Vikan


Vikan - 29.09.1960, Síða 2

Vikan - 29.09.1960, Síða 2
— Upp með næturklúbba í Reykjavík — segir Todda, Eruð þið sammála? ekki lilustað í strætisvögnunum. Viltu spyrja að þessu fyrir okkur. Bless, Vika mín. Biðjum að heilsa. Vinsamlegast. Abha og Dæja. Hvers vegna ekki næturklúbbar? Sæl og bless Vika mín! Hvenær ætlum við að verða menningarþjóð í raun og sannleika? Ég á ekki við alla endaleys- una, sem stendur í blöðunum um bókaútgáfu, skáldskap og listir og svoleiðis píp sem ekkert er, lieldur menningu á alþjóða mælikvarða — að þora að lifa og vera til og haga sér eins og siðmenntað fólk. Hversvegna eru ekki allar vín- veitingar gefnar frjálsar, hversvegna er áfengis- verzlunin ekki liöfð opin alla nóttina — og hversvegna eru liér ekki neinir fínir nætur- klúbbar með verulega flottum fyrsta flokks skemmtikröftum og veitingum? Það eru ekki peningarnir, sem vantar — ég veit um marga, sem eyða allt upp í fjögur-fimm þúsund krónur um hverja helgi í bílabrennivín og partí — nei, það vántar bara menninguna og að þora að lifa. Með beztu þökktim fyrir allt það skemmti- lega efni, sem þú flytur. Vinsamlegast Todda. Kannski verður þetta ár kallað „viðreisnar- árið“ seinna meir, kannski eitthvað annað, eða þá ekki neiit. í kotþjóðrembingi sínum hefur stjórnmálamönnum okkar verið hin efnahagslega viðreisn efst í huga; það var því tími til kominn að einhver með víð, al- þjóðleg sjónarmið færi að hugsa fyrir við- reisn íslenzkrar menningar, sem ekki getur kallast beinlínis beisin þessa dagana, hefur 0 Hvernig er með bílasalana? $ Danslög hér og danslög þar % Hin göfuga sjálfsvarnaríþrótt % Hljómplötusvindl? raunar aldrei verið neitt að státa af. Og við- reisnarráðið er þarna, óvéfengilegt og öruggt; næturklúbbar, gerið svo vel — menningunni bjargað og þar með öllu saman . . . svona er þetta einfalt, bara ef einhver kemur auga á það. Útvarp í strætisvögnum. Kæra Vika. Hvernig stendur á þvi að ekki er haft útvarp í strætisvögnum, svo að maður geti fylgst með danslögunum, sérstaklega kananum, á leiðinni úr og í bæinn; það er hreint ekki svo litið, sem fellur úr hjá manni og sem inaður heyrir ekki af danslögunum, bara af því að ekkert útvarp er í síræsisvögnunum. Ekki getur það verið neitt út af því að bílstjórarnir truflast af því, fyrst að þeir truflast ekki af þvi í öðrum bílum; en ég veit af hóp af ungu fólki, sem vill ekki missa af danslögunum fyrir nokkurn mun og kaupir heldur bíl i bæinn, bara af því að það getur Við komum þessu liérmeð á framfæri. Vonum samt að ekki verði cekið neitt tillit til þessara óska ykkar, því að það yrði til þess að við yrðum helzt að fara í leigubíl í bæinn, bara til þess að sleppa við að verða að hlusta á danslögin í strætisvögnunum, sem hingað til er þó einna tryggasti griðarstaðurinn fyrir þeim ófögnuði. Okkur barst svipuð beiðni um daginn — að útvarpstækjum yrði komið fyrir í öllum biðstofum, til dæmis hjá læknum, svo að þeir sem biðu þyrftu ekki að missa af danslögum; það er bezt að sú beiðni komi fram hér með. Bílasala — vafasamt fyrirtæki. Kæri póstur. Hvers vegna er ekki haft neitt eftirlit með opinberri bílaverzlun hér í borg? Ætli þess sé ekki talin þörf, eða hvað? Fasteignasalar verða að undirgangast sérstakt próf og leggja fram skjallegar sannanir fyrir sómasamlegum heiðar- leika, en hvernig er það með bílasalana? Eða hvernig er það — getur maður fengið bíl, sem maður kaupir lijá þeim, metinn, ef hann reynist ekki eins og þeir hafa sagt manni. Það munu fara rnargar milljónir króna árlega uin hendur þessara manna, og mér finnst að það ætti að hafa strangt eftirlit með þeim. 'Virðingarfyllst, Ford. Áður hefur verið birt hér bréf um þetta efni; í sambandi við það var hringt til póstsins Þetta glæsilega svefnherbergissett hefur bæzt í hina stóru „fjölskýldu“ Skeifuhúsgagna. Höfum ávallt 8 mismunandi tegundir svefnherbergissetta. Stærsta úrval húsgagna á einum stað á íslandi og allt eru það Skeifuhúsgögn. Híbýlafræðingur okkar raðleggur yður valið ef óskað er. SKEIFAM Kjörgarði Laugavegi 59. Sími 10975. Skólavörðustíg 10. Sími 15474. 7

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.