Vikan


Vikan - 08.03.1962, Síða 27

Vikan - 08.03.1962, Síða 27
Svavar Gests: PLÖTUR ________ og DANSMIJSIK ISTÝJAR HLJÓMPLÖTUR. The Marveletters: Twistin post- man og I want a guy. Marveletters er einn af hinum mörgu söngflokk- um sem komið hafa fram i USA á síðustu mánuðum. Einn eða kannski tveir söngvaranna geta oftast sung- ið sæmilega í þessum söngflokkum, en hinir hafa það hlutverk eitt að baula undir mismunandi slagorð og þannig er það á þessari plötu. Það er einsöngur með innköllum frá meðsöngvurunum. Fyrra lagið á eflaust eftir að verða vinsælt, þar sem hátizkan i dansmúsík þessa dagana er twist músíkin. Síðara lag- ið er ekki upp á marga fiska, það eru til mörg hundruð rokklög í sama gæðaflokki. Platan er gefin út af hljómplötufyrirtækinu TAMLA í USA og fæst hjá HSH í Vesturveri. Sam Cooke: Twistin1 tlie night away og One more time. Sam Cooke er einn af albeztu söngvurum, sem fram hafa komið síðustu árin. Hann söng áður sálmalög heima í kirkj- unni sinni, þar sem pabbi lians var prestur en fyrir 2 árum sneri hann sér að dansmúsikinni og hefur sung- ið inn á hverja plötuna á fætur ann- arri, allar prýðisgóðar, þó fáar eða engar þeirra hafi náð vinsældum hér á landi. Twistin* the night rway er mjög vel sungið, stór jazz- hljómsveit sem leikur undir og minnir dálitið á gömlu blueshljóm- sveitirnar fyrir ca. 20 árum, Andy Kirk, Jay McShann og fleiri. Síðara lagið er mjög rólegt og kemur þá negrasálmasöngvarinn upp i Sam þcgar hann leikur sér að laglinunni á hinn skemmtilegasta máta. Þetta er plata, sem á eftir að ná langt og aðallega vegna fyrra lagsins. RCA Victor og platan fæst lijá HSH í Vesturveri. LAURIE LONDON heimsækir ístand. Þegar þetta er ritað standa yfir hljómleikar með hinum enska söngvara Laurie London, en hann söng fyrir nokkrum árum lagið „He‘s got the whole world in his hands“, sem heimsfrægð hlaut. Aðsókn að hljómleikum Laurie lÆndon hér var verri en við hefði mátt búast þar sem svo frægt nafn var á ferðinni, en hins ber að geta, að síðan fyrsta platan hans kom út fyrir 4 árum liefur hann ekki gert aðra plötu, sem slfkri frægð hefur náð og þess vegna er fólk meira og minna búið að gleyma honum. Söngur hans á hljómleikunum hér var allgóður og sviðsframkoma til fyrirmyndar. Á hljómleikunum kom fram Ó. M. kvintettinn, skipaður ungum piltum úr Reykjavík. Leikur þeirra var athyglisverður af unglinga- hljómsveit að vera, en vafasamt að gera hlut þeirra eins stóran og raun bar vitni, ])rjú lög hefði verið liæfi- legt. Þarna kom fram stór hljóm- sveit undri stjórn Kristjáns Krist- jánssonar. Hún var æfð upp sér- staklega fyrir þessa hljómleika en gerði engu að siður margt laglega. Það er aumt ástand í dansmúsík- málum hér að ekki skuli vera til fullkomin stór hljómsveit, sem stöð- ugt sé i æfingu og komi fram á hljómleikum eða dansleikjum af og til á árinu. Þarna söng og Agnes Ingvars- dóttir, danspör sýndu twist og Baldur Georgs kynnti. Þetta er söngflokkurinn TOKENS, sem sungu lagið wThe Lion Sleeps Tonight“ inn á plötu, en lag þetta hefur verið mjög vinsælt hér á landi undanfarnar vikur. Heyríst iðulega í útvarpsstöðvunum og á vafalaust eftir „að ganga“ í nokkr- ar vikur í viðbót. Hér kemur ný mynd af Elvis hljómplötu, sem m. a. fæst hér í Presley. Með honum á myndinni er verzlunum. Tvö laganna hafa verið Joan Blackman og eru þau að leika gefin út á lítilli plötu, „Rock-a-hula í kvikmyndinni „Blue Hawaii“. í baby“ og „Can‘t help falling in myndinni syngur Elvis fjórtán lög, love with you“. Bæði þessi lög hafa sem hafa verið gefin út á LP- náð miklum vinsældum hér á landi. HVorOlI C BaUMuíílnN