Vikan


Vikan - 21.01.1960, Blaðsíða 12

Vikan - 21.01.1960, Blaðsíða 12
Þetta var ein- mitt stúlkan, sem hann hafði verið að leita að. Lítil, iðin, grá mús. Stutt hár, lagt á snotr- an og látlausan hátt. ;AndIitið var laglegt. svipurinn nokkuð alvarleg- ur. Hún virtist» hinn fullkomni einkaritari. Hann gæti látið hana taka til starfa núna strav án þess að nokkru væri breytt. kona, sem hann hafði með mörgum og orðskrúðugum bréfum lokkað alla leið frá Ameríku, — ákvað hann að segja Shirley upp stöðunni. Síðan hafði hann tekið að svipast um eftir einkaritara, sem yrði ekki ástfanginn af honum, og úr stórum hóp umsækjenda hafði hann valið Rut Taylor. Rut grunaði náttúrlega ekki, að það var fyrir tilviljun eina saman, að hún fékk stöðuna, — nefnilega þá, að hún hafði fæðzt með lítið, alvar- legt nef, en ekki eitt af þessum upp- brettu nefjum, sem gefa í skyn, að eigandinn sé í meira lagi ástleitmn. Hún hélt sjálf, að hún ætti Emmu frænku þá heppni að þakka, að hún hafði nú fengið stöðu sem einkarit- ari Jamiesons Porters. Það er hinn frægi Jamieson Porter, skrifaði hún til frænku sinnar, full hrifningar. Þú manst eftir honum, hann hefur sett á svið mörg leikrit, sem öll ..slógu 5 gegn": Trompetleik- arann, S'ðasta ástarævintýrið. Land hamingjunnar og fleiri. Er það ekki dásamlegt? Það var Emma frænka, sem hafði fengið hana til að læra vélritun og hraðritun, og hún hafði einnig feng:ð hana til að leita burt frá Adamsford. Þú vilt þá ekki lengur hafa mig hjá þér? hafði Rut spurt með tárin i augunum. Ég vil, að þú giftir þig, hafði Emma frænka svarað stutt og lag- gott Það eru engir ungir menn í Adamsford. Með því meinti hún náttúrlega: Enginn nógu góður handa þér, sem ég elska eins og þú værir mitt eigið barn og ég hef gengið í móður stað, síðan þú varst í vöggu . . . Og ekki nóg með Það, hélt Rut áfrarn í bréfi sínu. Hann er óvana- lega glæsilegur maður. — svo glæsi- legur, að hann hefur átt i mikium örðugleikum með einkaritara sina. Þær hafa allar failið fyrir honum. En ég hef fulivissað hann um, að ég muni ekki valda honum neir.um erfiðleikum. *"| fÚN er alveg eins og hún á að •J-t- vera, hugsaði Jamiéson Porter w með sjálfum sér. Þetta var ein- mitt stúlkan, sem hann hafði verið að leita að: lítil, iðin, grá mús, stutt hár, lagt á snotran og látlausan hátt. Andlitið var laglegt, svipurinn nokk- uð alvarlegur. Hún var 1 grárrl og yfirlætislausri dragt með litinn, hvtt- an kraga um hálsinn. Fótleggirnir voru fallegir og göngulagið kvenlegt. Hún virtist hinn fullkomni einkarit- ari. Hann gæti látið hana taka til starfa núna strax, án þess að neinu væri breytt. Nei, annars, réttast væri að gera ofurlitla breytingu. Hún ætti að ganga með gleraugu. Að þessum þönkum afloknum tók hann sér fyrir hendur að spyrja þessa látlausu stúlku spjörunum úr. Eruð þér góð í vélritun? spurði hann, eins og það hefði enga þýð- ingu. Ég næ eitt hundrað og áttatiu slög- um á mínútu, svaraði Rut Taylor. Fyrirtak, þá byrjum við strax. Ekki vantaði það, að nóg væri að gera. Liðinn var hálfur mánuður, sið- an hann sagði seinasta einkaritar- anum upp stöðunni. Hún hét Shirley Jeems, ljóshærð fegurðardís, sem hafði það til siðs að anda heitt í hnakka honum, þegar hann skrifaði undir bréf sín, og gekk i svo aðskorn- um blússum, að meira að segja honum blöskraði. Dag nokkurn kom hann að henni, þar sem hún dansaði um gólfið með frakkann hans i höndunum. Aðra höndina lagði hún bliðlega um miðjan frakkann og lagði öxl hans að vanga sínum. Hann tók því með ró, þvi að hann var rólyndur að eðlisfari En þegar hún tók upp á þvi að visa öll- um konum, sem kallast máttu augna- yndi, á brott með þeim ummælum, að hann væri á ferðalagi, — og ein þeirra var meira að segja fræg leik- ‘1/1IKURNAR liðu hver af annarri. fy Rut var farin að endurskoða afstöðu sina til fyrri einkarit- ara Porters. Hún var hætt að áfell- ast þær, hún næstum vorkenndi þeim, því að Jamieson Porter gat einfald- lega ekki að þvi gert, að hann hafði áhrif á konur, allar án undantexn- ingar. En ef hún léti hann bara ekki hafa áhrif á sig, þóttist Rut viss um að halda stöðu sinni eins lengi og hún kærði sig um eða þar til hún fyndi þann, sem hjartað kysi. Allt gekk vel, þar til Madeleine Pelham komst í spilið. Um morguninn sagði Jamieson Porter við Rut: Ég þarf að lesa yfir þrjú ný leik- rit i dag, svo að ég vil ekki að neinn ónáði mig. Sama, hver það er. 12 VIK A N

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.