Vikan


Vikan - 21.01.1960, Qupperneq 17

Vikan - 21.01.1960, Qupperneq 17
Chinchilla: Frá upphafi vega hafa konur klæðzt skinnum, jafnvel steinaldar- konurnar klæddust loðfeldum. Það var ódýrara í þá gömlu góðu daga að gefa eiginkonunni pels, því að þá þurfti maðurinn ekki annað en taka sér vopn i hönd og skunda út í skóg, kom síðan aftur með bjarnar- feld eða úlfaskinn Loðfeldirnir voru upphaflega skjólflíkur, en það hefur breytzt á þessari löngu leið, því að nú eru þeir fremur notaðir til skrauts en skjóls. Einnig eru þeir oft og tiðum beinlinis auglýs- ing um ríkidæmi dömunnar, sem feldinum klæðist. Því ríkari sem hún er, þeim mun dýrara skinn er í pelsinum. Það er um feld'na sem öll önnur föt, að það er háð duttl- ungum tízkunnar, hvaða skinn eru dýrust og finust. Fyrir aldarfjórð- ungi var silfurrefurinn alfínasta skinnið, og dömurnar báru hann meira að segja um hálsinn með haus og hala. Þar á eftir kom plat- inurefurinn, svo minkapelsinn, sem undanfarin ár hefur verið draumur allra kvenna. Hjólið heldur áfram að snúast, minkadraumurinn er tekinn að dofna, og nú er tak- markið —- chincliilla. Hann er nú dýrastur allra loðfelda Það eru að- eins örfáar þjóðhöfðingjafrúr og kvikmyndastjörnur, sem eiga slíkar lúxusflíkur. Soraya, Begum, ekkja Aga Khans, og Sophia Loren kváðu veru einar hinna fáu kvenna, sem eru svo hamnigjusamar að geta k'æðzt chinchilla. Chinchilla-dýrið lifir í S.-Ameríku, löndunum Chíle og Perú. Þetta er mjög litið dýr, um 30 sm á lengd, svipar til kanínu. Skinnið er silfurgrátt að lit og eitt hið allra mýksta, sem t:l er á nokkru dýri. Sérfræðingar segja, að hvert hár sé eiginlega samsett úr 70 ör- smáum hárum. Hvert skinn kostar um það bli 12 þús. isl kr., og i einn pels duga ekki færri en hundrað skinn. Kápan kostar þá á aðra milljón króna. ★ LITLAIt MÖNDLUKÖKUR. pels f/rir milljón Soraya fyrrum keisarafrú af Persíu er ein hinna hamingjusömu kvenna sem eiga chinchilla-pels. FYRIR KVENFÓLKIÐ Nokkur húsráð Ef maðurinn yðar hefur fengið blekblett á skyrtuna sína, þá megið þér alls ekki reyna að fjarlægja hann mcð vatni, því að það gerir hann stærri. No'ið heldur spritt, það hefur reynzt vel. Plastpokar eru til margra hluta nytsainlegir, t. d. til þess að gsyma í þeim steinkað n þvolt, því að í þcim helzt þvotiurinn mátulega rak- ur. En varizt .Tð geyma í þeim nema til næsta dags. Ef þið eruð orðin leið á þessum sa.ma lit á sinnepinu, þá er tilvalið að hræra það út msð „tómatket- chup“. Þá kemur á það nýr litur og • nýtt bragð. 250 gr. smjörl., 25 gr. möndlur, 4 eggjahvítur, 250 gr. sykur, 250 gr. hveiti, J4 sítróna. Smjörlíki og sykur hrærist þar til það er ljóst og létt. Blandið síðan í söx- uðum möndlum, sítrónuberki, safan- um úr sítrónunni, sykrinum, hveitinu og að lokum eggjahvítunum, stífþeytt- um. Bakist í velsmurðu formi, f ca. 15 mín. Ef þér notið plasthettur á sultu- krukkur, þá skuluð þér athuga, nokkrum dögum eftir að þér hafið sett hetturnar á, hvort ekki hefur set t móða innan á plastið. Móðan stafar af því, að plastið lokar svo algerlega, að sultan getur ekki andað. Þegar framreiða skal grænmetisrétti, cr ágætt að leggja eina sneið af fransk- brauði á fatið fyrst, því að hún sýgur í sig vætuna úr grænmetinu. Sama er að segja um fisk, það er tilvalið að láta brauðsneiðina um fisksoðið. Tepottur frá Arabía, Finnlandi. Arabía-leirvörurnar eru góðkunnar hér, enda margt af þeim fallegt og í nýj- um stíl. Þessir tepottar eru úr svörtum leir, með tréhaldi, sem vafið er með basti. Lokið er fremur sérkennilegt og enginn hnúður eða hald á því. Pottarnir eru til í tveimur stærðum, o" kostar hin stærri kr. 119,50, en minni gerð- in kr. 79,50. Dverg-hrærivél. Þetta hrærivélarígildi á myndinni er sannkallað hókus-pókus-verkfæri, því að það framkvæm- ir flest af því, sem venjuleg hrærivél gerir. En það þarf að halda því með hendinni niðri í ílátinu, sem hrært er í. En það er ekki svo þreytandi, þegar þess er gætt, hvað það hrærir fljótt. Fjórir mismunandi spaðar og hnífar fylgja, og þeir hræra kökudeig, þeyta egg, þeyta mjólkurdrykki, merja kartöflur, mala kaffi og möndlur og ótalmargí annað. Hræriáhaldið er þýzkt og heitir BAMIX. Verð: kr. 687,00. Bakki úr tekk-viði. Þessi fallegi bakki er íslenzk smíði og er alveg sambærilegur við tekk-muni, sem fluttir eru inn frá Norðurlönduin. Það má nota hann til ýmissa hluta, svo sem undir brauð, sem glasabakka, og svo má líka bera inn kaffi á honum. Lengdin er um 65 sm. Verð: kr. 615,00.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.