Vikan - 30.08.1962, Síða 39
Rennibraut til vítis
Framhald af bls. 23.
Síðar var allt hverfifS nefnt þessu
nafni, og siðar hafa önnur hverfi
i öðrum borgum verið kölluð Skid
Row. Ef sagt er um einhvern, að
hann sé á „Skid Row“, þá þýðir.
það, að hann sé raunverulega lif-
andi dauður, dottinn ofan i dýpsta
brunn drykkjuskapar óg ómennsku
þessa heims.
Fyrir skömmu lá leið mín um
þessa umtöluðu götu, er ég var í
boði Loftleiða i New York. Ég fór
þar um ásamt nokkrum flugmönnum,
sem flugu vélinni út. Loftleiðir
lögðu okkur til bifreið og dökkan
bílstjóra, og þegar talið barst að
þessu hverfi — af einhverjum ó-
kunnum ástæðum — þá spurði ég
hvort við værum langt frá þeim
stað. Sá dökki sagði, að þangað væri
ekki langt að fara, og þá bað ég
hann blessaðan að aka þar um.
Hann reyndi fyrst að telja mér
hughvarf, því hann sagði að hverfið
væri frægt íyrir alls konar hryðju-
verk og óknytti, — betl, þjófnað,
morð, slagsmál og hver-veit-hvað.
En ég hélt fast á málinu, og þegar
ferðafélagar minir fullyrtu, að þeir
mundu allir standa saman sem einn
og verjast hvers konar ófögnuði með
höndum og fótum, þá lét hann loks
til leiðast.
Litlu síðar ókum við um „The
Bowery“, þessa frægu götu. Gatan
er breið á okkar mælikvarða, en ó-
snyrtileg. Húsin eru gömul og illa
við haldið, og mörg þeirra hálfrifin
niður, því það mun vera áformað að
rifa hverfið til grunna og byggja að
nýju.
í öðru hverju húsi eru vinsjoppur,
„matsöluhús“ og gististaðir, sem inn-
fæddir kalla flóabæli, en þar mun
vera hægt að fá dýnu til umráða yf-
ir nóttina fyrir örfáar krónur. Þeir,
sem hafa ráð á því, sofa þar, en
aðrir bara úti í húsagarði eða ann-
ars staðar, þar sem þeir detta nið-
ur.
Umferð er tiltölulega lítil um göt-
una, og þá helzt af drukknum vesa-
lingum, bæði hvítum og svörtum, —
bó meira svörtum. Við stönzuðum við
breið gatnamót og gengum út. Á
gangstéttinni lá negri upp við hús-J»j
vegg og steinsvaf, sýnilega útúr-‘
drukkinn. Menn gengu i boga fram-
hjá honum eða klofuðu yfir hann,
þvi þetta var algeng sjón. Skammt
frá sátu tveir negrar flötum bein-
um, og virtust ekkert taka eftir því,
sem fram fór, þvi þeir voru sýni-
lega í djúpri vímu. í kring um þá
lágu fötin utan af þeim, tóm flaska
og fleira smávegis, sem engum hef-
ur þótt fengur í, þvi annars hefði
þvi vafalaust verið stolið.
Hinum megin við götuna sýndist
mér maður sitja á stéttini, en við
hlið hans var stór hleri redstur upp
við húsvegginn og skýldi honum fyr-
ir sólinni. Þegar ég gekk nær með
myndavélina, brosti hann til mín
tannlaiisu brosi og rétti lófann i átt-
ina til min. Þá sá ég, að þetta var
hvitur maður, og að hann vantaði
báða fæturna. Við nánari athugun
þóttist ég sjá, að hann hefðist við í
þessu skýli, nótt og dag, og væri
það „heimili" hans. Ég rétti honum
nokkra skildinga og hraðaði mér
þurt. Þegar ég var farinn að spig-
spora þarna með myndavélina, var
eins og eilitið líf kæmi i umhverf-
ið. Drukkinn negri kom til okkar,
veifandi vínflösku, og hvítur mað-
ur, illa á sig kominn, gekk til min
og bauð mér að taka af sér mynd
fyrir 10 cent (ca. 4 kr.). Hann sagð-
ist hafa verið hetja i heimsstyrjöld-
inni og nefndi mér herdeildina, sem
hann var í og nokkra minnisstæða
bardaga.
Á næsta götuhorni stóð negra-
stúlka, en drukkinn negri slangraði
til hennar, tók utan um hana og
kyssti. Þau stóðu þarna litla stund
úti á miðri götu og mynntust með
tilheyrandi faðmlögum og kropps-
svedgjum, sneru sér síðan til okkar,
veifuðu og hurfu fyrir húshornið.
Litill Kinverji gekk til okkar, tal-
aði heil reiðinnar ósköp í reiðitón,
steytti hnefana framan i okkur, benti
okkur á bilinn, fussaði og sveiaði og
hrækti. í fjarlægð sáum við nokkra
svola stefna á okkur — og fóru
hratt. Við sáum okkar óvænna,
stungum okkur inn i bilinn og skellt-
um á eftir okkur hurðinni. Bílstjór-
inn var sýnilega orðinn taugaóstyrk-
ur og iét engan tima fara til spillis,
tn gaf bnnum mn eins og liann gat.
jnur augnabnk þurrkaði hann af
scr svnann, hristi hotuOið og taut-
aöi eitihvað uiu, aO þar heíði ekki
niaii tæpara standa.
naö er sagt, að þarna megi íinna
foik ai öiium kynpáttum og ur öii-
um stettum. bjaifsagt er, aO parna er
mest um loik, sem upphauega heiur
alhrei átt tii að bera þá lestu, að
geta komið unuir sig fótum. Negrar
eru i yfirgnæianUi meirihluta, ó-
menntaö ioik og andiega veikbyggt.
nn þarna ma nka íinna mennta-
menn, tækna, iögíræöinga, verkíræð-
inga, presta og aðra, sem áður hala
jainvei s.onuzt toiuvert uppávio i
metorðastigahum, en siöan fanib
fyrir Bakkusi af eiuhverjum ástæð-
um. Sumir smátt og smátt, aðrir ailt
i einu. iviarga haia styrjaiair eyði-
lagt, bæði andiega og iikamlega, en
aðrir hafa eyðiiagt sjáit'a sig vilj-
andi eða óviljandi.
