Vikan


Vikan - 08.10.1959, Qupperneq 2

Vikan - 08.10.1959, Qupperneq 2
CUMMINS dieselvélar til þungaflutninga Cummins J-6 dieselvélarnar sem henta í alla stærri bíla eru frá 95—175 hestöfl. CUMMINS dieselvélarnar eru auðveldar í niður- setningu. CUMMINS PT olíukerfið samanstendur af 188 hlut- um í samanburði við önnur olíukerfi, sem hafa allt að 450 hluti. CUMMINS dieselvélin er endingargóð og sérlega sparneytin. if CUMMINS dieselvélin er notuð í 55% allra diesel- vörubíla í Bandarikjunum. • I U! ■ lÍ CUMMINS gfg «»11« IIIAr Sími 17450 BARNAVAGNAR Hinir viðurkenndu hollenzku Van Wervcn barnavagnar fást nú í tízkulitunum: Birkihvítir Beinhvítir Beigilitir Ljósbláir Dökkbláir Gráir Einnig tvílitir. Sendum í póstkröfu um allt land Heildverzlunin Amsterdarn Kæra Vika. Mig langar til að spyrja þig ráða. Svo er mál með vexti, að mér þykir allt áfengi vont og áhrifin af því, að svo miklu leyti sem ég hef fundið þau, því verri. Þetta veldur mér mestu vandræðum og leiðindum, eins og þú getur skilið, því að eiginlega get ég hvergi taiizt í húsum eða bílum hæf, þegar jafnaldrar mínir eru að skemmta sér, því að ég verð þar alls staðar utanveltu fyrir bragðið. Ég hef miklar áhyggjur af þessu, því að það er ekkert gaman að geta ekki verið samkvæmishæf, bara fyrir þetta, þvl að öðru leyti held ég, þó ég segi sjálf frá, að ég standi ungum stúlkum yfirleitt ekki að baki. Hvað á ég að gera? Sjanslaus sextán ára. Satt bezt aS segja, sjanslaus mín, þá vil ég ekki, allra hluta vegna, trúa því, aS þú skrifir bréf þetta í álvöru. En sé svo, þá skaltu reyna aS hugga þig vió þaS, aS þaS er öllu meiri ástœSa til aS hafa áhyggjur af jafnöldrum þínum en sjálfri þér, og ef tiSarandinn er í rauninni slíkur, aS ung og heil- brigS stúlka telji sér þaS til vankanta, aS hún befur óbeit á áfengi, þá er þarna á ferSinni víStækara og álvarlegra vandamál en svo, aS því verSi gerS viSeigandi skil í bréfadálki. En eitt gott ráS get ég gefiS þér. Reyndu aS_ leita félags viS þær eSa þá, sem ekki finna þér þaS til foráttu, aS þú ert frábitin víni. ÞaS er ótrúlegt, aS þú kemst þá ekki aS raun um, aS ungt fólk getur skemmt sér — og meira aS segja skemmt sér mjög vel — án þess aS áfengi sé meS í leiknum. HvaS á barniS aS heita? Kæra Vika. Leggðu okkur nú iið. Við eignuðumst telpu um daginn, og nú erum við í vandræðum með, hvað við eigum að láta hana heita. Þetta er fyrsta barn- ið okkar, og við kærum okkur ekkert um að fara að koma upp nafni foreldra okkar eða annarra nákominna, en viijum helzt velja telpunni eitthvert fallegt nafn, sem þó er ekki svo almennt, að það sé orðið hversdagslegt og hvimleitt í munni. Hvert eigum við að snúa okkur? Er ekki til neinn listi yfir islenzk nöfn? Hvar eigum við að leita að fallegu og þó óvenjulegu kvenmannsnafni? Ung hjón í Vogunum. Ég veit ekki meS vissu, hvort slíkur nafnalisti fyrirfinnst, en ef svo er, þá hlýtur sóknarprestur aS hafa hann undir höndum. ÞaS er sannarlega ekki vandálaust aS velja barni nafn, sem er í senn fállegt og óvenjulegt — livernig væri aS fletta upp í nafnaskrá GuSna Jónssonar, prófessors, í Islend- ingasagnaútgáfunni ? Kæra Vika, Ég vildi þakka ykkur fyrir skemmtunina, sem ég liafði af því að lesa og fylgjast af myndum meS ferðum lijónanna, sem komu til Reykjavík- ur í fyrsta sinn á ykkar vegum og annarra. Ég lifði þessa ferð með hjónunum, og allt, sem ég sá, verkaði eins og nýtt á mig. En við, sem búum hér, höfum alizt hér upp, tökum allar framfarir í Reykjavík sem sjálfsagðan hlut. Við erum hætt að sjá háskólann og aðrar merkilegar byggingar, og þegar ég svo — á þessu ferðalagi minu með hjójnmum — hitti lögregluþjóninn, fór ég, næst þegar ég átti erindi í bæinn, að virða fyrir mér lögregluþjónana okkar. Og sjá! Ég hafði ekki tekið eftir ]iví, að þeir eru miklu yngri en gerðist. Hafið þökk fyrir að leyfa okk- ur að sjá Reykjavík með gestsaugum. Guðmundur B. Pósthólf 1211. — Sími 23023. V I K A N

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.