Vikan


Vikan - 10.12.1959, Page 48

Vikan - 10.12.1959, Page 48
Þér eigið kost á því — «ð veyna VVÍ vitamingeel Vítamín baö er jólabaðið í ár Framleiðandi er hin heimsþekktai Sívaxandi sala þess um allan heim verksmiðja UHU Werk H.u.M. sannar gæðin. Fischer Buhl Baden VisnoNttur Sveinbjörn Beinteinsson tók saman Hestavísur. Iieyndi á beinin föst og fim flaums í þrija svipnum; líkt og á skeri brýtur brim, braut á stólpagripnum. Svo kvað Grímur Thomsen um Kóp. Islendingar hafa ort margt um hestinn sinn, enda var hesturinn þeirra yndi og auður. Páll Ólafsson segir þetta um Vakra-Brún: Þegar Brúnn minn teygði tá og taumana einsog þvengi, þessir köldu klettar þá kváðu á aðra strengi. Oft er söknuður í tónum þegar horiins félaga er minnst: Ellin hallar öllum leik, er því valla að státa; hún mun alla einsog Bleik eitt sinn falla láta. Vísan er eftir Björgu Sveinsdótlur á Kílakoti í Kelduhverfi. Björg var móðursystir Kristjáns Jónssonar skálds. Stephan G. Stephansson, segir mikið í stutlu máli í þessari vísu: Leið hefur vanda fákaflokkur fólki handa rutt ntilli stranda — og með okkur allt vort landnám stutt. Jón Þorsteinsson á Arnarvatni orti um Litlu Rauðku: Sporið hreina og þrekið þitt þúsund meinum bifa; þú ert eina yndið mitt ef ég reyni að lifa. En hér kveður viö nýjan tón; vís- an er eftir ísleif Gíslason á Sauðár- krók og um Guðmund Jónasson, sem öllum er kunnur fyrir óbyggða- ferðir: Yfir heiðar, fen og flár, fjöll og breiðar jökulsár, sér til heiðurs síð o gár sínum reið á hemlaklár. En þá er við komin í bilaöldlna og væri gaman ef lesendur vildu senda visur um hin nýja farartæki. Páll á Hjálmsstöðum átti góða hesta og orti margt um þá. Þessi vísa er um hest sem Apall hét: Sá ég Apal fáka fremst frýsa, gapa, iða; ef að skapið í hann kemst er sem hrapi skriða.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.