Vikan


Vikan - 06.06.1963, Blaðsíða 32

Vikan - 06.06.1963, Blaðsíða 32
 KLEOPATRA sólgleraugun eru tízkugleraugun í ár. Á vörusýningunni síðustu í Frankfurt voru sýndar ýmsar gerðir af sólgleraugum. ★ Kleopatra sólgleraugun (sjá mynd) vöktu einna mesta athygli og voru almennt talin Evrópu-stíll 1963. 'jér Kleopatra sólgleraugu eru framleidd af V.-Þýzka firmanu ECHTENIA. Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ©Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl): Vikan ber góðan árangur, það er að segja ef þú lýkur við verkefni þitt nú, áður en þú tekur fyrir það næsta- Þú skalt hafa fremur rólegt um þig og haltu ekki fullyrðingum þínum endalaust til streitu, þegar sann- að er, að þú ferð með alrangt mál. ©Nautsmerkið (21. apríl—21. maí): Vikan verður dálítið erfið og fremur bragðlaus, það eina sem'þú getur gert er að taka lífinu rólega. Þú þarft að umgangast fremur margt ókunnugt fólk og mun þessi aðstaða þreyta þig fremur en hitt. Þú ættir að vera heppin í fjármálum. Tvíburamerkið (22. maí—21. júní): Þú færð einstakt tækifæri til að sinna áhugamáli sem þig hefur lengi dreymt um. Vikan er sérstaklega hag- stæð fólki sem fæst við alls kyns viðskipti. Ef þú ert að leggja út í einhver persónuieg viðskipti skaltu bíða þar til eftir helgi. Krabbamerkið (22. júní—23. júlí): Framan af verður vikan fremur hversdagsleg. En skyndilega birtir til með komu ákveðinnar persónu sem þér þykir mjög vænt um. Þessi vinur þinn og þú munu svo sannarlega eiga ógleymanlegar stundir sam- an. Þriðjudagur og miðvikudagur verða áreiðanlega skemmti- legir. Ljónsmerkið (24. júlí—23. ágúst): Það eru erilsamir dagar framundan, ekki einungis á vinnustað, heldur einnig heima við, og ekki hvað sízt gefast þér sérlega góð tækifæri til að sinna hugðar- efnum þínum. Það er sama hvar þú ert eða hvað þú gerir það verður ekki annað séð en að þú verðir mjög starfsamur. Meyjarmerkið (24. ágúst—23. sept.): Þú ert dálítið þreyttur og finnst tilveran dauf og ó- skemmtileg og það skeður áreiðanlega eitthvað sem er alveg nýtt fyrir þig. Það er bara að þú kunnir að taka á móti og gera þér mat úr tækifærinu. Það gildir að halda jafnvæginu og þræða hinn gullna meðalveg. Vogarmerkið (24. sept.—23. október): Þú vinnur verk þín af hinni mestu samvizkusemi en þó hafa vinnuveitendur þínir ekki rétt mat á þér vegna hlédrægni þinnar af hverju sem hún nú stafar. En af tilviljun gerist nokkuð sem hrífur þig inn í svið- ljósið, og þú færð í hendur ábyrgðarmikið verkefni. m ECHTENIA de luxe models (plagué)* EINKAUMBOÐ : H. A. TULIIVIUS - Heildverzlun $ Drekamerkið (24. okt.—23. nóv.): Þú uppgötvar í þessari viku eitthvað sem er mikil- vægt fyrir einkalíf þitt. Það er undir þér komið hvem- ig afleiðingarnar verða, það er ekki víst að þér finn- ist þetta nein gleðitíðindi, en mundu að þú hefur hreint ekki svo lítið að segja. En þú verður að sýna talsverða lipurð. Bogmannsmerkið (24. nóv>.—21. des.): Vikan einkennist af atburðum einkalífsins og þá sér- W&a 3 staklega samband manna og kvenna. Það gerist sitt- W lypr hvað nýtt og spennandi. Þú sýnir það áræði að bregða út af þessu vanabundna og hversdagslega og uppslceran verður ríkuleg og muntu njóta þess lengi. Geitarmerkið (22. des.—20. jan.): Líklegt er að þú gerir eittlivað í vikunni sem ein- hverjir mundu kalia góðverk en þú gerir einungis af Því að Þig langar til þess. Þú skalt ekki láta neinn -aftra þér til þessa verks það mun hafa mikið gott í för með sér. Vatnsbcramerkið (21. janúar—19. febrúar): Hræðstu ekki að taka að þér erfitt verkefni sem býðst. þér í vikulokin. Geta þín og starfsorka er meiri en. þú heldur og þú hefur mjög gott af því að spreyta þig á þessu. Ungir og ólofaðir munu eiga margar ánægjuríkar og rómantískar stundir. Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz): Þér hefur hætt tii að láta áhugamálin ganga fyrir- atvinnunni, þú verður að taka þig á ef þú ætlar ekki að dragast aftur úr. Tveir vinir þínir eru að undirbúa eitthvað sem kemur þér á óvart og em allar likur á að þú gangir i lið með þeim. 32 — TIKAN 23. thL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.