Vikan - 06.07.1961, Side 25
Öll hin fjórtán óþægu og alveg
eins tröllabörn korau sunnudags-
morgun nokkurn og relluöu i trölla-
pabba og tröllamömmu.
— Við viljum fara í skógarferð,
hrópuðu þau öll.
— Það er ekki komið surnar enn-
þá og við búum úti í miðjum skógi
og ég flengi ykkur með halanum,
ef þið leyfið mér ekki að sofa leng-
ur, rumdi í tröllapabba. En trölla-
mamma sagði:
— Heyrðu, við verðum að gera
eitthvað fyrir börnin. Þau hafa rétt
til að krefjast þess, að við eyðum
frítimum okkar með þeim og við
höfum aldrei áður farið í skógar-
ferð.
Jæja, þar sem tröllapabba þótti
nú verulega vænt uin krakkana sina,
fór hann á fætur, þvoði sér um hal-
ann, en það er það eina sem tröll-
in þvo nokkurn tima, og setti dá-
litið hárkrem á halaskúfinn. Siðan
sagði hann að sin vegna gætu þau
lagt af stað strax.
Nú skyldi maður halda, að þau
mundu ganga eitthvað um skóginn.
'sém þau bjúggu i, en tröllabörnin
sögðu að þau fengjú nóg af skógi
hvurndags og þess vcgna vildu þau
- fara eitthvað i skógarferð þar sem
ekki væri skógur.
— Jœja, þá förum við‘á ' niarkað-
inn, sagði tröllapabbi.
í bænum var stórt torg og þar
var fullt af fólki. Þegar tröllafjöl-
skyldan birtist stóð fólkið kyrrt og
starði.
— Nei, en gaman, þarna koma
nokkrar manneskjur sem eru búnar
eins og tröll.
Tröllapabbi ætlaði að fara að
skammast og segja þeim að þau
væru alls ekki i búningum, þau
væru raunveruleg tröll, en trölla-
mamma greip í handlegginn ó hon-
um og sagði að hann mætti ekki
gera veður út af þessu.
Svo hrínguðu ]iau öll saman hal-
ana og stungu þeim í vasana og
gengu svo áfram.
í einu horni markaðsins var sýn-
ingartjald. Fyrir utan það stóð mað-
ur og auglýsti hástöfum hvað hægt
væri að sjá í tjaldinu.
— Og svo, herrar mínir og frúr,
hrópaði maðurinn, um leið og trölla-
pabbi, tröllamamma og öll trölla-
börnin fjórtán komu þangað ...
svo sjáið þið mesta viðburð aldar-
innar, eina núlifandi tröllið á land-
inu.
Hann nennum við ekki að, sjá,
sögðu tröllabörnin. Við vitum alveg
hvernig tröll lita út.
— Já, en ég ætla að sjá hann,
sagði tröllapabbi, því það er svei
mér frekt að segja, að það sé að-
eins eitt tröll til í landinu. En það
er áreiðanlega frændi minn, hann
Eirikur, sem er að hlekkja fólk
svona.
Svo fóru tröllapabbi og trölla-
mamma inn í tjaldið, eftir að þau
höfðu brýnt fyrir krökkunum, að
gera nú ekkert af sér á meðan. Og
uppi á sviðinu var i raun og veru
tröll með langan hala.
— Góðan daginn, Eiríkur, hróp-
aði tröllapabbi. En hvað halinn á
þér er ljótur og illa til hafður, minn
er miklu fallegri.
Tröllið á sviðinu varð mjög undr-
andi.
— Og svo segir þú, að þú sért
eina tröllið á landinu. Já, þú hefur
alltaf verið grobbari, en nú ætla
ég ...
Svo gekk tröllapabbi upp á svið-
Framhald á bls. 31.
í þetta skipti ætlum við ykkur einnig
að lita mynd, en ekki af Þyrnirósu, held-
ur blómálfum. Það gildir hið sama um
hana og hina, þið litið hana eins fallega
og þið getið og sendið svo Vikunni. Við
veljum síðan úr þrjár beztu myndirnar
og veitum verðlaun og verða þau, þau
,.sömu og siðast, vefstóll og flugmódel í
fyrstu verðlaun. Spilasería, önnur verð-
laun og sæígæti, þau þriðju.
Setjið myndina af blómálfunum i um-
slag og sendið VIKUNNI, pósthólf 149.
Nafn:...................................—
úldur:...................................
Heimili: ................................
Merkið umslögin með „blómálfar".
KALLI KOKKUR.
Kartöflusalat.
1 betta salat Þarf fjórar, soðnar,
kaldar kartöflur, eitt harðsoðið egg,
dálitla matarolíu og edik.
Magga setur kartöflurnar í súpu
disk og gerir mav’: úr þeim með gaffli,
svo að engir kögglar verði eftir.
Síðan setur hún eina matskeið af
matarolíu út 1 og eina barnaskeið af
ediki, en Pétur hrærir þetta allt vel
saman.
Anna setur salatið i hrauk á fat
og Nonni stráir vel niður söxuðu
egginu yfir. Að lokum skreyti ég með
steinselju og salatblöðum.
VflJCSN 25