Fréttablaðið - 05.12.2009, Síða 92
60 5. desember 2009 LAUGARDAGUR
UMDEILDUSTU
BÓKAKÁPURNAR
Umsátrið eftir Styrmi
Gunnarsson
„Falleg,
fagmannleg
og vekur
áhuga. Segir
manni á
augabragði
um hvað
bókin fjallar.
Styður við
bókartitilinn
og bætir
hreinlega við
hann.“
„Hvað er
þetta á káp-
unni? Er Ísland statt úti fyrir Afríku?
Jaaaá, það er hrunið!“
Góði elskhuginn eftir
Steinunni Sigurðardóttur
„Bókarkápa sem mér finnst að
mér eigi að finnast fyrirsjáanleg,
en svo er hún bara falleg. Fínleg og
vönduð. Það er eins og henni finnist
hún sjálf vera geðveikt smægó og
dulúðug. Sem er bara sætt.“
„Fallegt og smekklegt handbragð
en ekkert sérstaklega spennandi.
Minnir helst til of mikið á Skáldalíf
eftir sama hönnuð.“
Memo eftir Oddbjörn
„Þessi bók á að kenna manni á
einfaldan hátt að öðlast betra minni.
Mjög grípandi kápa, hver þekkir ekki
veggfóðraða ísskápa með post-it
miðum? Ég las þessa bók en man
ekki hvernig mér fannst hún …?!“
„Dæmi um hönnun sem er
algjörlega augljós í augum hönnuð-
arins sem veit um hvað bókin fjallar
en er öllum öðrum óskiljanleg fyrr
en eftir langa yfirlegu. Virkar eins og
ársskýrslur um þróun smitsjúkdóma
sem maður rekst stundum á ólesnar
á læknabiðstofum.“
Mannasiðir Gillz
„Einföld og flott kápa.“ „Æi … burt með þennan gaur!“
Prívat og persónulega eftir
Birgi Sigurðsson
„Þessi kápa er svo hallærisleg
að hún er eiginlega mjög fín. Ég þekki
engan sem myndi í alvöru detta í hug
að setja Michelangelo-/Nokiahendur
á bókarkápu. Sem gerir hana svona
líka vandræðalega sjarmerandi.“
3. SÆTI
Svuntustrengur eftir
Sigurlínu Bjarneyju
Gísladóttur
„Afar fögur
kápumynd,
nostalgísk
með pínku
geðveikis-
kryddi.“
„Það er svo
ánægjulegt
(og sjald-
gæft) að
sjá íslenska
bókakápu
sem sleppir
fótósjopp-
kraðakinu.“
4. SÆTI
Sjúddirarí rei, ævisaga
Gylfa Ægissonar eftir
Sólmund Hólm
Sólmundarson
„Harmonikka á bryggjunni og Gylfi
Ægisson klæddur í skipstjórabúning.
Hvað getur maður beðið um meira?
Jú, ankerið
sem hangir
í titlinum er
þriðji eða
fjórði ef ekki
bara fimmti
punkturinn
yfir i-ið. Eins
og segull
eða viðvör-
un frá land-
lækni eftir
því hvort
maður hefur húmor fyrir efninu.“
5. SÆTI
Matur og drykkur eftir
Helgu Sigurðardóttur
„Þessi matarbiblía frá matmóður
Íslendinga kom út í ár eftir að hafa
verið ófáanleg lengi. Síðast man
ég eftir bókinni í ljótri stórbóka-
seríu frá Máli og menningu en
núna kemur hún í afar smekk-
legum og
áferðar-
fallegum
búningi. Svo
er mynd af
Helgu Sig
í ofanálag.
Þörf bók í
siðum og
hefðum en
svo er hún
líka mikið
eldhússtáss!“
BESTA BÓKAKÁPA ÁRSINS
Heim til míns hjarta eftir
Oddnýju Eir Ævarsdóttur
Kápan á skáldsögu Oddnýjar Eirar fékk afgerandi kosningu sem
besta bókakápa ársins. Um hönnun sá Ragnar Helgi Ólafsson,
útgefandi er Bjartur.
• „Þetta er bókakápan sem öllum á eftir að finnast fallegust.
