Vikan - 20.06.1963, Blaðsíða 32
Val unga fólksins - Heklubuxurnar —
amerískt efni nylon nankin — vandaður
frágangur. Betri buxur í leik og starfi
*
n
4
'biimar
i
J§
■
ÍIIl;
pi
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
iíiíSfií-
1111
lllll
©Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl):
Þú verður fremur óþolinmóður og uppstökkur þessa
viku, en bættu úr því með að létta þér svolítið upp
og slappa af. Fjármálin eru ekki í sem beztu
lagi og gætir þess nokkuð í byrjun vikunnar. Þú
skalt treysta kunningja þínum í ákveðnu máli.
ONautsmerkið (21. apríl—21. maí);
Peningarnir sækja til þín eins og járn að segli.
Margt kemur þér óvænt í þessu sambandi, en not-
færðu þér aðstöðuna eins vel og þú getur. Þessi
óvenjulega heppni gæti orðið þér til mikillar gæfu.
Haltu þér í jafnvægi, hvað sem á dynur.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní):
Reyndu eitthvað nýtt í vikunni. Framkvæmdu
eitthvað af þessum gömlu, spennandi ævintýra-
draumum. Næstu dagar virðast bjóða upp á mörg
og skemmtileg tækifæri. Þú þarft að umgangast
margt nýtt fólk sem veitir þér talsverða ánægju.
Krabbamerkið (22. júní—23. júlí):
Vikan gæti orðið unaðsleg, ef þú ert móttækilegur.
Allt virðist leika í lyndi og þú munt koma auga á
dásemdir lífsins, ef þú ert ekki of kröfuharður
til umhverfisins. Laugardagurinn verður mjög
skemmtilegur og þú verður miðpunktur í hópi félaganna.
Ljónsmerkið (24. júlí—23. ágúst):
©Því miður verður vikan fremur erfið, eins og sú
síðasta. Sérstaklega mun atvinnan skaprauna þér,
það gengur flest á tréfótum varðandi hana. En
taktu þessu með góða skapinu, því það mun létta
mikið undir með þér og aðstaðan alls ekki svo erfið, að þú
ráðir ekki við hlutina.
©Meyjarmerkið (24. ágúst—23. sept.):
Ýmislegt verður þér til ánægjuauka. Láttu allar á-
hyggjur lönd og leið. Þú hefur fulla ástæðu til að
líta björtum augum á framtíðina. Helgin er ást-
föngnu fólki sérstaklega hagstæð. Heimilislífið
verður mjög friðsælt og ánægjuríkt.
Vogarmerkið (24. sept.—23. okt.):
Þú hefur ekki rétt mat á þeim aðstæðum sem þú
býrð við. Þú ættir að kappkosta við að skilja þær.
Aðeins með því móti geturðu brugðizt rétt við
verkefni, sem þú hefur nýlega fengið í hendurnar.
Þetta er þér alls ekki ofvaxið.
Drekapierkið (24. okt.—24. nóv.):
Vikan verður mjög venjuleg og dregur ekki til
tíðinda fyrr en ef til vill á miðvikudagskvöld.
Sennilega færðu fréttir af gömlum félögum, sem
þú hefur ekkert heyrt frá langalengi. Gættu var-
úðar og tillitssemi við persónu, sem er þér nákomin.
Bogmannsmerkið (23. nóv.—21. des.):
©Það er engum blöðum um það að fletta að þú ert
allt of samhaldssamur og það gerir þér erfitt fyrir.
Léttu þér nú ærlega upp og ekki aðeins þér, held-
ur og þeim sem eru þér næstir og hafa.mest haft
af samhaldssemi þinni að segja.
Geitarmerkið (22. des.—20. jan.):
Leggðu ekki of hart að þér við störf þín. Ef þú
færð boð um ferðalag á laugardag, skaltu yfirvega
allar aðstæður nákvæmlega og ef þér finnst ekki
allt í fullkomlega góðu lagi skaltu hvergi fara. Þú
hagnast á viðskiptum, sennilega varðandi eignaskipj;i.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febrúar):
Þú færð lausn ýmissa mála upp í hendurnar, sem
þú hefur lengi unnið að. Það er einkum varðandi
peningamálin, sýndu enga linkind í þeim málum.
Ekki er ólíklegt að þú farir í smáferð eftir helgina
og mun hún verða mjög skemmtileg.
©Fiskamerkið (20. febrúar—20.. marz):
Þú ert mjög kappsamur við alla vinnu sem þú
tekur að þér. Þér verður því oftast nær nokkuð úr
hlutunum og hefur alltaf nóg að gera. Þú færð
ýmsan starfa í vikunni en varastu samt að vera
með of margt á prjónunum. Heillatala er 7.
m
.fififiífifififi
íiiSiiSs
íííí-íííiíífi
iWiiiiiii
fifiífiíífififi
fifififi
ll>ll
iiiiii'iiili
Má
iiiiiiiii
;ííí*5í*^:
•ii.i.'i.
Itlil
STÓRAUKIN SALA SANNAR YINSÆIDIR YÖRUNNAR