Vikan


Vikan - 21.01.1960, Page 24

Vikan - 21.01.1960, Page 24
BARNAKARLINN DEAN MARTIN MAÐURINN, sem hlær svona innilega á með- fylgjandi mynd, getur auðvitað ekki verið neinn annar en Dean Martin. Dean er ann- ars af ítölskum uppruna, og hið raunverulega nnfn hans er Dino Crocetti. Sem ungur maður söng hann inn á hljómplötur með Jerry Lewis, og heir héldu félagsskapnum áfram í kvikmyndunum. Þeir hlutu gífurlegar vinsæidir fyrir gamanmyndir, og þær jukust sífellt allt þar til þeir slitu sam- vistum fyrir þremur árum. Síðan það varð, hefur Dean snúið sér að alvarlegri leik og þykir hafa ‘ekizt vel. Hann hefur m. a. leikið i myndunum Young Lions og Rio Bravo. Sem stendur er 'iann að leika í myndinni Career, og á eftir fylgir önnur, sem heitir Who was that lady? — en i henni eru meðleikarar hans þau Tony Curtis og Jebbie Roynolds. Þá er í bígerð myndin The Bells Are Ringmg, þar sem John Wayne leikur 'samt Dean Martin. Einnig áformar Dean að ’eika í gamanmynd á þessu ári, en þar leikur Cina Lollobrigida á móti honum Hann virðist ha'a nóg að starfa, eins og sést á þessu. Um einkalíf Dean Martins er það að segja, að hann á sjö börn og segir, að það sé ails ekkert dýrara að eiga sjö en fjögur, vegna þess, að „þau yngri erfa fötin af hinum eldri, og við geymum alltaf smábarnadótið og bleyjurnar". YUL BRYNNER, hinn frægi skalli kvikmyndanna, er nú aó slcrifa, endurminn- ingar sínar meö aöstoö skrifara, sem stílfœrir og lagar til. Nýlega sagöi hann viö skrifarann sinn: Altur heimurinn heldur, aö kvilc- tnyndaleikarar séu „idjöt- ar“. Ég vil aö minnsta kosti gjarnan láta líta þannig út, aö ég sé heimspekilcga þenlcjandi „idjót“. PAT BOONE er aö leita sér aö ungri og fállegri söngkonu til þess aö koma fram meö honum i sjón- varpsþætti þeim, sem hann sér um. Kona Pats, Shirley, hefir sungiö talsvert, þar á meöal hafa þau hjónin sung- iö saman inn á hljómplötur, en Pat er þeirrar skoöunar, aö hún hafi ekki tíma til aö koma fram i sjónvarpinu meö honum. Þaö er tirna- frekt aö gæta fjögurra barna, segir hann. MICKEY ROONEY er um þessar mundir aö aöstoöa viö leikstjórn kvikmyndar- innar Einkalif Adams og Evu, — en hann leikur einn- ig annaö aöalhlutverkiö l myndinni — hitt leikur Mamie Van Doren Mickey var spuröur aö því, hx'ort honum þætti ekki erfitt aö fást viö leikstjórn, svo óvan- ur, sem hann væri á því sviöi. Hann svaraöi: — / rauninni hef ég alltaf reynt aö stjórna þessum 18 mynd- um, sem ég hef leikiö í — bara án þess aö leikstjór- arnir yröu þess varir. ítalir eiga, sem kunnugt er, margar afbragðsfallegar leikkonur, og við lend- um oft í vandræðum, þegar við veljum á milli mynda af þeim til birtingar f VIKUNNI. Þessi varð fyrir valinu f þetta blað — hún heitir Rosanna r Schiaffino — og er afbragðsfalleg. KLÆDD AYNE MANSFIELD kom stjórnendum ítalska sjónvarpsins í mikinn vanda nýlega. Hún kom til Rómar og skyldi koma þar fram í spurningaþætti og syngja eitt lag. Klukkustund áður en útsendingin átti að hefjast, mætti Jayne ásamt manni sínum, Mickey Hargitay, og var þá létt klædd og djarflega, svo sem sést á myndinni til hægri. „Mjög óheppilegur klæðnaður", sögðu stjórnendurnir og munu þá hafa haft í huga hinar ströngu regl- ur, sem gilda um ítalska sjónvarpið í sambandi við líkamlegar sýningar á þennan hátt. Mansfield var beðin um að skipta um kjól og fara í einhvern, sem næði yfir meira af hinum fögru linum hennar. Brátt var búið að útvega annan kjól í stað hins. „Mjög óheppilegur klæðnaður," sagði kynbomban hneyksluð. En nú átti þátturinn að fara að hefjast, svo að góð ráð voru dýr. Mickey gerði hvað hann gat til að fá konu sína til að skipta um kjóla — og loks lét hún til leiðast gegn því, að hún fengi fyrir það aukagreiðslu, sem nam 55 þúsund krónum. Á það var fallizt, Jayne skipti um kjól og söng lagið (myndin til vinstri), og ekki bar á öðru en línur líkamans nytu sín hið bezta. OF DJARFLEGA

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.