Gamaldags og með gægjugötum en þau eru alltaf spenn-
andi.“
• „Frábær kápa – það langbesta sem ég hef séð í flóðinu.“• „Ljómandi gaman að því þegar hrist er upp í útliti kápu og
gerð tilraun með óhefðbundið efni þótt það sé sjálfsagt dýr-
ara. Þessi kápa heppnast alveg fullkomlega. Einfalt, stílhreint
og áhugavert. Eins og maður sjái svona bregða fyrir texta
bókarinnar á kápunni gegnum þennan hring, maður fái að
kíkja á innihaldið og inn í heim sögunnar sem í þessu tilviki
lítur út fyrir að vera afar áhugaverður.“
• „Falleg bók, innan í og utan á, ein af fáum kápum sem mann
langar til að snerta og strjúka. Ég lyktaði líka ósjálfrátt af
henni. Undirtitillinn er Ilmskýrsla og árstíð á hæli, það er eins
og hún hljóti að ilma að innan.“
• „Það að búið sé að gera gat á kápuna vísar beint í titilinn og
dregur mann inn í bókina. Ragnar Helgi er fyrst og fremst
klár og fjölhæfur bókamaður og virðist jafnvígur á allar
bókmenntagreinar. Hann gerir ekki bara fínar kápur heldur
skilgreinir hann verkið betur en flestir aðrir hönnuðir, það
er að segja það fer sjaldnast á milli mála hvers konar bók
maður hefur í höndunum.“
• „Eina bókin þessi jól sem nálgast að kallast „bókverk“. Gaman að halda á bókinni, gott að strjúka henni, flottar
teikningar, og mjög skemmtileg gægjugötin, þó svo að það hefði verið hægt að gera meira með fráganginn.
Myndi jafnvel hafa hana fremst í hillunni ef hún væri tekin lengra í fínheitum.“
AÐRAR GÓÐAR BÓKAKÁPUR
Bestu og verstu bókakápurnar
Fyrir viku fékk Fréttablaðið smekkfólk til að velja bestu plötuumslög ársins. Nú er komið að bókakápunum. Valinkunnu smekk-
fólki „úr bransanum“ var falið það vandasama verkefni að velja góðar og slæmar bókakápur. Óhemjumagn er gefið út í ár svo að
fjölmargir titlar voru nefndir í báðum flokkum. Niðurstöðurnar voru engu að síður nokkuð afgerandi.
2. SÆTI
Færeyskur dansur
eftir Huldar Breiðfjörð
• „Falleg ljósmynd og magnþrungið
andrúmsloft. Handgert letrið er
hressandi og mætti þannig lagað
sjást oftar.“
• „Glæsileg kápa sem lýsir ferju-
stemningunni vel í kringum Fær-
eyjar. Mér finnst allt sem færeyskt
er frábært, og bækur Huldars eru
yfirleitt afbragð.“
• „Myndin á kápunni er mynd sem
lesandinn sjálfur hefði sjálfsagt
getað tekið. Getur hæglega
ímyndað sér þetta sjónarhorn og
margur hefur sannarlega upplifað
slíkt og þvílíkt. Miðlar þannig
tilfinningu sem auðvelt er að
samsama sig með. Ferðalag er líka alltaf spennandi og þegar myndin
er tekin á farþeginn kannski stutt eftir í land. Fær sér seinustu kaffisop-
ana áður en hann stígur á land á nýjum stað og tekur þessa mynd til
að muna eftir tilhlökkuninni yfir öllu því sem bíður. Nú svo náttúrlega
vita þeir það sem lásu Góða Íslendinga að Huldar skrifar frábærlega
skemmtilegar ferðalýsingar. Svínvirkar.“
Mynd af Ragnari Smára eftir Jón Karl Helgason
„Það er engin spurning, þetta er kápa ársins. Smekkleg,
sniðug, vel útfærð og hentar efninu. Öðrum til fyrirmyndar.“
Bankster eftir Guðmund Óskarsson
„Það er eitthvað við bókina sem virkar mystískt sökum
naumhyggjuhönnunarinnar. Daufir bakgrunnstrúðar, hand-
teiknað letur, lítið af upplýsingum en samt nóg til að gera
mig forvitinn. En kannski var þetta bara góð ákvörðun hönn-
uðarins að vera ekkert að rembast við að klúðra kápunni
með fleiri elementum, hver veit. Eins og ég sagði, mystískt.“
Horfðu á mig eftir Yrsu Sigurðardóttur
„Sterk stílhrein mynd sem maður tekur strax eftir í bóka-
búðinni. Það er oft sem kápur vilja ná utan um allt efni
