist
Martine Carol miklu girni-
legri og auk þess hefur hún
einn kost, sem Bardot skort-
ir víst alveg, Martine er
nefnilega mjög gáfuð.
Hérlendis hafa verið
sýndar allmargar myndir
með Martine Carol, meðal
annars Madame Dubarry,
sem Austurbæjarbíó sýndi
fyrir nokkrum árum.
Beztu
leikararnir
Samkvæmt atkvæða-
greiðslu, sem fram fór
í Bandaríkjunum um
b e z t u leikarana, eru
eftirtaldir álitnir beztir:
William Holden, Gregory
I’eck, john Wayne, Clark
Gable, .Gary Cooper,
Gary Grant, James Stew.
art, og Yul Brynner.
Eina konan á listanum
er Ingrid Bergman. Aðr-
ar leikkonur hlutu hverf-
andi fá atkvæði í sam-
anburði við hana.
Elvis slær sér upp.
Elvis Presley þykir kunna
mjög bærilega við sig í
Þýzkalandi, en þar gegnir
hann herþjónustu. Hann ku
þegar hafa náð sér í kven-
mann, en því miður vitum
við ekki nafn hennar. Það
er líka eins víst, að hann
hafi krækt sér í nýja kær-
ustu, þegar þetta blað kem-
ur út.
Samkvæmt beiðni ótelj-
andi aðdáenda Presleys
birtum við heimilisfang
hans, sem er:
3.US Panzerdivision, 32.
Panzer-Bataillon, Baracke
3707, Friedberg/Hessen,
Germany.
Alltaf
Jacques Bergerac (fyrr-
verandi eiginmaður Ginger
Rogers) og Dorothy Malone
hafa sézt mikið saman und-
anfarna mánuði. Talið er
víst, að þau gangi í heilagt
hjónaband áður en langt um
líður.
Missætti?
Sá orðrómur komst
á kreik í Hollywood
á dögimum, að Sue
og Alan Ladd, sem
hafa verið gift í
f jölda mörg ár, væru
nú búin að fá nóg
hvort af öðru og
hyggðu á skilnað. Að-
spurð neitaði Sue
þessu og sagði hina
mestu fásinnu. Alan
hefur ekkert látið
heyra frá sér um
málið enn.
Vinsæll í Þýzka-
landi
Peter Kraus er um þessar
mundir eftirlætisgoð þýzks
æskufólks. Hann hefur leik-
ið í allmörgum kvikmyndum
við góðan orðstír, en eink-
um hefur hann öðlast hylli
unglinga fyrir söng sinn,
enda eru þær hljómplötur,
sem hann hefur sungið inn
á orðnar mjög margar og
allar hafa orðið metsölu-
plötur.
Janet lenti í slysi.
Janet Leigh og Tony
Curtis, sem vænta um
þessar mundir bams
númer tvö, hafa lent í
tveim umferðaslysum
síðasta mánuðinn. Hið
seinna var harður á-
rekstur milli bifreiðar
Tonys og bifreiðar, sem
ók framan á hann. Þykir
sérstök mildi, að Janet
skyldi ekki slasast
hættulega eða missa
barnið. Hún skrámaðist
lítillega í bæði skiptin.
Caterina leikur
á ný.
Caterina Valente, söngdís-
in fræga, hyggst nú hefja
kvikmyndaleik að nýju, en
hún hefur ekkert leikið s.l.
eitt og hálft ár.
Hún er gift Eric van Aro
og eignuðust þau son fyrir
nokkru. Drengurinn hefur
verið vatni ausinn og hlaut
hvorki meira né minna en
fjögur nöfn Eric Philipp
Druna Scholz van Aro.
Hljótt um Virginiu.
Síðustu árin hefur verið heldur hljótt um Virginiu
Mayo, sem á sínum tíma var nefnd „Fegursta kona
heimsins“ innan Hollywood klíkanna. Hún lék i fjölda
mynda, meðal annars á móti Danny Kay í allmörgum
myndum. Hún hefur verið gift Michael O’Shea i ellefu
ár, en hann var einnig allfrægur leikari. Til að hressa
upp á forna frægð létu þau boð út ganga að þau ætl-
uðu að skilja. Varð allur kvikmyndaheimurinn felmtri
sleginn og bragðið heppnaðist, Virginia og Michael voru
á allra vörum og á forsíðum flestra kvikmyndablaða.
