Vikan


Vikan - 10.12.1959, Qupperneq 45

Vikan - 10.12.1959, Qupperneq 45
Skólavörðustíg 13. Sími 17710. alveg ágætt, ef þú gætir komizt eitthvað í burtu um tíma, meðan þú ert að venjast þessu öllu. lalaðu um það við mömmu þína, hún skilur þig alveg áreiðanlega. — Beztu óskir til þín, Sigga mín. Aldís. Tvær einmana, S. og G., vilja ekki, að bréf þeirra sé birt. Hér kemur svarið. Það er alltaf erfitt að ráðleggja í þessum efnum, en eftir því sem þið skrifið, þá er ómögulegt að treysta þessum ungu mönnum, það finnst mér öll framkoma þeirra berá ótvírætt vitni um. Þeir virðast hugsa um það eitt að forða sér. Nú verðið þið að gera ykkur ljóst, að þið' verðið sjálfar að ráða fram úr þeim erfiðleikum og vandamálum, sem ykkar kunna að bíða, og því, sem skiptir máli um Iíf ykkar og framtíð. Þið eruð báðar ungar og munuð bráðlega sigrast á þeirri einmanakennd, sem ykkur finnst svo óbærileg nú. Þetta finnst ykkur kannski ótrúlegt núna, en svona er lífið, og tíminn læknar öll sár. Með ósk um, að allt snúist ykkur til betri vegar, kveð ég ykkur. Aldfs. Kærastinn min er latur og tillitslaus, Aldís min. Ég hef verið að brjóta heilann um svolítið, seni liggur mér á hjarta, og langar til að leita til þín og spyrja þig, hvað þér finnist. Svo er mál með vexti, að ég er trúlofuð þrítugum manni. Hann hefur ágæta vinnu, en ég er oft í vafa um, hvort honum þykir nokkuð vænt um mig. Öll framkoma hans bendir til, að svo sé ekki. Hann er sjaldan tillitssamur við mig eða góður, og enn sjaldnar Þykist hann hafa efni á að bjóða mér út. Það er auðvitað gott og blessað, að hann er ekki eyðslu- samur, en einhvern veginn kemur það illa við mig, hvað hann er samansaumaöur. En það. sem ég tek mest nærri mér, er það, að þegar ég hef verið heima hjá honum á kvöldin, nennir hann ekki að fylgja mér heim. Það er nokkuð löng leið, og Þegar ég er að búa mig undir að fara, byrjar hann að geispa og tala um, hvað hann verði að vakna snemma á morgnana. Þegar við erum með öðru fólki, er hann frekar kuldalegur við mig. Ég veit ekki, hvað ég á að halda. Af hverju vill hann endilega giftast niér, þegar honum virðist eiginlega vera alveg nákvæmlega sama um mig. Ég á svo mikla ástúð og blíðu að gefa, að ég er hálfhrædd við að binda mig manni, sem ekkert getur gefið mér í staðinn nema kulda. — Hvað á ég að gera? Kata. Kæra Kata. Ef það væri jafnauðvelt að svara öllum bréfum og þínu. Þú átt að þakka þessum óvenjulega ógeðfellda náunga fyrir samver- una og gefa honum frí. Þér finnst kannski erfitt að missa af þessu tækifæri til að eigr.- ast eigið heimili, en ef þú tekur honum af þeirri ástæðu, verður þú að gera þér ljóst, að af þessum manni geturðu nldrei vænzt umhyggju né skilnings. Hann á ekki þær til- finningar til, og hæpið er, að það breytist, þó að hann giftist. Engin kona getur búið með óforbetranlegum svíðingi, nema því að- eins að hún eigi sjálf einkafjármuni. Beztu kveðjur. Aldís. Qala ojf Condon Kvensnyrtivörur. Oid spicc Herravörur. Hichard •ttudnut Permanent. Xjaxa TDcodorant Þetta eru leiðandi verksmiðj- ur hver á sínu sviði. Einkaumboð: Pétur Pétursson Hafnarstræti 4. Sími 11219 — 19062. 45

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.