Draumspakur maður rseður draamo fyrir lesendur Vikunnar. Kæri draumaráðandi I Mig dreymdi að ég væri inn í þröngum dal, og önnur fjallshlíð- in væri snarbrött og mikið af klett- um. Mér fannst ég vera búin að fara oft upp og niður þessa kletta. Svo var ég komin inn i hús sem nýbúið var að steypa gólfið í, og ég fór eftir gólfinu en mér fannst mágur minn hjálpa mér svo að ég sykki ekki ofan i steypuna, en mað- urinn minn horfði á. Svo næst sát- um við þrjú við borð og einhverjir fleiri. Þá fannst mér koma stúlka sem mágur minn þekkti, en við ekki, hún var gift en var að elta hann. Svo fannst mér ég segja henni hvað hann sé góður við mig, hann sé bú- inn að hjálpa mér og hann hafi borið mig yfir steypta gólfið og hann sam- sinnti þvi. Svo tekur hann hálft epli upp úr brjóstvasa sinum og gef- ur mér en borðar hin helming- inn sjálfur, en hann var heldur minni en sá sem hann gaf mér og eplið var blóðrautt. En við þetta var stúlkan svo reið að hún tekur tvær litlar rauðköflóttar tuskur og ætlar að berja mig með þeim renn- andi blautum, og segir um leið: „Ég skal sjá um þú þurfir ekki að klifra kletta eða annað hér á eftir“, en i þvi tekur maðurinn minn hana svo húu getur ekki barið mig. En þá fer hún að kyssa hann svo innilega, og næst sáum við mágur minn þau liggjandi uppi i rúmi. Ég var svo hissa að ég hugsaði að ég gæti ekki horft þarna á þau, það væri bezt að fara út úr herberginu og við það vaknaði ég. Með fyrirfram þökk fyrir vænt- anlega ráðningu. — S.H. Svar til S.H. Að klífa upp og niður kletta er fyrir erfiðleikum, en að mágur þinn skyldi hjálpa þér bendir til að ykkar samband geti orðið nán- ara heldur en kallazt gæti að góðu hófi gegndi. Einnig aam- neyti ykkar á eplinu rauða þykir mér benda í þessa átt. Hins veg- ar álít ég að faðmlög manns þíns við konu þá, er rar að elta ólar við mág þinn, sé tákn þess, að hann verði sér til allverulegrar skammar og hneikslis í hegðun, svo mjög að illt orð geti komizt á kreik um hann. Kæri draumaráðandi! Mig langar að biðja þig um að ráða fyrir mig draum, sem mig dreymdi í nótt. Mér fannst ég vera stödd heima og það var orðið framorðið, klukkan um 11 að kveldi. Þá fannst mér vinur minn koma, sem er úti í löndum, og við drógum upp hringana. Mér fannst hringurinn minn vera stærri, en ég hugsaði að það gerði ekkert til þótt hann væri svolítið víður, hann kæm- ist ekki fram yfir hnúana, svo það væri engin hætta á að ég týndi hon- um. (Ég bar hann á vinstri hendi). Mér fannst kærastinn mjög daufur og varla dróst út úr honum orð. Ég var svolítið kviðin, en samt virt- ist ég vera hamingjusöm á yfirborð- inu. Pabbi og mamma urðu fyrir vonbrigðum, þvl þeim fannst þetta vera alltof fljótfærnislegt hjá okk- ur. Og þegar við fórum til foreldra hans var ég mjög taugaóstyrk og mér fannst ég vera í alla staði ó- möguleg. Þau voru lika mjög hissa og gátu varla komið upp orði fyrir undrun. Með fyrirfram þakklæti. — Gurrý. Svar til Gurrýar. Aðalinntak draumsins er hring- nppsetningin, þar, sem þú setur upp of víðan trúlofunarhring og foreldrum þínum finnst þetta vera of fljótfærnislega gert. Ég álít að hinn of víði hringur sé merki þess, að trúlofun ykkar kunni að dragast lengur heldur en þér hefði fundizt æskilegt nú, en eigi er auðvelt sköpum að renna, og svo mun fara, sem verða vill. Ég álít nefnilega að þú eigir eftir að vaxa út í hring- inn og þess vegna dreg ég þá ályktun að trúlofunin kunni að dragast. Ekki ber heldur á öðru en að kærastinn hafi verið daufur og foreldrar þínir voru óánægð svo og þú sjálf síðaat í draumnum. VIKAN 27

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.