Fengu bæði girnileg tilboð út á þetta, sem þau tóku
vitaskuld tveim höndum. Nú, þegar allt leikur í lyndl
fyrir þeim á ný, hafa þau tjáð fréttamönnum, að þau séu
alveg hætt við að skilja!
Enu um þrenninguna.
Um ekkert er meira rætt en skilnað Eddie Fisher
og Debbie Reynolds og hlutdeild Elizabethar Taylor í
málinu. Aðdáendur Liz hafa þúsundum saman snúið
baki við henni og hætt að sækja myndir hennar. Til
marks um það má nefna, að nýjasta mynd hennar
Köttur á heitu tinþaki var sýnd i rúma viku í Banda-
ríkjunum og aldrei fyrir fullu húsi. Þeir fáu sem fóru,
sögðust aðeins fara vegna Pauls Newman, sem leikur
annað aðalhlutverkið. Af öðrum myndum Liz er sömu
sögu að segja.
Atburður þéssi hefur rifjað upp hjá fólki sams konar
atvik, sem átti sér stað fyrir meira en 25 árum. Mary
Pickford, hin fræga stjarna þöglu myndanna lifði þá í
farsælu hjónabandi með Douglas Fairbanks Sr. Aðal-
vinir þeirra hjóna voru Sylvia Ashley og maður hennar
(Sylvia þessi giftist síðar Clark Gable, en skildi við
hann eftir tveggja ára sambúð). Þegar Ashley svo
lézt skyndilega voru Mary og Douglas helztu huggarar
Sylviu. Endaði þetta með þvi, að Sylvia og Douglas
urðu ástfangin hvort af öðru og skildi hann við Mary
og kvæntist Sylviu. Hjónabandið var lengst af ger-
samlega misheppnað og endaði með skilnaði rúmu ári
síðar.
Marlon hlaupinn frá konu sinni
Marlon Brando og Anna
Kashfi eru nú endanlega
skilin. Þau kynntust í Ind-
landi og talck Anna honum
trú um, að hún væri al-
indversk. Marlon, sem löng-
um hefur verið talin sér-
vitur og er haldin ómót-
stæðilegri löngun til að vera
öðruvísi en annað fólk, varð
þegar hrifinn af stúlkunni
og giftust þau eftir skamma
kynningu.
Er giftingarfréttin kom í
enskum blöðum, ásamt
mynd af hjónunum, þekkti
enslcur skrifstofumaður þar
dóttur sína sem hina ind-
versku brúði. Gerði hann
þegar heyrum kunnugt, að
Anna væri aldóttir þeirra
hjóna og ekki svo mikið sem
dropi af indversku blóði
í æðum hennar. Aftur á móti
hefði hún alltaf haft gaman
af að mála sig og klæðast
eins og indverskar konur.
Er Marlon komst að
þessu reiddist hann ofsalega
og heimtaði samstundis
skilnað. En þá var Anna
vanfær og samþykkti Mar-
lon að biða þar til barnið
væri fætt. Sonur þeirra
fæddist síðastliðið vor og
▼ar nú álitið að allt myndi
falla í ljúfa löð milli þeirra,
því að Marlon virtist mesti
fyrirmyndarfaðir, eins og
áður hefur verið skýrt frá
hér í blaðinu.
En sonurinn getur greini-
lega ekki haldið hjónunum
saman því að nýjustu frétt-
ir frá kvikmyndaborginni
herma, að Marlon sé stokk-
inn að heiman og hafi ekki
einu sinni látið svo lítið að
kveðja önnu að skilnaði.
Anna hefur nú fengið bréf
frá lögfræðingi Marlons og
segir þar að auk þess sem
Marlon krefjist skilnaðar
tafarlaust, heimti hann yfir-
ráðarétt yfir syninum.
Kim trúlofast?
Kim Novak og Mac Krim
eru nú farin að vera sam-
an aftur. Þau voru lengi tal-
in trílofuð, en Kim sagði
sonum upp, þegar hún
kynntist -hinum margumtal-
aða Trujillo. Er því almennt
fagnað, að þau skuli vera
tekin saman á nýjan leik.
VIKAN
13