Vikan - 06.06.1963, Page 15
<rO
Háaleitisbraut 54
Fjögurra herbergja íbúð
í sambýlishúsi
Hér er sýnishorn af fj ögurraherbergj a íbúð í blokk, sem
Kjartan hefur teiknað. Það reynist oft erfitt
að komast hjá ferkantaða forminu í sambýlishúsum,
en hér leysir Kjartan málið á þann hátt,
að eldhúsið er byggt út úr húsinu ásamt stigaganginum.
Tvö svefnherbergi og baðherbergi
eru alveg sér á gangi.
U-
■ 4«4——W—fe -
Lindarflöt 36
Garðahreppi
Einbýlishús 2l4m2
Þetta er stórt einbýlishús 8 herbergi —
í „bungalow“-stíl. Hér er mikil áherzla
lögð á að mynda skjólgóðan garð móti
suðri. Húsið umlykur hann að nokkru
leyti á þrjá vegu og þær hliðar
hússins, sem snúa út að þessum garði
eru mestmegnis úr gleri. Húsið verður
fyrir þessa sök útveggjamikið, en Kjartan
telur það ekki hleypa fram byggingar-
kostnaði eins og margir halda.
Svefnherbergjadeildin er alveg sér og
sérstakt búningsherbergi inn af hjóna-
herbergi í stað hins venjulega
fataskáps.Stofan og borðstofan mynda
vinkil utan um eldhúsið og blómaKerið
í suðurglugga stofunnar er byggt
ofan í gólfið. Útlit hússins er eins og sjá
má af teikningunni hér að ofan,
sérlega vel heppnað.
mmm
VIKAN 23. tbl.
15