Alþýðublaðið - 08.02.1923, Síða 1

Alþýðublaðið - 08.02.1923, Síða 1
Grefið út nf Alþýdafiokknnm Ofbeldi. Fimtudagir.n 8. febrúar. Hið árlepa jestamðt 30. tölublað. ungmennafélaganna verður haldið laugard. 10. þ. m. í Goodtemplarahúsinu og hefst með sjóllleik, stund- víslega kl, 8^/2 síðd. Allir ungmennafélagar eru vel- komnir. Aðgöngumiða sé vitjað til Svövu Björns- dóttur í búð H., S. Hanson, Laugaveg 15, föstudag og laugardag. Hvarvetna þar sem siðaðir menn búa, hrýs mönnum hugur við aðförum Frakka í Ruhr- héruðunum í Þýzkalandi. Svo miskunnarlaust er þar að gengið. Þó er þess að gæta, að þar er útlend þjóð að verki, þjóð, sem þykist eiga mikilla hermdarverka að hefna. Þrátt fyrir þetta er svo, að verkalýð f þessum héruðum mun ekki Iíða þeim mun ver en verkalýð h£r, sem búast mætt'i við eítir undangengna ógurlega styrjöld þar í landi, en margra alda frið hér. í því er ólíku saman að jafna. En annað er líkt. íslendingar eiga nú við mikla örðugleika að stríða í viðskiftum við aðrar þjóðir. En því valda ekki útlendir menn, sem þykjast þurfa að hefna sín, heldur innlendir menn, sem þjóðin hefir dekrað við á allar lundir í mörg ár. Hér er og hefir lengi veiið haldið uppi óþolandi dýrtíð aðal- lega af þeim mönnum, sem yfirráð hafa yfir gjaldeyri þeim erlend- um, er fæst fyrir afurðir sjávar- ins hér við sölu í útlöndum. Þessir ménn eru útgerðarmenn og fiskútflytjendur, sem mikið til eru sömu menn. Og þeir hafa stórgrætt á þessu og lifað hátt þrátt fyrir magnaðan skort á hagsýni og umhyggju fyrir atvinnuvegi sínum. En þeim nægir það ekki. Nú vilja þeir enn neyða upp á alþýðu stórkostlegri dýrtíðar- aukningu, sem út af fyrir sig myndi gera alþýðunni alveg ómögulegt að framfleyta sér. Og o'an á þetta bæta þeir Itröfu um, að kaup allra vinnandi stétta sé lækkað að miklum mun. Þetta er svo mikill nbbalda- skapur, að þegar þess er gætt. að hér eru innlendir menn að verki, þá verður athæfi Frakka í Ruhrhéruðunum, þó Ijótt sé, hátíð hjá því. En það má ekki takast. Hver einasti maður verður að gera s:tt til að hindra ofbeldis- verkið. Erlend símskeyti. Khöfn, 7. febrúar. Frakkar taka meira land. Frá Berlín er símað: Frakkar hafa fært út landatöku sína og ráðíst inn í Baden og tekið 3 smáborgir. Stefna þeir nú til Schwarzwald. Eftlrloikur Irá Eretum. Fregnir frá Lundúnum segja, að stjórnin sé að hefja sérsamn- inga við Þjóðverja. Sé það svarleikur gegn báráttuaðferð Frakka, er olli tvístrun Lausanne- ráðstefnunnar. Tyrkir kreyta stefuu? Frá París er símað: Ismet pasha hefir símað til Poincarés, að Tyrkir séu reiðubúnir að undirrita friðarsamningá Bánda-- manna. Poincaré hefir t'Ikynt þetta áfram til Lundúna. Eignist Kvenhatarann. Á- skriftum veitt móttaka ísíma 1269. Bljómleikar Páls ísólfssonar í kvöld ættu að verða vel sóttir, þegar þess er gætt, hversu vel hafa verið sóttar »Spánskar næt- ur<, jafnvel með hækkuðu verði, því að ekki hefir það, sem Páll hefir að bjóða, minna gildi en, þær, hvernig sem á er litið. Straudferðaskipið nýja ríkis- stjórnarinnar hljóp á laugardag- inn af stokkunum hjá Flyde- dokken í Káupmannahöfn. Var því þá nafn gefið og kallað »Esja<. Rafijós hafa verið heldur daul hér undanfarna daga sökum kraps í Elliðaánum. Trúlofun. Sveinn Árnason út- gerðarmaður af Norðfirði og ungfrú Sigríður Þórðardóttir aí Hornafirði hafa nýlega birt trú- lofun sína. Mai og Valpole komu af veið- um í gær og fóru til Englands. Verkamenu! Munið eftir Dags- brútiarfundi í kvöld! Kauplækkun neitaði Verka- kvennafél. einróma í gærkveldi.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.