Vikan


Vikan - 29.09.1960, Side 4

Vikan - 29.09.1960, Side 4
- ÉG VORKENNIÞESSUM VES VIKAV heimsótti Jón Helgason, prófessor í Árnasafn og fékk þær erindi heim, enda ekkert gert af yfirlýsing viti í því ■ ’■ ■: ■' ■ ■ Viðtal og myndir: Gísli Sigurðsson. Það var fremur heitt þennan dag og maður þreyttist fljótt i fótunum á glerhörðum stein- inum. Ég hafði gengið Slottshólmann þveran og endilangan í leit að Árnasafni, en án ár- angurs. Utan við Týhúsið hitti ég einn kóng- legan embættismann með þríhyrndan hatt og í rauðum frakka eins og þeir báru fyrir 200 árum á þessum stað. Hann hafði aldrei heyrt getið um „Arnamagnæanske Institut" og sama var að segja um aðra Dani, sem ég hitti þar og spurði um safnið til þess að kynna mér, hversu rík ítök stofnunin ætti í hugum almennings. Að lokum sneri ég mér til íslenzka sendi- ráðsins og fékk þær upplýsingar, að Árnasafn væri til húsa í „Proviantgárden“, og grun höfðu þeir um það, að engin æpandi skilti væru þar utan á veggjum. Þessi forna birgðaskemma kóngsins reyndist vera heldur í stærra lagi og eftir hringferð í kringum hana var ég enn jafnnær. Konunglega bókhlaðan er þar í nábýli og bókaverðirnir þar könnuðust við Helgason og Árnasafn. Einn þeirra, maður á miðjum aldri með svip rykfallinna doðranta og gler- augun framarlega á nefinu gekk með mér út úr þeim rökkursölum og sýndi mér dyrnar og sjá: Þar stóð vélritað við bjölluhnappinn með smáum stöfum þetta langþráða orð, Arna- magnæanske Institut. Uppi á stigapallinum situr maður á skyrtunni og rýnir í blöð. Hann er fremur stórvaxinn, hárið farið að grána og niðurdregin tnunnvikin minna á áralanga armæðu. Maðurinn lítur ekki upp, þótt gest bera að garði, og ég sé, að hann muni ekki þessarar veraldar heldur af heimi gamalla bóka. Ég býð góðan daginn og spyr: — Eruð þér Jón Helgason? — Það er vist kallað svo — segir maðurinn með semingi og munnvikin eru nú mjög neðar- lega, en ekki lítur hann upp. — Ég er utan af íslandi, hingað sendur af Vikunni og æski þess að fá viðtal hjá yður. — Vikan, það hefur mér skilizt að sé fjórði partur úr mánuði eða hvað, — drafar í mann- inum. —■ Já, það mun vera rétt, — svo er líka skóbúð hér úti á Vesturbrúargötu, sem heitir því nafni, og auk þess vikublað úti á Islandi. Það mun vera þriðja stærsta biaðið á þvi landi á eftir blöðum, sem heita Morgunblaðið og Timinn, en það er nú ekki von að þér hafið heyrt þau nefnd. — Ónei, þetta eru ekki Þær bókmenntir sem ég hefi gert mér sérstakt far um að stunda. En ég kynntist einu sinni íhaldskarli sem gekk með svona blað í vasanum og las á kvöldin; það hijóðaði mest allt um kvennafar hjá ein- hverjum blámannakóngi i Afríku og var að minni skoðun mjög þarflegt blað; þegar ég var ungur var almenningur á Islandi mjög ófróður um kvenanfar í Afríku. Annars má ég ekki vera að því að hafa viðtal við yður núna. Ég er með próförk, sem verður sótt eftir stundar- Efsta myndin: 1 fiessum lcrók er inngangur- inn í Árnasafn. Jón Helgason stendur utan við dyrnar. 1 miöju: Þessi belgísku 'hjón sátu á safninu og þýddu œvintýri á flœmsku. NeÖst: Þarna eru dýrgripirnir saman komnir í fáum hillum. Maðurinn á myndinni heitir Etefán og vinnur á safninu. korn. Ég er vant við látinn, ég er það sem kallað er „upptekinn" á nútímamáli. Það dugir víst ekki annað en tala svo fólk skilji. Getið þér ekki komið seinna. Þá getum við kannske reynt að tala eitthvað saman, eða hvað er það annars, sem þér viljið vita? — Það var nú í sambandi við þetta safn, segi ég, og siðan verður það að samkomuiagi, að ég komi daginn eftir. Þá situr Jón ekki lengur frammi á stigapallinum, heldur er mér vísað inn á rúmgóða skrifstofu og Jón situr þar við skrifborð, sem er álíka stórt og bílpallur. Það var enginn stóll við borðið utan sá, sem Jón sat í, og ég spurði hann, hvort ég mætti ekki fá lánaðan stól, sem var þar út við vegg- inn. — Nei, ég get þvi miður ekki leyft yður að lána stólana héðan. — Ég sagði: Má ég fá lánaðan stól. — Nú, sögðuð þér það. Þá hefur mér mis- heyrzt. Ég bið afsökunar. Ég hef ótrú á mönn- um sem rugla saman að lána og fá lánað. — Það hef ég líka. — Gott, þá erum við sammála. Ég hélt þér væruð úr Reykjavík. — Nei, ég er úr Biskupstungum. — Það er nú eitthvað annað. Það var dáindi til skamms tíma að heyra roskið fólk úr Biskupstungum tala. Þar var nú ekki aldeilis orðfæðin. Og hógværð í orðum hefur hvergi verið meiri en þar. Hann mun hafa verið í Tungunum bóndinn sem sagði við son sinn á kvöldin, þegar mál var komið að slökkva: „Andaðu á týruna, drengur minn“. Og þá svar- aði honur hans: „Reynt get ég að bera það við“. — Koma margir gestir hingað? — Nei, sem betur fer — enda ekkert gert til þess að hæna þá að. Þeir sem eiga erindi finna staðinn fyrr eða síðar, og Þeir skulu vera velkomnir. E’n ég hef því miður lítinn tíma til að sinna túristum, og ég býst ekki við því, að neinum þyki gott að láta tefja sig við vinnu sína. — Það er nú hérumbil ómögulegt fyrir ókunnuga að finna staðinn. Ég var svo klukku- tímum skipti að þvælast um hólmann í leit að safninu. — Það þykir mér vænt um að heyra. Ég: hef eindregið lagzt gegn Því, að hér yrði sett upp skilti eða einhvers konar vegvísir til að ginna menn hingað. —• Þér viljið fá að vera í friði yfir þessum gulnuðu blöðum? — Ég mundi fremur segja að ég væri nauð- beygður til Þess. Hér eru til að mynda fimm bindi af Biþliotheca Arnamagnæana í próf- örkum og álíka mörg af Editionibus Arna- magnæanis — við skulum reyna að bera okk- ur að beygja latíuna rétt —, og þarna liggja ■ein fjögur bindi hálfkörruð af handritaeftir- myndum, sem eiga að birtast í bókurri; — ég á að heita ritstjóri að þessu, það fer um min- ar hendur, og ég reyni að bæta um og benda á misfellur eftir því sem ég hef vit til. Ég hef ekki hátt mat á Þeim ritstjóra, sem lætur sér nægja að taka við því sem honum er fengið og senda það frá sér í sömu mynd. Hér inni er lítið um stéttaskiptingu eða manngreinarálit, en ég reyni að fylgjast með í öllu, sem gert

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.