Alþýðublaðið - 08.02.1923, Side 1
Grefið út nf Alþýdafiokknnm
Ofbeldi.
Fimtudagir.n 8. febrúar.
Hið árlepa jestamðt
30. tölublað.
ungmennafélaganna verður haldið laugard. 10. þ. m.
í Goodtemplarahúsinu og hefst með sjóllleik, stund-
víslega kl, 8^/2 síðd. Allir ungmennafélagar eru vel-
komnir. Aðgöngumiða sé vitjað til Svövu Björns-
dóttur í búð H., S. Hanson, Laugaveg 15, föstudag
og laugardag.
Hvarvetna þar sem siðaðir
menn búa, hrýs mönnum hugur
við aðförum Frakka í Ruhr-
héruðunum í Þýzkalandi. Svo
miskunnarlaust er þar að gengið.
Þó er þess að gæta, að þar er
útlend þjóð að verki, þjóð, sem
þykist eiga mikilla hermdarverka
að hefna.
Þrátt fyrir þetta er svo, að
verkalýð f þessum héruðum mun
ekki Iíða þeim mun ver en
verkalýð h£r, sem búast mætt'i
við eítir undangengna ógurlega
styrjöld þar í landi, en margra
alda frið hér.
í því er ólíku saman að jafna.
En annað er líkt.
íslendingar eiga nú við mikla
örðugleika að stríða í viðskiftum
við aðrar þjóðir.
En því valda ekki útlendir
menn, sem þykjast þurfa að
hefna sín, heldur innlendir menn,
sem þjóðin hefir dekrað við á
allar lundir í mörg ár.
Hér er og hefir lengi veiið
haldið uppi óþolandi dýrtíð aðal-
lega af þeim mönnum, sem yfirráð
hafa yfir gjaldeyri þeim erlend-
um, er fæst fyrir afurðir sjávar-
ins hér við sölu í útlöndum.
Þessir ménn eru útgerðarmenn
og fiskútflytjendur, sem mikið
til eru sömu menn.
Og þeir hafa stórgrætt á þessu
og lifað hátt þrátt fyrir magnaðan
skort á hagsýni og umhyggju
fyrir atvinnuvegi sínum.
En þeim nægir það ekki.
Nú vilja þeir enn neyða upp
á alþýðu stórkostlegri dýrtíðar-
aukningu, sem út af fyrir sig
myndi gera alþýðunni alveg
ómögulegt að framfleyta sér.
Og o'an á þetta bæta þeir
Itröfu um, að kaup allra vinnandi
stétta sé lækkað að miklum
mun.
Þetta er svo mikill nbbalda-
skapur, að þegar þess er gætt.
að hér eru innlendir menn að
verki, þá verður athæfi Frakka í
Ruhrhéruðunum, þó Ijótt sé,
hátíð hjá því.
En það má ekki takast.
Hver einasti maður verður að
gera s:tt til að hindra ofbeldis-
verkið.
Erlend símskeyti.
Khöfn, 7. febrúar.
Frakkar taka meira land.
Frá Berlín er símað: Frakkar
hafa fært út landatöku sína og
ráðíst inn í Baden og tekið 3
smáborgir. Stefna þeir nú til
Schwarzwald.
Eftlrloikur Irá Eretum.
Fregnir frá Lundúnum segja,
að stjórnin sé að hefja sérsamn-
inga við Þjóðverja. Sé það
svarleikur gegn báráttuaðferð
Frakka, er olli tvístrun Lausanne-
ráðstefnunnar.
Tyrkir kreyta stefuu?
Frá París er símað: Ismet
pasha hefir símað til Poincarés,
að Tyrkir séu reiðubúnir að
undirrita friðarsamningá Bánda--
manna. Poincaré hefir t'Ikynt
þetta áfram til Lundúna.
Eignist Kvenhatarann. Á-
skriftum veitt móttaka ísíma 1269.
Bljómleikar Páls ísólfssonar
í kvöld ættu að verða vel sóttir,
þegar þess er gætt, hversu vel
hafa verið sóttar »Spánskar næt-
ur<, jafnvel með hækkuðu verði,
því að ekki hefir það, sem Páll
hefir að bjóða, minna gildi en,
þær, hvernig sem á er litið.
Straudferðaskipið nýja ríkis-
stjórnarinnar hljóp á laugardag-
inn af stokkunum hjá Flyde-
dokken í Káupmannahöfn. Var
því þá nafn gefið og kallað
»Esja<.
Rafijós hafa verið heldur daul
hér undanfarna daga sökum
kraps í Elliðaánum.
Trúlofun. Sveinn Árnason út-
gerðarmaður af Norðfirði og
ungfrú Sigríður Þórðardóttir aí
Hornafirði hafa nýlega birt trú-
lofun sína.
Mai og Valpole komu af veið-
um í gær og fóru til Englands.
Verkamenu! Munið eftir Dags-
brútiarfundi í kvöld!
Kauplækkun neitaði Verka-
kvennafél. einróma í gærkveldi.