Vikan - 16.05.1963, Blaðsíða 3
Útgeíandi Hilmir h. i.
Ritsíjóri: ,
Gisli SigurSsson (ábm.).
Auglý.siriffast jór £:
Jóna Siffurjónstióttír.
Blaðsimcun:
tíiiðniniidur Karisson og
Siffurður Hrciðar.
Útlitsteikninff:
Snorri Fiiðriksson.
Ritstjóm og auglýsingar: Skipholt 33.
Símar: 35320, 35321. 35322, 35323.
Pósthólí 149. Afgreiðsla og dreiling:
Blaðadreifing, Laugavegi 133, sími
36720. Dreiíingarstjóri Óskar Karlsson.
Verð i lausasölu kr. 20. Askriítarverð
er 250 kr. ársþriðjnngsiega, greiðist
fyrirfram. Prentun Hilmir h. f. Mynda-
mót: Rafgraf h. f.
í NÆSTA BLAÐI
SÆLUVIKA. Stefán Pedersen, ljós-
myndari á SauSárkróki, tók margar
skemmtilegar myndir á Sæluvikunni.
Næsta Vika verður Sælu-Vika.
MINN FYRIRRENNARI VAR KROSS-
FESTUR. Sh. ræðir við Alfreð Flóka.
Alfreð Flóki er ófeiminn í tali og seg-
ir það sem honum býr í brjósti.
GETRAUNIN. Fimmti hluti getraun-
arinnar. Sá sem vinnur, fær að velja
á milli Volkswagen og Land Rover í
vinning.
VIKAN A VIGSTÖÐVUNUM. Frétta-
menn í Reykjavík taka á móti varð-
skipinu Óðni og togaranum Milwood.
Grein og myndir.
GRISKUR HARMLEIKUR — EÐA
GRÍN MEÐ LÍKKISTUR. Það er stund-
um betra að vita, hverju/m maður
fylgir til grafar. Skemmtileg smásaga.
FJALLASTÚLKAN. Ef ástin er sönn,
fær ekkcrt torleiði stíað elskendurna.
Bráðskemmtileg smásaga um ást, sem
nær yfir aurugan veg, sem ekki er fær
öðrum bílum en jeppum.
5MJÖRÞjÓFARNIR. I þessu blaði byrj.
ar sagan um lífsbaráttu þeirra Earl og
Escos, henni lýkur í næsta blaði.
LJÚKIÐ VIÐ MYNDIRNAR: Sköpun-
argleðin er öllum í blóð borin. Vikan
gerir sitt til þess, að menn fái útrás
fyrir þá gleði, með nýjum þætti.
I ÞESSARI VIKU
HANN GEGNIR HLUTVERKI
SKRIFT AFÖÐURIN S.
Á s.l. ári lánaði Húsnæðismálastofnunin samtals
92 milljónir lcr. Eggert Þorsteinsson, alþm. er for-
maður Húsnæðismálastjórnar og til hans koma
hrjáðir húsbyggjendur og bera upp vandræði sín.
Hann segir frá peningamálum, æskilegum úrbótum,
íslenzkum byggingarháttum og útlendum í viðtali
við Vikuna.
SMJÖRÞJÓFARNIR.
Lífsbaráttan getur verið hörð. Hún var það að
minnsta kosti á stríðsárunum fyrir þá Earl og Esco,
sem börðust fyrir sínu lifibrauði og ennfremur
fyrir því að halda gamla Húdsoninum sínum gang-
andi. Skemmtileg saga, sem birtist í tveimur blöð-
um. Hér kemur fyrri hlutinn.
MEÐ NÝUPPTEKINN MÓTOR
Nú er farið að skoða bílana og eins og allir vita,
er ekki hlaupið að því að koma bílnum sínum í
gegn. Hann er gerður afturreka, ef eitthvað er að.
Og verkstæðin hafa ekki við. Hér segir sh frá reynslu
sinni í sambandi við bifreiðaeign á skoðunartím-
anum, sem að mestu er fólgin í akstri milli bifreiða-
eftirlitsins og hinna ýmsu verkstæða.
ÞESSU VAR ALDREI UM
ÁLPTANES SPÁÐ.
Dombrowski, einn kunnasti vísindamaður Þjóðverja
hefur oftar en einu sinni komið til íslands og gert
uppgötvanir. Loftur Guðmundsson, skrifar um
vísindauppgötvanir hans, hina elztu fulltrúa lífsins
á jörðinni og líkurnar fyrir því að líf berist á
milli hnatta.
CHDQflDAftl Rauður Volkswagen á skreyttum vagni, borðar og flögg. Þessi
rUltOlllnll skrautvagn hefur farið um bæinn og hvarvetna vakið athygli
eins og getraunin sjálf og vinningarnir, sem í boði eru. Það
var að sjálfsögðu Land-Rover, sem var í hlutverki dráttarhestsins og fór létt með. Við
viljum enn minna á, að láta ekki happ úr hendi sleppa — hver vill ekki komast í þá
aðstöðu að geta valið sér annaðhvort Volkswagen eða Land-Rover. Stúlkan á myndinni
heitir Þórunn Árnadóttir, þekkt ballettmær og hefur áður verið á forsíðu Vikunnar.