Vikan


Vikan - 08.03.1962, Page 42

Vikan - 08.03.1962, Page 42
VALVER 7 Sími 15692 LAUGAVEG 48 SEIÐUR. Frh. an hátt, haföi hin fagra, ókunna kona orðið að tákni kvenlegrar feg- urðar í augum heirra beggja, og þó hann neitaði þvi, mundi það ekki slá ryki í augun á Rut. Hann vissi ekki hvað hann átti að gera til að endurheimta það góða samband, sem alitaf var á milli þeirra. Friðurinn, sem var einkenn- andi fyrir heimili hans, var rofinn, og Rut var skyndilega orðin að ó- kunnri konu. Nú sá hann háa, stór- beinótta, miðaldra konu, með slappa húð, ljós augu og grátt hár. Hann þoldi ekki að sjá hana á þennan hátt, og hann gat ekki komið niður bita af bautanum. — Ég veit ekki hvað ég á að segja, Rut, sagði hann óhamingju- samur. Okkur hefur aldrei orðið sundurorða. —- Og það er engin ástæða til þess núna, sagði hún. Ekkert hefur breytzt. Ég hef 'alltaf litið svona út. — Nei, það hefur þú ekki, sagði hann barnalega. Þú litur — ein- hvernveginn öðru vísi út. Ég hef aldrei séð þig svona fyrr. — Ef til vill sérðu mig núna eins og ég er, sagði hún rólega. Vinnustúlkan kom inn og tók diskana fram. Hún kom inn aftur með ábætinn. — Við skulum byrja upp á nýtt, sagði hann. Hvað olli breytingu þinni? Er það ókunna konan? — Það ert þú, sem hefur breytzt, en ekki ég. Ég hef alltaf verið svona. — Meinarðu . . . Hann gat ekki fengið sig til að halda áfram og segja: hefirðu alltaf liðið fyrir út- lit þitt? — Alltaf, sagði hún, eins og hann hefði sagt þetta. — Hefirðu ekki verið hamingju- •öm með mér? spurði hann og lagði frá sér gaffalinn. — Jú, með þér, fullkomlega. Ers ekki með sjálfri mér. Það olli henni erfiðleilíjum að halda áfram og hann tók eftir því. — Einu sinni sagði Stuart við mig, þegar hann var aðeins fimm ára gamall: Af hverju ertu ekki sæt eins og aðrar mömmur? Hann langaði til að hugga hana. — Þú veizt hvernig börn eru, sagði hann. — Hræðilega hreinskilin, sagði hún fljótmál. Hann byrjaði aftur að borða, hann gat ekki borið á móti neinu. Eftir nokkra stund hringdi hún á stúlkuna og bað hana að bera út ábætisdiskana. Þegar hún var far- in, öskraði hann næstum: — Sjáðu til, Rut, ég veit ekki hvert þú ert að fara. Þú hefur aldrei áður komið svona fram. Ég hef heyrt aðra menn tala um, hve erf- iðar í sambúð konur þcirra séu, og ég hef alltaf þakkað guði fyrir, að þú hefur verið öðruvísi. Nú ert þú afbrýðisöm út í konu, sem ég þekki ekki og sem ég mun aldrei sjá aftur og sem ég óska ekki eftir að hitta . . Ég geri ráð fyrir, að það sé gnægð laglegra stúlkna á skrifstofunni, en ég sé þær ekki, — og ég hef alltaf verið þakklátur fyrir friðinn á heim- ili mínu . . . Hún stóð á fætur og brosti dauf- lega. — Mig langar til að vera ein í fimm mínútur, sagði hún. — En ef þú ert sorgbitin . . . . sagði hann og rétti henni höndina. — Bara fimm mínútur, sagði hún, og svo skulum við drekka kaffið í setustofunni, er það ekki í lagi? Það er lagt i arininn, það er ekkert annað eftir en kveikja. Hún gekk upp stigann og inn í herbergið sitt. Hún gekk að glugg- Blóm á heimilinu: Rodnfiéttfl eftir Paul V. Michelsen. Algengust er hér Columnea gloriosa, frá Costa Rica, mjög faileg hengijurt. Stönglar henn- ar eru þéttsetnir rauðbrúnum, hörðum, aflöngum, hálfskökkum, gagnstæðum blöðum. Hinar blað- miklu hangandi greinar geta orðið allt að meíri að lengd. Blómgast á vorin og fram á sumar. Blómin gljáandi, appels- inurauð, uin G cm löng og vaxa úr blaðöxlunum. Blómginið er gult. Nokkrar nýjar tegundir af roðafléttum eru að koma á mark- að. C. Vega, sem vex upprétt marggreinótt. C. crassifolia, vex einnig upprétt, mjög lágvaxin, yndisleg, og C. Stavanger, hengi- planta, mjög ríkt blómstrandi. smáblaða, dásamlega falleg. Það er ekki hægt að segja að það sé vandalaust að rækta roða- fléttur, en þær launa ríkulega, ef vandað er til þeirra. Þær þola dálitla sól en ekki úðun á blöð- in. Vaxa mjög fljótt og vel að vorinu og efti, aö plantan byrj- ar að ,,linuppa“ sig er ekki vert að liafa meira en 12—14 stiga hita á henni, ekki nijög bjart og ekki of niikla vökvun, þvi það á illia við hana að standa alltaf rök. Roðafléttu er fjölgað með græðlingum, sem toppaðir eru einu sinni eða tvisvar, svo plant- an greini sig. Líka má láta 3—5 græðlinga í sama pott og mynd- ast þá þétt og falleg planta. 42 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.