Vikan


Vikan - 08.10.1959, Side 26

Vikan - 08.10.1959, Side 26
Tandur þvottalögur er mildur og ilmandi fer vel með hendurnar. TANDUR léttir og flýtir uppþvottinum, og skilar leir og borð- búnaði fitulausum. TANDUR þvær Nælon og önnur gerfiefni, Ull og öll viðkvæm LOFORÐ SEM ÉG ÆTLA AÐ HALDA. Framh. af bls. 11. min. Ég leit á heiminn vantrúaraugum. Eiríkur tók eftir því, að ég \'ar ekki eins og ég átti að mér að vera. Ég hafði orðið fullorðin þessa nótt. Ég spurði Eirik í hreinskilni, hvort hann elskaði mig. Ég gleymi aldrei særðu augna- ráði hans. Hann faðmaði mig að sér og kyssti mig aftur og aftur. Hann hafði ekki beðið mín, vegna þess að hann þjáðist af ólæknandi sjúkdómi, sem hrjáði hann öðru hverju, og þessi sjúkdómur gat síðar meir orðið honum að bana. Ég hló og grét í senn, því að ég elskaði hann svo heitt, að ég þráði að standa við hlið honum í blíðu og stríðu. Ég vildi heldur lifa með Eiríki í 10 daga sem eiginkona hans en með öðrum manni í 50 ár. Ég hafði allt að vinna og engu að tapa. ' Við giftumst þrátt fyrir óáængju foreldra hans. Brúðkaup okkar fór fram í kyrrþey. Aðeins Brun rektor og kona hans ásamt nokkrum kunningjum okkar frá berklahælinu komu í brúðkaupið. En ég held, að aldrei hafi hamingjusamari hjón far- ið frá altarinu. Eiríkur fékk góða stöðu í banka, því að hann vildi ekki vera háður foreldrum sínum lengur. Við fluttumst í yndislegt litið einbýlishús í út- jaðri borgarinnar. Við vorum ósegjanlega ham- ingjusöm. Við máttum ekki vera að þvi að hugsa um skugga þann, sem sífellt hvíldi yfir okkur, — sjúkdóminn. Brátt varð mér ljóst, að ég átti von á barni. Og þegar Hákon litli sá í fyrsta sinn dagsins ljós, fannst okkur ekkert geta gert okkur mein fram- ar. Um þetta leyti voru foreldrar Eiríks ekki heima, svo að sjálfsagt þótti að láta frú Brun halda Hákoni undir skírn. Ég hafði reyndar hug- boð um, að Eiríkur vildi sem minnst sinna for- eldrum sínum. Þess vegna heimsótti ég foreldra hans, og þau tóku mér báðum höndum. Þau höfðu saknað Eiríks svo mjög, og nú báðust þau fyrirgefningar á kaldri framkomu sinni gagnvart mér. Nú virtist allt leika í lyndi. Og allt lék líka í lyndi, þar til reiðarslagið kom. Morgun einn, þegar ég vaknaði, sá ég, að Ei- rikur var farinn. Ég flýtti mér fram úr til þess að ganga úr skugga um, hvað væri á seyði. Á grasflötinni fyrir utan húsið sá ég ömurlega sjón, — Eirík! Ég flýtti mér út. Hann var hálf- meðvitundarlaus, og andlit hans var afmyndað af sársauka. En skyndilega ljómaði hann. Hann sneri sér að mér og sagði: — Þakka þér fyrir allt, Inger. Þá er þessu lokið. Farðu vel með sjálfa þig og Hákon. Síðan tók hann í hönd mína, og andartaki síðar var hann dáinn. • Ég man ekki gerla, hvað gerðist eftir þetta. Það var líkast martröð. En eins og oft áður stappaði pabbi í mig stálinu, pabbi, sem alltaf fylgdi mér. Mér fannst hann segja, að ég mætti ekki verða eins og marnrna. Ég barðist enn. Ég byrjaði aftur i skólanum, en þar stunda ég enn nám. Hákon litli er annað- hvort hjá Bruns-hjónunum eða hjá tengdafor- eldrum mínum. Nú er ég 23 ára. Lífið hefur ekki brosað við mér. Líf mitt hefur síður en svo verið viðburða- snautt, — þar hafa skipzt á skin og skúrir. Eirikur er ekki dáinn i minni vitund, því að í augum Hákonar sé ég sama hreinskilnislega glampann og í augum föður hans. Og Hákon litli fitjar meira að segja upp á trýnið eins og Eirikur gerði stundum. Já, vesalings mamma lifnar meira að segja aftur í litlum hárlokki, sem fellur nið- ur á ennið og ógerningur er að hemja. Nú horfa blá augu hans á mig. 1 augum hans bregður fyrir sakleysi og trausti. Ég horfi á hann. Aldrei skal ég brjóta það loforð, sem ég gaf Eiríki. Ég ætla að hugsa vel um Hákon og sjálfa mig. Ég ætla aldrei að láta bugast, heldur mæta öllu mótlæti með festu og hugrekki. efni sérslaldega vel. fl I V TANDUR er tilvalið til gólfþvotta og hreingerninga, fer vel með málningu, lakk og aðra viðkvæma fleti. Tandur gerír tandurhreint 26 \TKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.