Vikan


Vikan - 11.12.1958, Page 14

Vikan - 11.12.1958, Page 14
„Þarna er „Herinn". þessu gauli sím Svipmyndir úr fórnfúsi Hér er Hjálprteðisherinn á ferð um miðbæinn. Þessar hergöngpir eru löngu kmdsfrægar og setja skemmtilegan svip á bæjarlifið. SlÐDEGI á sunnudegi. Við erum stödd á Dækjartorgi. Strætisvagn- arnir koma og fara, móðir og más- andi. Flokkur einkenmsklæddra manna og kvenna kemur syngjandi út Austurstræti. Undir er leikið á Júðra og trumbur. Hjálpræðisherinn ætlar að haida samkomu á torg- inu. Krakkahópur fylgir flokknum í hæfilegri fjarlægð og trallar: „Kom kom kom í Frelsisherinn, kom kom, dú fá köku með.“ Hópurinn tekur sér stöðu undir kfukkunni, skipar sér í hálfhring. Ung, lagleg kona stígur fram og fer með stutta bæn. Hún biður Drott- in um að blessa starfið og alla nær- stadda. Aðrii- taka ofan. Síðan er spilað og sungið um hrlð. Þyrping manna hefur nú safnast anman 1 kringum hópinn og menn sttnga saman nefjum í hálfkæringi. „Þama er „Herinn“. Sá gerir nú gagn með þessu gauli sínu“, segir slána- legur strákur, um leið og hann hend- ir sígarettunni valdsmannlega í ræs- ið. Gðmul kona við hlið hans lítur á hann og vorkunnsemin skín út úr yóðlegum svipnum. Hún veit, að ein- hveratíma flnnur þessi mikli maðin' tU annars en flottræfiislegrar sjálfs- ánægjn. Honum finnst greinilega lit- « koma tli hópsins og iætur það óspart 1 ljósi. Drukkinn maðui' situr á bekk. Hann raknar úr rotinu og lítur í krtng um sig. Kannske heldur hann kominn til Himnarikis, en svo staulast hann á lappir og reikar út á pl&n til að hitta félaga sina. Boð- jfeapur fólksins á torginu virðist ekki •íga erindi til hans, og þó. Söngurinn hættir. Hávaxinn maður *tlgur fram. Hann mælir á framandi twngu, en mál hans er Jafnóðum þýtt *f ungu konunni. Hann talar um starflö, sem Hjálpræðisherinn vinnur. Hftnn talar af mikilli mælsku og ein- Jaegnin skin út úr svipnum. Hann lýBir alla velkomna til samfélags við Krtst. Hann les úr Biblíunni. Þá glott- ir strákurtnn „Skárri er það endemis þr*slan,“ segir hann og gefur félaga sinum olnbogaskot. Félagi hans svar- ar ekki. Hann er að hlusta á mann- inn. Hann var einu sinni í Sunnudaga- skóla Hersins og hafði bæði gott og gaman af. Maðurinn talar enn. Hann segir af eldmóði frá þeim, sem geng- ið hafa Hernum á hönd og hlotið frið í sál sinni. Þegar hann hefur lokið máli sinu er aftur sungið um stund. Allstór hópur er nú saman kominn á torginu. Strákurinn snýr sér nú að félaga sinum: „Blessaður komdu og vertu ekki að hlusta á þetta pakk. Við skulum líta á barinn og reyna heldur að komast á ball, en þessa vitleysu." Hinn lítur á hann og á eins og i baráttu við sig. „Allt i lagi, Let’s go.“ Söngurinn hljóðnar ekki, þótt drengirnir fari. Hjálpræðisherinn hefur heldur aldrei gefizt upp, þótt í móti hafi blásið. — Söngurinn heldur áfram. Aðallega eru þetta eldleg trúarljóð, en þau eru flutt heilshugar. Þyrp- ingin fer sí vaxandi. Gömul kona með staf gengur um meðal fólksins. Sum- ir gefa henni peninga. Aðrir horfa stjarfir á klukkuna eða hrista ang- urværir höfuðið. „Ekki nema það þó, en sá betlilýður,“ hugsa sumir. Gamla konan hefur verið í Hemum í marga áratugi. Hún hefur lifað fyrir starfið og það hefur veitt lífi hennar fylltngu og tilgang. Hún hef- ur fylgzt með þróun Hersins en er nú komin