Vikan


Vikan - 29.09.1960, Page 12

Vikan - 29.09.1960, Page 12
Listin að vera góð tengdamóðir Ef maður sýnir háttvísi, getur sambandið á milli tengdamóður og tengdadóttur verið innihaldsríkasti þátturinn í lífinu, segir höfundur þessarar greinar. ■ • ; * ‘ Hvernig á aS fara að til að vera góð • tengdamóðir? Þannig hljóðaði fyrsta setningin í bréfi, sem ég fékk frá konu fyrir skemmstu. Sonur hennar var ný- kvæntur. Varð bréfritaranum tíðrætt um allar þær hættur og erfiðleika, sem upp geta komið í hinu erfiða fjöl- skyldusambandi. Nú á dögum erum við miklu opin- skárri og eðlilegri gagnvart tengda- foreldrunum en í gamla daga. Hve oft heyrir maður ekki t. d. minnzt á tengdamæður, sem eru virkilega góðir vinir tengdabarna sinna, svo og á tengdabörn, sem elska og virða tengda- foreldra sína. Sambandið á milli tengdamóður og tengdabarns og þá einkum tengdadótt- ur er sami sem áður eitt það viðkvæm- asta, sem hugsazt getur. í þvi felast margs konar hættur, og oft gerir tengdamóðirin eitthvert óviljaverk, sem hefur ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér og verður e. t. v. til þess að eyðileggja hjónabandið algjörlega. PULLKOMIN MÓÐIR, EN — Venjulegast er það tengdamóðirin, sem á mesta heimtingu á þvi, að henni sé sýnd samúð, velvild og skilningur. Ég gat t. d. alls ekki komizt hjá þvi að vorkenna konu, sem ég vil hér kalla frú A. Frú A varð snemma ekkja og sat þá uppi með lítinn son. Hún var fátæk og varð því, auk þess sem hún mátti ann- ast son sinn sjálf, að sjá sér og honum farborða. Hún var í senn dugmikil og kjarkmikil kona og tókst að veita syni sínum góða menntun og aðstoða hann við byrjunarörðugleikana í því starfi, sem hann hafði valið sér. Samtímis sá hún alltaf um, að hann ætti raun- verulegt heimili, heimili, sem var 1 senn bjart og hamingjusamt. Sem móðir gegndi hún hlutverki sínu á framúrskarandi hátt. Sem tengda- móðir brást hún hins vegar alveg. Það, sem hún hafði ekki séð fyrir, var hinn nistandi einmanaleiki og bitri sársauki vegna þess, að hún var ekki lengur „nr. eitt“ í lifi sonar sins. HÚN KOM Á EFTIR. Það var litilfjörlegt atvik í rauninni, sem snögglega gerði henni þetta ljóst. Hún hafði gengið heim til sonar sins fyrri hluta dags, þegar hann kom allt í einu óvænt heim, ákafur og æstur eins og drengur. Hann þaut fram hjá henni og hljóp upp stigann til móts við konu sína. Klukkutíma síðar kom hann niður til þess að segja móður sinni tíðindin. Hann hafði verið hækkaður í tign hjá fyrirtækinu, sem hann vann hjá, og hlotið einhverja eftirsóknarverðustu stöðuna. Fyrir móðurina var þetta sem högg í andlitið. Það var hún, sem hafði veitt Framhald á bls. 33. Wjm j m 'Pmm t 1 mli Mfs | wéæ! jjm Í j jgffi j ] m ‘M 1 HHÍ 1 1 1 ' J % Juu Einbýlishús á Eiksmörk •/ Þróunin í byggingarmálum höfuðstaðarins hefur orðið sú, að einbýlishúsabyggingar eru orðnar fremur fátíðar, en sambygg- ingar hafa rutt sér til rúms. Það er vafalaust æskileg stefna fyrir fátæka þjóð, enda óviðráðanlegt bæði fyrir einstaklingana og samfélagið, ef allir byggðu einbýlishús. Úti á landsbyggðinni er fremur byggt í smærri stíl, og hér flytur þátturinn Hús og húsbúnaður tillögu til handa þeim, sem standa frammi fyrir því verkefni að byggja sér meðalstórt einbýlishús. Þetta hús hefur verið byggt á Eiksmörk, skammt utan við Osló i Noregi. Það er 142 fermetrar, en þeirri stærð mætti ef til vill eitthvað hnika til. Það er byggt að miklu leyti úr timbri, eins og siður er í Noregi, en ekki viljum við neitt draga úr þvi, að timbur yrði notað, þótt húsið yrði byggt hér. Hins vegar mundi heppilegra að gera ráð fyrir steinsteypu i stað múrsteins í norska húsinu. Planteikningin slcýrir sig sjálf. Inngangurinn er þar, sem örin vísar. Brotnu strikalínurnar þvert yfir boröstofuna eru ekki veggir, heldur bitar í loftinu. Það, sem merkt er meö 10 við hliö- ina á stofunnj, er hellulögö stétt. Grænmetisréttir GRÆNMETISSÚPA. 1% 1. vatn eða kjötsoð, 450 gr. hvítkál, 1—2 gulrætur, 2—3 kartöflur, 1 laukur eða blaðlaukur, 1 tesk. salt, kjötkraftur, 50 gr. smjörliki. Grænmetið er hreinsað og skorið í fínar ræmur eða rifið á grófu rifjárni. Laukurinn skorinn í sneiðar. Smjörlíkið brætt í potti, grænmetið látið þar út í og hitað þangað til það fer að minnka í, þá er heitu vatni eða soði hellt yfir og soðið ca. 10 mín. Kryddað eftir bragði. Borðað með hveitibrauði eða brauðsnúðum. TÓMATSÚPA. 5 tómatar eða 1—2 dl. tómatkraftur, 4 kartöflur, 1 laukur, 1% msk. smjörlíki, 1% 1. vatn, 2 msk. hveiti, salt. Aðferðin er sú sama og við grænmetissúpuna nema að síðustu 12 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.