Hjálpræðisherinn og fjölmargar
aðrar iiknarstofnanir hafa unnið
þarna mikið og kostnaðarsamt líkn-
arstarf árum saman, gefið þessum
vesaiingum mat, klæði, húsaskjól,
reynt að hafa þá upp úr skitnum,
útvegað þeim atvinnu o. s. frv., en
þau eru vist teijandi tiifeliin, þar
sem það starl' liefur borið árangur,
'pví þeir, sem komnir eru í þetta
hverfi, eiga sjaiunast þaðan aftur-
kvæmt.
Nú á að rifa hverfið og byggja að
nýju eftir nútiðarskipulagi. En það
bjargar vafalaust engum úr þessum
hópi. Þeir finna sér samastað ann-
ars staðar, fiytja sig í annað hverfi,
sem siðar meir breytir um nafn, eft-
ir nokkur ár, og tekur sér þetta al-
þjóðanafn drykkjumannahverfa,
„Bennibraut til vítis“.
G. K.
ÓHÓF
Framhald af bls. 2.
að sannleikurinn mun vera sá, að
raunverulega þurfum við að horfa
í hvern eyri. Fjáraustur á báða
bóga eins og nú á sér stað, er því
bæði vítaverður og hættulegur og
eitt af því, sem ber að stemma stigu
við, áður en það er um seinan. Og
það getur orðið anzi óþægilegt að
vakna einn daginn með höfuðverk
og fá ekki umflúið þá ömurlegu
staðreynd, að flottlæfilsháttur hef-
ur orðið okkur að falli.
Eflaust munu einhverjir segja
sem svo, að svo oft og mörgum sinn-
um sé búið að fjargviðrast út af
þessu, að mælirinn sé löngu fullur
og skekinn. Því er til að svara, að
aldrei er góð vísa of oft kveðin, og
engin ástæða er til þess, að láta
staðar numið, fyrr en stjórnarvöld-
in rumska og taka þessar margítrek-
uðu umkvartanir til greina. Al-
menningur getur ekki þolað, að svo
illa sé farið með fé það, er menn
inna af höndum og mega velflest-
ir vart án vera.
Óhóf er að verða þjóðareinkenni
íslendinga, því að það er ekki ein-
ungis í risunni, sem ofrausnin rík-
ir. Hvar sem íslendingar fara, hand-
leika þeir peninga eins og börn,
bruðla þeim á báða bóga og slá um
sig með „flottheitum*. Fá erlend
hótel eru svo fín, að þau hafi ekki
gist íslenzkir peningamenn í verzl-
unarerindum eða valdhafar í em-
bættiserindum, og þeir eru alls stað-
ar hinir velkomnustu gestir, því að
hvarvetna, sem íslendingar koma,
er lifað flott og ekki horft í hvern
eyri.
Það mætti skrifa heilar bækur
um þjóðarlöst íslendinga, flottræf-
ilsháttinn, og væri þar af nógu að
taka. Þessi andskoti tröllríður þjóð-
ina og fyrr en varir mun hún riða
til falls, ef ekkert verður að gert.
Ný jazzsöngkona
Framhald af bls. 24.
U'
Siðan var henni boðið að syngja
inn á plötu fyrir Columiiía og
það eru liinir ágætu dómar, scm
plata þessi liefur fengið, sem
leitt hafa til þess, að Aretha er tal-
in vera jazzsöngkona framtiðárinn-
ar. Kannski kemur önnur Sarah
Vaughn cða Carmen McRae. ic
Hvað hlægir þig?
Framhald af bls. 14.
borðið. Flestir munu einhvern lima
á ævinni lifa svo afburða skoplegt
atvik, að þeim verði um megn að
stilla hlátri sínum í sæmilegt hóf.
Það er einn meginvandi við skýr-
ingu á eðli og uppruna hláturs,
hvers vegna hinn fyndni stendur
grafalvarlegur utan við, þegar orð
hans velcja öðrum óstjórnlegan hlát-
ur. Á tvennt má þó benda til skýr-
ingar. Áhrif hins óvænta í fyndninni
falla að miklu leyti burt hjá höfundi
hennar. Hann hefir orðið ónæmur,
um leið og skrýtlan var fullmótuð i
huga hans. í öðru lagi nær hann á-
hrifum sínum oft með því að leika
liinn einfalda, aðeins eru orð hans
og látbragð hnitmiðuð við tilfinn-
ingaviðbrögð annarra. Því væri það
líka fjarstætt, að hann lilæi sjálfur
að fyndni sinni. Gamanleikari, sem
lilæi sjálfur að brögðuin sínum,
kynni illa list sína. Hugur liins
fyndna er bundinn við markmiðið,
að vekja öðrum lilátur, og stífiuð
sálarorka, sem fær frainrás í hlátri
lijá þeim, rennur hjá honum beint
í skop og fyndni. jc
INNOXA
snyrtxvorur
INNOXA
¥1KAN 39