bóka og skila einhverri niðurstöðu. Ragnar Helgi hönnuður
gefur manni hins vegar vísbendingu. Þessi kápa er þess
eðlis að maður verður að opna bókina og fá að vita meira,
sem er það sem spennusaga snýst nú um.“
Milli trjánna eftir Gyrði Elíasson
„Fallegt marglaga málverk með djúpum hreinum litatónum
máluðum af miklu öryggi og af fagmennsku lýsir sögum
Gyrðis afar vel. Þetta er svona kápa úr fullorðinsdeild en
líka deild þar sem gæði og margbrotin sagnaheimur er til
grundvallar.“
Himinninn yfir Þingvöllum eftir Steinar
Braga
„Einhver gotnesk stemning yfir þessu sem gefur einhvern
hrylling til kynna og um leið eitthvað annars heims og yfir-
skilvitlegt, reimleikar og eitthvað slíkt. Torkennilegur andi
sem svífur yfir. Get ekki lýst því nánar en virkar vel.“
Yfir hafið og í steininn eftir Tapio Koivukari
„Mér finnst margar af bókum Uppheima fallegar, íslensku
skáldverkin og ljóðin þá helst. Flott yfirbragð og gaman
þegar bókaútgáfa hefur sinn sér stíl. Svo er Tapio alger
snillingur.“
Hlýjar hendur eftir Ágústu Þóru Jónsdóttur
„Mjög vel heppnuð kápa og tekur vel á móti manni. Greini-
lega mikið markaðsfólk sem stóð að útgáfunni en svo
sneru prjónauppskriftirnar víst öfugt … vandræðalegt!“
Ljóðasafn Ingibjargar Haraldsdóttur
„Jólagjöf MH-ingsins í ár. Mjög flott kápa, módern og
listræn.“
Og svo kom Ferguson eftir Bjarna
Guðmundsson á Hvanneyri
„Kápa sem stingur svo í stúf við það sem gengur og gerist
að maður verður að skoða hana betur. Vekur upp enda-
lausar spurningar; hver er þessi Ferguson? Hvaðan kom
hann? Hver kom á undan honum? Hvað gerðist svo? Og
síðast en ekki síst: Hver í ósköpunum er konan sem situr
á traktornum? Algjörlega óniðurlátanleg bók eins og þeir
segja í útlandinu.“
Manfreð Vilhjálmsson arkitekt
„Heimilislega sjarmerandi eins og hann sjálfur. Kápa sem
verður bara fínni og fínni af því hún er ekkert að þykjast
neitt.“
Ljóðorkuþörf eftir Sigurð Pálsson
„Kraftmikil, margræð og töff. Hvurs lags bók getur þetta
mögulega verið? Neyðir mann til að taka sig upp og kíkja í
innihaldið.“
Gæska eftir Eirík Örn Norðdahl
„Litrík og skemmtileg. Tímalaus hönnun sem neyðir mann
til að taka höfundinn og verkið alvarlega. Áhrifarík kápa og
dálítið töff.“
Jón Leifs – Líf í tónum
„Mjög einföld kápa en passar vel við efnið. Dramatísk
mynd eftir Jón Kaldal og leturgerð sem smellur við. Hefur
eflaust sitt að segja að splæsa í gyllingu.“
1001 okkur eftir Hugleik Dagsson
„Krílin hans Hugleiks eru alveg geggjuð þegar þeim er
raðað svona upp eins og í maurabúi. Maður stenst ekki að
taka bókina upp og skoða.“
Paradísarborgin eftir Óttar M. Norðfjörð
„Smekklegt gröns. Myndskreytingin af gatnakerfinu minnir
á pressaða jurt og kápan hefur yfir sér náttúrulegan og
gamaldags blæ.“
íslensk sjónabók
„Mjööööög falleg!! Ein sú fallegasta. Bók sem mig langar
að eiga!!“
Skrímsli í heimsókn
„Fallegustu íslensku barnabækurnar. Alltaf flottar!“
Hvíti tígurinn eftir Aravind Adiga
„Öðruvísi! Falleg teikning, fallegir litir, flott letur. Skemmti-
lega klikkuð.“
Heitar laugar á Íslandi
„Flott uppsetning með sumar- og vetrarmynd sem á við
allan ársins hring. Þig langar virkilega að dýfa þér í eina
laug í íslenskri náttúru þegar þú horfir á kápuna.“
Augnablik eftir Malcolm Gladwell
„Vel heppnuð íslensk útgáfa sem líkist upprunalegu útgáf-
unni. Silfurstjarnan sem er stimpluð á kápunni er punktur-
inn yfir i-ið.“
Áin eftir Bubba Morthens
„Klassísk og flott kápa sem skartar gamalli flottri mynd af
veiðimanni með afla.“ FRAMHALD Á SÍÐU 62