Vikan


Vikan - 02.08.1962, Side 13

Vikan - 02.08.1962, Side 13
 MYND verður algerlega óháð, eins og áður er sagt, og mun leggja áherzlu á það íyrst og fremst að .... En annars. Við skulum ekki hollaleggja meira um þetta i bili, — við skulum heldur snúa okk- ur beint lil stofnandans og eiganda blaðsins, Hilmars A. Kristjánssonar. — Á hvað verður lögð aðalálierzla, fyrst og fremst, Hilmar? — Á ábyrga og l'ullkomna fréttaþjónustu. Það er okkar lyrsta áhugamál. Meiningin er sú, að afla blaðinu þess álits, að þær fréttir, sem þar koma, séu fyrst og fremst réttar og sannar, ólit- aðar af persónulegum eða flokkslegum hags- inunum. Það er ekki meiningin að teygja úr fréttum eða kryfja þær til mergjar, heldur að birta kjarnann úr þeim, kannski stutt, en satt og rétt. Til þess hefur verið stefnt í langan tima með þeim undirbúningi, sem gerður hef- ur verið.“ — Hefur verið langur undirbúningur að stofnun blaðsins? „Það má segja það, því ég hefi haft hug á þessu í nokkur undanfarin ár. Raunar var ég farinn að hugsa um það áður en ég réðst í kaup á Vikunni.“ — Það má þá reikna með að liér sé ekki gan- að að neinu i flýti? „Ef tíminn væri mælikvarði á það, þá er óhætt að segja það. Annars höfum við reynt að vanda til undirbúningsins eins og við frekast höfum getað. MYND verður i sambandi við stærsta útgáfufyrirtæki i heiminum, en þau gefa út stórblöðin Bild Zeitung, í Þýzkalandi, Daily Express og Daily Mirror í Englandi. Aðalvið- skiptasámband okkar verður líklega við Daily Express og höfum einkarétt á efni frá þeim.“ — Er ekki áhættusamt að fara að gefa út dagblað núna, þegar önnur dagblöð virðast berjast í bökkum fjárhagslega? „Ég álit það ekki. Efni og frágangur blaðsins verður með svo gerólíku sniði frá öðrum dag- blöðum, sem öll eru flokksbundin, en það er varla hægt að bera þau saman. Ég hefi lika verið svo lánsamur með ráðningu manna við blaðið, að ég er viss um að við getum unnið efni blaðsins það vel að það falli í geð al- mennings hér.“ — Það er nokkuð fjölmennt starfslið við blaðið? Sigurjón Jóhannsson, blaðamaður. ,Já, ég held mér sé óhætt að segja að starfsliðið sé til- tölulega meira en hjá nokkru öðru blaði hérlendis. Það veit- ir okkur möguleika til að ganga svo vel frá blaðinu og vinna það svo, að það ætti að vera betra en við eigum að venjast hér, — ef vonir mínar rætast“. — Hve margir starfsmenn verða við blaðið? „Við blaðið munu vinna um 30 manns, þar af 7 blaðamenn og ljósmyndari á ritstjórn. — Hvar verður það prent- að? „Steindórsprent mun ann- ast setningu og umbrot, en prentunina annast blaðið sjálft.“ — í prentsmiðju Hilmis? „Nei, ég festi kaup á prent- vél, sem ég mun nota til þess að prenta þetta blað. Hún verður staðsett þar sem áður var geymsluhús 0. .Tohnson & Kaaber við Hafnarstræti, — beint á móti Markaðnum og fatahreinsuninni Glæsi. Þar Framhald á bls. 34. VIKAN 13

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.