Vikan


Vikan - 21.01.1960, Qupperneq 7

Vikan - 21.01.1960, Qupperneq 7
Hraun. Mcr sýnist hana vanta ann- a'ð lambið. En flýtiS ykkur, því að myrkrið er að detta á. Komdu, Táta, sagði ég. Dýrið borfði tortryggið á Gauja og var á báðum áttum, en skreiddist svo á fætur og kom niðurliitt í lnimátt- ina á eftir okkur. Tíkin heldur sig alltaf við lilið- ina á þér, sagði Gaui. Hún er hrædd við þig, sagði ég. Ég hef séð miklu stærri og fal- legri hunda en þessa gömlu sinala- tík. í bíó? spurði ég. Já, — miklu stærri og fallegri. Það var tekið og skyggja, þegar við komun fram í hlíðina. Kindin styggðist, þegar hún varð manna- ferða vör, og jarmaði. Pabl)i hafði rétt fyrir sér. Þetta var Geirhyrna, en tvö lömb stukku upp, þegar hún jarmaði, og öll lögðu þau á flótta og liurfu i húmið. Rökkrið, — það lagðist yfir hraunið og lilíðina, bláleitt og undurmjúkt, fyllti hraungjóturnar, —- hláleit móða, mjúk og hlý. Ekk- ert rauf kyrrðina. Jafnvel Gaui þagði nú og svipaðist um, eins og hann væri að hlusta. Hraun allt i kring, fingerður mosi, hrjúft grjót og ilmur lyngsins, blandinn bark- andi þef moldarinnar, fyllti vit okkar. Við vorum í rökkrinu og rökkrið í okkur, sefandi mjúkt og hlýtt, og léttur andblær bærði dögg- vott grasið. Gaui þagði enn og hlustaði. Þei, þei. Það var leikið á hljóðfæri í húm'nu. Gaui rauf þögnina: Það er ' erið að leika á hljóðfæri. Það er liún Hanna, •— liún Hanna á Hrauni. Hún fékk silófón í af- mæhsgjöf í vor. iivað er hún gömul?\ Tveimur árum eldri en ég, — jafngömul þér. Gaui þagði dryklUanga stund. Svo spurði hann: Er hún lagleg? Ég ókyrrðist skyndilega, — ég vissi ekki hvers \egna. lig sá fyrir mér brún augu, ljóst hár — og gleym-mér-ei, sem hún festi í peysuna mina úti í móa um daginn. Ég átti blómið enn. Þú sérð hana á eftir. Hún kem- ur í afmælið mitt. Gaui horfði rannsakandi á mig. Ég sneri mér undan og gekk hratt heim á leið. Gaui kom þögull á eftir mér. Var það Geirhyrna? spurði pabbi. Hann sat i vindauganu á hlöðunni með tóbaksbaukinn milli handanna, horfði annars liugar út i rökkrið, og grár lokkur liafði hrunið niður á hrukkótt »nnið. Já, — og hún var með bæði lömbin. Fagurt kvöld, sagði pabbi lágt, eins og hann hefði ekki heyrt svarið. Hann hafði verið að hirða. Við hjálpuðum honum að raka sam- an slæðurnar við vindaugað, létum þær inn í hlöðu, hengdum reipin upp í sperru og settum hærurnar, mjúkar viðkomu og veðraðar, i hlöðuliornið. Gaui að tala og tala, Gaui að segja sögur. Mamma var byrjuð að bera fram af borðinu leifarn* ar *f súkkulaðinu og kökuntusa. Gaui þagnaði snögglega og svip- aðist um. Ég ætlaði að gripa tæki- færið og stinga upp á þvi við Hönnu, að við kæmum út að leika okkur. Langar þig . . . Ég þagnaði. Hún var farin. Hún hlaut að vera úti á lilaðinu. Ég stóð upp og gekk fram bæjargöng- in. Ég heyrði þrusk og nam staðar. Það var Hanna. Ég hélt þú værir . . . Ég heyrði þig koma, greip hún frain í fyrir mér andstutt i myrkr- inu. Hún kom fast upp að mér og kleip mig i handlegginn. Ég titraði, Mig sundlaði við snertinguna. Hún kom nær mér. Léttur koss, mjúkar, heitar varir, —— og grann- ir handleggir lukust um hálsinn á mér, — varir Hönnu, mjúkar, rakar . . . Til hamingju, sagði hún fljót- mælt. Ég var orðlaus. Fótatak heyrð- ist i göngunum. Gaui. Ég opnaði dyrnar i snatri, og við flýttum okkur út á hlaðið. Gaui kom á hæla okkur og virti okkur fyrir sér með torkennilegu augna- ráði. Hanna gerði hnykk á höfuð- ið og hló: Ætluðum við ekki i Framhidd á bls. 32. VIKAN 7

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.