Vikan - 11.12.1958, Side 25
ÞRAUTIR OG ÞANKABROT
Hvaö eru kisurnar margar?
Ef þið setjið allar þessar myndir rétt saman, kemur út eín
ákveðin mynd. í>ið klippið myndimar út og límið á pappa
eða þykkan pappír. Síðan má lita myndina til að gera hana
enn skemmtilegri.
Áður en þið byrjið ættuð þið að spreyta ykkur á að gizka
á, hvað margir kettir koma í ljós, þegar myndimar hafa
verið settar saman.
Hvenær eiga þeir afmæli?
Allan, Ben, Gtirl og Dan finnst öllum mjög gaman að eiga
afmæli. En nú hafa þeir eitthvað ruglast í ríminu og geta ekki
alveg komið fyrir sig, hvenær þeir eiga afmæli. Viljið þið nú
okki reyna að hjálpa þeim. — Afmæh Allans, sem er í októ-
ber, er 15 dögum áður en Ben á afmæh. Afmæli Carls er 23 dög-
um áður en afmæli Dans og 24 dögum seinna en afmæh Bens.
Svarið er hér fyrir neðan, en þið megið náttúrlega ekki kíkja.
TÖFRABRAGÐ
Það er alltaf gaman að töfra-
brögðum. Þið ættuð að reyna
þetta hér á eftir:
Töframaðurinn skrifar töl-
una 1000 á pappírsörk og hefru’
dálítið bil á milli tölustafanna.
Síðan réttir hann einum áhorf-
endanna blýant og blað og bið-
ur hann að skrifa töluna á sitt
blað — og það skilyrði er sett
að hann lyfti ekki blýantinum
frá blaðinu meðan hann skrifar.
Þegar sá lýsir því svo yfir,
að það sé ómögulegt gerir töfra-
maðurinn það þannig:
Fyrst brýtur hann örkina
saman. Síðan dregur hann blý-
antinn eftir brúnunum, eins og
sýnt er á myndunum. Þegar
örkinni er flett út kemur talan
1000 í Ijós á efra blaðinu, eins
og töframaðurinn lofaði.
‘OQ‘1 uuijnxjBq
So Jtrapjii qx jnxnq ‘0Q‘ZZ JUjsoy uBd^jj -jnupjjj Qf ;joag
•juuubC ’x ubq ‘jaqrao
-sap '6 IJBq ‘joqraoApu -gx uoq ‘J9q9X>[o x8 uBpy ;joog'
— Haraiju jiíu} uSio jííuioaji
‘Q ‘61 ‘6 =9oj
BXSgeM ‘Qx ‘XI ‘L =eoJ JnuuQ -gx ‘g ‘IX VQJ n;sja .-imioQ
— 'BjuS'Bjujsniox
•umui^xsÁs xsnjjtS Jijxpp So JigBQ .‘joag'
-- ^UIUSIMBI J9 J0AJJ
TÖLUSTAFAGÁTA
Skrifið tölurnar sem svífa í kringum töframanninn í reit-
ina. Vandinn er sá að úr hverjum þrem reitum á að komq
út talan 33, bæði lóðrétt og lárétt.
Þið megið ekki vera lengur að því en tvær mínútur.
Reikningsþraut.
1 verzlun einni kosta húfa og buxur, eins mikið og kápa.
Kápa og tvennar buxur kosta 52,50. Tveir hattar og einar
buxur kosta 30.00 krónur.
Reiknið nú út, hvað hattur, kápa og buxur kosta.
Þið eigið helzt ekki að vera lengur en tvær mínútur að finna
réttu lausnina.
Hver er lausnin?
Eg þekki unga nýgifta frú og faðir hennar er mágur eigin-
manns hennar og systir eiginmaims hennar er stjúpmóðir
hennar. — Botnið þið í þessum ruglingi. Reynið að finna út,
hvað rétta svarið er.
Hvað er á myndinni?
Ef þið litið myndina hér komist þið að óvæntri niður-
stöðu. Eins og þið sjáið, virðist myndin ekkerfc annað en
misstórir reitir, með einhverjum bókstöfum í, en þegar þið
hafið lokið við að lita kemur annað hljóð í strokkinn.
Reitina, sem bókstafurinn R er, á að lita með rauðu, þar
sem G er, grænt, Br = brúnn, Bk = svart, Y = gult, V =
fjólublátt, P = bleikt.
IGKAN
25