Vikan


Vikan - 04.07.1963, Blaðsíða 32

Vikan - 04.07.1963, Blaðsíða 32
hendurnar og ilmar þægilega. vex þvottoefnin eru bezta húshjólpin. vex fæst í næstu verzlun. rSÍÖfnP) ÖHrútsmerkið (21. marz—20. apríl): Einhverjir smá erfiðleikar verða á vegi þínum sem þú kemst því miður ekki hjá. En úr þeim mun rætast ef þú reynist þolinmóður. Þú umgengst vini þína ekki mikið þessa dagana og mun þér heppi- legast að vera sem mest heinia við. Það verður mikið annríki hjá þér í kringum helgina. ONautsmerkið (21. apríl—21. maí): Það er nauðsynlegt fyrir atvinnu og sálarró þína að þú komir til móts við mann sem vill leiðbeina þér, þetta gæti einnig átt við þá sem eru að taka persónulegar ákvarðanir af einhverju tagi. Sam- b^nd þitt og þeirra sem þér þykir vænzt um verður mjög innilegt. Tvíburamerkið (22. maí—21. júní): Stjörnurnar eru ekki í sem æskilegastri stÖðu sem stendur, hafðu þess .vegna hægt um þig og taktu ekki neinar stórar ákvarðanir. Félagslíf meðal kunningja verður þér ekki til neinnar sér- stakrar ánægju en þú munt finna ágæta aðferð til að skemmta þér. Krabbamerkið (22. júní—23. júlí): Þú ert fremur spenntur og eftirvæntingarfullur, vegna atburða innan fjölskyldunnar, en úr rætist á bezta veg í vikulokin. Menn fæddir undir Vatns- bera-, Tvíbura- og Geitarmerkinu gætu orðið þér til heilla. Stutt ferðalag er í vændum um helgina. Ljónsmerkið (24. júlí—23. ágúst): Reyndu að komast í persónulegt samband við yflr- boðara þína, ekki er ólíklegt að það komi sér vel fyrir þig.. Það verða gerðar háar kröfur til þíix sem þú getur að miklu leyti afgreitt með prúðri . Forðastu að leita nýrra ævintýra með hinu kyninu © m III Meyjarmerkið (24. ágúst—23. scptember); Smá turflanir sem tefja töluvert framkvæmdir þínar virðast óhjákvæmilegar. 'I'emcfu þér að vinza aðalatriðin frá aukaatriðunum. Kunningjar þínir eru með verkefni í undirbúningi sem þú munt eiga síðar meir drjúgan þátt í að leysa. Vogarmerkið (24. sept.—23. októbcr); Þú hefur orðið fyrir vonbrigðum i vinavali þínu og mun það verða þér nokkuð lærdómsríkt. Veldu þér vini sem bera virðingu fyrir þér. Vinaval bezt. í Vatnsbera-, Meyjar- og Vogarmerkinu. Fjöl- skyldulíf þitt verður mjög ánægjulegt. Drekamcrkið (24. október—23. nóvember); Gættu þín á dómgirni og svartsýni. Þú hefur van- traust á persónum sem Éökum kuldalegrar fram- komu þinnar geta ekki orðið þér til ánægju. Það væri heilladrýgst fyrir þig að snúa sem skjótast við blaðinu er þú verður þessara tilfinninga var. Bogmannsmerkið (24. nóvembcr—21. desember): Sökum framsýni þinnar og dugnaðar blæs nú aftur Vpr. 2 byrlega fyrir þér. Samband við kunningja sem þú hefur vanrækt lengi skaltu endurnýja þér og öllum aðilum til ánægju. Ástarguðinn er mikið á ferðinni í kringum þig þó þú hafir gefið því fremur lítinn gaum. Geitarmerkiö (22. dcsember—20. janúar): Þú hefur nokkuð lengi gengið með grasið í skónum eftir persónu sem þrátt fyrir allt og allt lætur aldrei undan beiðni þinni, ef þú heldur uppteknum hætti. Skemmtileg ferð er í vændum, en fremur stutt. Þú færð tilboð um atvinnu. Vatnsberamerkið (21. janúar—19. febrúar): ®Þú hefur umgengizt of lítið undanfarið persónur af hinu kyninu. Ef það stafar af feimni skaltu gera ráðstafanir til að haga aðstæðum betur. Ekkert stórvægilegt hendir þig í vikunni, en það væri rótt að vara þig við manni sem reynir að koma áhyggjum sínum yfir á þínar herðar. ©Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz): Þú skalt sjálfur leysa fram úr vandamálum þínum, því einhver trúnaðarmaður þinn hefur tilhneig- ingu til ótrygglyndis. Þú ættir að taka til hendinni heima, við verkefni sem þú hefur mikinn áhuga á, en hefur elcki gefið þér tíma til þess að sinna. 32 ~ VIKAN 27. tbL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.