Vikan - 11.12.1958, Side 23
fiÓLFTEPPI
ULLAR — GÓLFTEPPI
fallegir litir
margar stærðir
HAMP — GÓLFTEPPI
margar stærðir
mjög falleg og ódýr
TEPPAMOTTUR
liLLAR — GANGADREGLAR
70 og 90 cm.
HAMP — GANGADREGLAR
90 cm.
GÓBLÍN—GANGADREGLAR
GÓLFMOTTUR
Geysir h.f.
Teppa og Dregladeildin
í mánuðinum. Gætum við ekki farið til Florida,
Ed? Geturðu ekki slitið þig frá skruddunum
þínum ofurlítinn tíma?
— 1 næstu viku. Hvernig lizt þér á það?
— Það væri ágætt. Má ég fara að búa okkur
út?
Hún vár æst á svipinn. Conover kinkaði kolli.
— '&g skal taka saman öll þau föt, sem þarf
að þvo, sagði Brenda — og fara með þau í þvotta-
hús og hreinsun. Eg skal gera ráðstafanir við-
víkjandi Molly. Ef tii vill getur hún verið hér.
Og ég þarf að fara í hárlagningu. Aðeins ef
bíllinn væri í lagi — —
— Eg skal sjá um það á morgun, sagði Cono-
ver. En hann efaðist um, að Brenda yrði eins
áfjáð að fara til Florida á morgun, eins og hún
var í dag.
— Ég verð að leggja hart að mér til að ljúka
verkinu, sagði hann. — Eg verð að vinna í alla
nótt, vina mín.
Ráðagerð Conover’s til að koma Tom Dugan
fyrir kattarnef var mjög vel samin. Og hann
hafði gengið úr skugga um, að hún hlaut að
heppnast. Hann hafði komið sprengju fyrir í
öskju, og þessa sprengju hafði hann búið til
sjálfur. Hann ætlaði að koma þessari sprengju
fyrir í vélarhúsinu á bil Dugans og leggja það-
an þráð til ræsisins i bílnum. Og þegar stigið
var á ræsirinn, mundi sprengja springa. Þetta
var sterk sprengja, nægilega sterk til þess að
sprengja bilinn í loft upp og bílskúrinn líka.
Fyrir Conover, sem var eðlisfræðingur, hafði
þetta verið barnaleikur einn.
Og hann mundi aldrei verða grunaður. Rann-
sóknir hans um þessar mundir, voru á allt öðru
sviði. Og auk þess vissi hann, að aðstaða Tom
Dugans í undirheimum var þannig, að engum
mundi detta Conover í hug. Svona sprengjur
notuðu glæpamenn oft til að ryðja keppinaut
sínum eða fjandmanni úr vegi. Lögreglan mundi
leita meðál glæpalýðsins að fjandmanni Dugans.
Henni mundi aldrei detta í hug að leita annars-
staðar.
Morguninn eftir fór Conover snemma á fætur.
Hann hafði komið sprengjunni fyrir í bíl Dug-
ans kvöldið áður. Ef allt færi samkvæmt venju,
mundi Dugan fara klukkan ellefu út að bílskúrn-
um, stiga inn í bílinn, stíga á ræsinn — og
deyja. Það gátu engin mistök orðið.
Conover kom niður til morgunverðar nokkrar
mínútur yfir níu og um leið og hann settist við
borðið spurði hann Molly, hvort Brenda væri
komin á fætur. Brenda svaf oft fram eftir á
morgnana. En stundum kom hún þó til morgun-
verðar.
— Frú Conover, sagði Molly — er komin á
fætur fyrir löngu og tók saman föt, sem áttu
að fara í þvott og hreinsun og svo ætlaði hún að
kaupa eitthvað. Hún fór út rétt áður en þér
komuð niður. Hún var með mikið meðferðis.
En það er allt i lagi. Hún ætlaði að fá lánaðan
bil herra Dugans.
Conover spratt á fætur og allir vöðvar hans
urðu spenntir. — Bíl Dugans? æpti hann.
Molly kinkaði kolli. — Já, þvi ekki það. Maður
frá herra Dugan skrapp hingað með lyklana í
gærkveldi. Hann sagði henni, að herra Dugan
þyrfti ekki á bílnum að halda fyrr en klukkan
ellefu. Hann sagði----------
Conover hljóp til dyranna, en áður en hann
komst til hurðarinnar, heyrðist geysileg spreng-
ing og húsið nötraði á grunninum. Molly hljóp
framhjá honum, en Conover fór ekki á eftir
henni. Bergmálið af sprengingunni var hljóðnað.
Og allt sem hafði gefið lífi hans gildi, var líka
horfið.
SPAIiG
Nonni: Sendi hún frænka þin þér gæs á jól-
unum eins og í fyrra?
Hans litli: Samq, sem. Hún kom bara sjálf!
„Tommi,“ sagði sunnudagaskólakennarinn,
„geturðu nefnt mér tvennt, sem er nauðsynlegt
við skirnina?”
„Já,“ sagði Tommi, „vatn og barn.“
I-Iann: Það eru tvö tímabil í ævi karlmannsins,
sem hann skilur konur ekki.
Hún: Nú, hvaða tímabil eru það?
Hann: Áður en hann kvænist og eftir það.
íslenzkt
mannlíf
Listrænar frásagn-
ir Jóns Helgasonar af
íslenzkum örlögum og
eftirminnilegum at-
burðum. Myndskreytt
af Halldóri Péturs-
syni.
Leyndardómar Páska-
eyjar.
Hin heimsfræga
ferðabók Thor Heyer-
dahl, prýdd 62 af-
burðafallegum lit-
myndum. Fegursta
ferðabók, sem hér hefur verið gefin út.
Alltaf sami
strákurinn
Óviðjafnanlega
skemmtilegar endur-
minningar rithöfund-
arins og ævintýra-
mannsins Peter Tutein, prýddar fjölda
teikninga eftir marga helztu teiknara Dana.
Systurnar Lindeman
Litrík og spennandi verðlaunaskáldsaga
eftir Synnöve Christensen. Bók, sem hefur
farið sigurför úr einu landinu í annað.
Ævintýri
tvíburanna
Hörkuspennandi
unglingasaga eftir
Davíð Áskelsson um
ævintýri og þrek-
raunir tveggja mun-
aðarlausra bræðra. — IMargar myndir eftir
Halldór Pétursson.
Staðfastur strákur.
Bráðskemmtileg saga handa drengjum
eftir Kormák Sigurðsson, prýdd mörgum
myndum eftir Þórdísi Tryggvadóttir.
IVIARSELÍIVIÓ
Spænska bamasagan, sem samnefnd
kvikmynd var gerð eftir. Sagan af Marse-
línó er unaðsleg barnabók, fögur og hug-
þekk og sannkölluð jólabók. Hún er prýdd
fjölda mynda.
IÐUNN
SKEGGJAGÖTU 1 — SlMI 12938
VIKAN
23