Vikan


Vikan - 08.03.1962, Blaðsíða 31

Vikan - 08.03.1962, Blaðsíða 31
og dýrs, sem sat fast í gildru, í senn þrungið ótta, þrjózku og hatri. „Hvers vegna verður þetta að vera Þannig?“ spurði hún enn. Hún leit út yfir borgina. „Ekki hata ég Þetta fólk . . . „En það ann þér ekki“, svaraði Bernardo. „Og taktu nú eftir því, sem ég segi. Ég vil ekki að þú sitjir ein þíns liðs hérna uppi á þakinu". „En ef Chino situr hérna hjá mér?“ „Nei, jafnvel ekki þótt Chino sitji hérna hjá þér“, svaraði bróðir henn- ar. „En honum þykir vænt um mig“, sagði María. „Er það I rauninni satt, að hann hafi fært það í tal við pabba og mömmu, að hann vildi kvænast mér?“ „Það er satt“. Bernardo vafði syst- ur sína örmum og þrýsti henni fast að sér. „Og þegar þú ert gift honum, getið þið setið hérna uppi á þakinu hvenær sem þið viljið". „En þú mátt hvergi fara ein þíns liðs“, bætti hann við. „Þessum banda- rísku þorpurum er trúandi til alls; þeir álíta sig rétthærri en okkur, og ef jafnfalleg stúlka og Þú verður á vegi þeirra . . . “ Framhald í næsta blaði. Lán eða böl. Framhald af bls. 13. á þessu. Þess vegna hélt hann að þetta væru þeir og vildi ekki trúa.“ — Skelfing geta menn verið illa innrættir ... „Já. En svo höfum við lika sann- anir um hið gagnstæða, — eins og t. d. með einn okkar ágætu umboðs- manna úti á landi. Við höfum um 100 umboðsmenn, allt saman prýð- isfólk, sem gerir þetta mest af áhuga einum saman, því litið er upp úr því að hafa. Þessi maður er bóndi í sveit, og hjá honum var ungur piltur í vinnu. Bóndinn vildi gera piltinum gott, og sagði við hann, að hann ætti nú að fá sér einn miða í happdrættinu. Pilturinn vildi ekkert með það hafa, sérstaklega vegna þess að hann þóttist ekki eiga fyrir mið- anum. Bóndinn tók það þá upp hjá sér, að hann skrifaði piltinn fyrir ein- um miða og færði hann í bækur sínar, en greiddi sjálfur miðann. Svo hættir pilturinn að vinna hjá honurn og fer i burtu. Eftir nokkurn tíma kemur svo stór vinningur upp á miðann. Umboðsmaðurinn tók sig þá til og fór að grennslast fyrir um hvar pilturinn væri niður kominn og ieitaði í rauninni að honum í iang- an tíma um allt land. Lol sins fann hann piltinn og gal troðið á hann peningunum, sem hann vann.“ — Þetta kalla ég heiðarleika. ,,Já, það er óhætt með það. Sumir hefðu ef til viil reynt að nota sér þessa aðstöðu öðruvísi.“ — ]>að er margt í mörgu ... ,,Þá man ég ])að, já. Hefir þú trú á di'aumum? Mundir þú segja að ])að væri að marka drauma 'um.ein- livér ákve-ðin númer? Sumir fara miög eftir þessu, og einkennilegir hluiir koma fyrir- í því sambandi. Það kom iil okkar maður fyrir nokkru og bað okkur um ákveðið númer. Núinerið var þegar selt, og við sögðum það. Hann bað okkur að segja sér hve-r ætti miðann, því Framhald á bis. 33. Toni heimapermanent gerir hár yóar mjúkt, gljáandi og meófærilegt Með Toni fáið pér faUegasta og varanlegasta permanentið. Vegna þess að “leyniefni” Toni heldur lagningunni og gerir hárið svo meðfærilegt, að þér þurfið aðeins að bregða greiðunni í hárið, til þess að laga það. Ekkert annað permanent hefir “leynicfni”. það er eingöngu í Toni. Toni er framleitt i þremur styrkleikum REGULAR fyrir venjulegt hár SUPER fyrir mjög fínt hár GENTLE fyrir gróft hár, skolað og litað hár Einn þeirra er einmitt fyrir yður. Toniframleiðsla tryggir fegursta hárió VIIÍAN 3X

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.