að fócum fram. Samt reyn- h' hún að gera allt sem hún getur. Hún er ekki sínk á sporin, þótt fæt- urnir séu orðnir lúnir. Söngurinn hættir. Enn stígur maður fram úr hálfhringnum og flytur hvatntngar- ræðu. Hann eggjar menn að koma og gerast liðsrrienn I fjölmennasta her heimsins. Þeim her, sem aldrei ber önnur vopn en fórn Krists og góðan vilja hermannanna. Hann skýrir frá samkomunm, sem haldin verður í kvöld. Hann biður menn að líta inn. Engpnn geti haft illt af því, en kannske einhver gott. Eftir þetta gengur Herinn aftur ttl herbúða sinna I Herkastalann við Kirkjustræti. Söngurinn er hljóðnaður, en hann óm- ar enn í sálum nokkurra, sem ekki höfðu áður orðið varir við bergmálið af boðskap Krists í sálum sínum. . . . EIGINLEGA má telja, að Hjálp- ræðisherinn hafi verið stofnað- ur 1865. Þá hóf William Booth að halda samkomur sínar á strætum og í fátækrahverfum Lundúnaborg- ar. Starfið var svo endurskipulagt 1878 og 1880 var hreyfingin orðin all öflug. 1 milljónaborginni áttu margir ó- hægt um vik að komast af eigin ramleik í kynni við kristindóminn. Fátækt og volæði var ríkjandi í heil- um borgarhlutum. Starfið bar fljót- lega ávöxt og margir gerðust liðs- menn Hersins. Deildir voru síðar stofnaðar í flestum löndum. 1 Banda- ríkjunum er Hjálpræðisherinn mjög öflugur og þar kemur „Herópið" (War Cry) út í tæplega 20 milljón- um eintaka. Starfsemi HJálpræðishersins á Is- landi hófst 1895. Þá þegar var hafin útgáfa „Herópsins" og hefur það jafnan komið út mánaðarlega síðan. Herinn hélt fyrstu samkomu sína 12. maí 1895. Vakti samkoman mjög mikla athygli og sóttu hana um 400 manns, en íbúafjöldinn var þá marg- falt minni. Sýndi þetta þegar hinn mikla áhuga, sem ríkti meðal al- mennings á hinni nýju starfsemi, sem komtn var til landsins og hafði leitt svo margt gott af sér í ná- grannalöndunum. Margir gerðust liðsmenn Hersins. En æði margir voru honum mótsnúnir. „Herópið", málgagn Hjálpræðis- herstns á Islandi, kom fyrst út I okt. 1895. Þar segir svo: „Til hvers er þessi hernaður og þetta heróp,“ er spurning margra um þessar mundir. Svar vort er: Hann er vegna þess, að vér óskum að heyja stríð á íslandi gegn syndinni og öllu því, sem illt er í öllum mynd- um og um leið leitast við að gjöra mönnum skiljanlegt, hvilík blessun það er, að geta trúað á Guð með bamslegu trúnaðartrausti og þann, sem hann sendi, Jesúm Krist.“ Eirmig síðar: „En raddir hafa lát- ið til sín heyra, til þess að vara menn við að koma á samkomur vorar og ráðleggja ibúum Reykjavikurbæjar að sneiða hjá oss — auðvitað megum vér búast við meiru af þess háttar, en — oss sakar það ekki." Trú Hjálpræðishermanna er sigur ljóssins yfir myrkrinu: „Ljós skal skína fram úr myrkri. Hann lét það skína í hjörtu vor, til þess að birtu legði af þekkingu vorri á dýrð Guðs, eins og hún kom i ljós i ásjónu Jesú Krists." Hjálpræðisherinn hefur látið til sin taka á mörgum sviðum. Hann rekur gesta- og sjómannaheimili í Reykja- vík, Síglufirði, á Akureyri og Isa- firði, einnig rak hann á sínum tima slík heimili á Seyðisfirði og í Hafn- arfirði. Þar er ódýrasta gistipláss á landinu, ef „Kjallarinn" er ekki tal- Kastalinn á Isafirði. Þar er Gesta- og sjómannaheimill og f samkomur haldnar. Húsið er rúmlega 35 ára gamalt. s 14 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.