Vikan


Vikan - 01.08.1963, Blaðsíða 20

Vikan - 01.08.1963, Blaðsíða 20
jónatan Pórmundsson. HVERNIG DÆMIR ÞÚ? 'jf; var sannaö, og þó - - Á árinu 1928 réðst sem vinnukona á heimili Jóns Jónssonar óg Bentborgar tvítug stúlka, Dýrfinna Daðadóttir að nafni. Kunningsskapur þeirra Jóns og Dýrfinnu varð fljótt mjög náinn. Keyrði þessi samdráttur þeirra svo úr hófi, að í des- ember þetta ár rak Bentborg stúlkuna úr vistinni og hótaði Jóni lögskilnaði, ef hann sliti ekki með öllu sambandinu við Dýrfinnu. Hlaut Jón að láta að vilja eiginkonu sinnar í þess- um efnum, því að af fjárhagslegum ástæðum þoldi hann ekki hjónaskilnað, og sleit hann því um hríð öllu sambandi við frillu sina. Af Dýrfinnu er það að segja, að hún giftist Flosa Jónssyni, sjómanni, í júnímánuði 1929. Þrem árum eftir giftinguna tók Flosi álæknandi sjúkdóm og þurfti oft að leggjast í sjúkrahús. Ef hann var vinnufær, stundaði hann sjómennsku. Þannig var hann á síldveiðibáti fyrir norðan land á sumarvertíðinni 1933 frá því um miðjan júnímánuð. Strax að vertíð lokinni lagðist hann í sjúkrahús og átti ekki afturkvæmt þaðan. Hinn 10. marz 1934 ól Dýrfinna fullburða meybarn, sem í skiminni hlaut nafnið Harpa. Hinn 4. apríl s. á. andaðist Flosi í sjúkrahúsinu. Honum hafði verið kunngerð fæðing Hörpu, og gladdist hann yfir þeim atburði. Á þessum tíma var hann þungt haldinn, enda þótt hann hefði fulla rænu og dómgreind. Þegar Harpa Flosadóttir komst á legg, varð augljóst, að hún líktist Flosa föður sínum ekki að neinu leyti. En jafnljóst var það, að henni svipaði mjög til Jóns Jónssonar og ættmenna hans. Kom þetta fram í háralit og augna, svo og vaxtarlagi, fasi og sköpunarlagi handa o. fl. Var það almannarómur í bænum, að Harpa væri ekki dóttir Flosa, heldur Jóns Jónssonar. Það fór ekki hjá því, að þessi orðrómur bærist til eyrna Hörpu sjálfrar. Færði hún þetta nokkrum sinnum í tal við móður sína og kvaðst una því illa að vera rangt feðruð. f)ýrfinna eyddi jafnan tali þessu. Þegar Harpa var orðin lögráða, höfðaði hún mál, þar sem hún gerði þær kröfur, að kveðið yrði svo á með dómi, að hún væri dóttir Jóns Jónssonar, en ekki látins eiginmanns móður sinnar. Við rannsókn þessa máls viðurkenndu þau Jón og Dýrfinna, að kunningsskapur þeirra hefði raknað að nýju við á árinu 1932, og hafi þau síðfm öðru hvoru haft holdlegar samfarir. Töldu þau ekki orka tvímælis, að Harpa væri dóttir þeirra, enda fullyrti Dýrfinna, að hún hefði ekki haft mök við eigin- mann sinn síðustu tvö árin, sem hann var á lífi. Þá kvað hún öðrum karlmönnum ekki til að dreifa. Þá upplýsti Jón, að hann hefði ávallt greitt nokkurt fé með Hörpu. Ekki hefði þar verið um að ræða reglubundnar með- lagsgreiðslur, hins vegar muni heildargreiðslan til hennar hafa numið hærri fjárhæð, en barnsföður var gert að greiða með óskilgetnu barni á þessum tíma. Blóðrannsókn veitti þá niðurstöðu, að Jón gæti verið faðir Hörpu. Dómarinn gerði tilraun til, að fram færi erfðafræðileg rann- sókn á öllum þeim aðilum, er hér áttu hlut að máli, en Dýr- finna neitaði með öllu slíkri rannsókn. Gat rannsóknin því engan árangur borið. Spuming Vikunnar: Verður Jón dæmdur faðir Hörpu? Sjá svar á bls. 51. Faðernið Ár hvert, hinn 16. júní, braut- skráir Menntaskólinn í Reykja- vík sívaxandi eintakafjölda stúd- enta. Þá velta margir þeirri spurningu fyrir sér, hvað verði um þennan glaðlega hóp, sem skartar með hvítu kollana, niðri í miðbæ. Hvert liggur leiðin? Flestir fulltrúar veikara kynsins fylkja liði inn í eldhúsin til að þvo potta og .staga í buxur, og ungu mennirnir margir hverjir hætta frekara námi og hefja ým- HANN GLEÐST, MEÐAN NAMIÐ ENDIST is störf á alpfiennum vettvangL Eigi að síður Íeggja sumir á bratt- ann og setjast í háskóla, oft er- lendis. Vorið 1957 útskrifaðist úr M.R. með glæsilega einkunn í vega- nesti, Jónatan Þórmundsson, og hóf hann nám við lagadeild Háskóla íslands um haustið það ár. Okkur lék hugur á að for- vitnast um æviferil hans eftir stúdentspróf og hittum hann að máli í III. kennslustofu háskól- ans, þar sem hann var að vinna við prófarkalestur á nýju laga- safni. ■— Úr hvorri deildinni laukstu prófi, og hverjar voru uppáhalds námsgreinarnar? — Ég er stúdent úr máladeild og hafði mestan áhuga á erlend- um tungumálum. Um tíma hafði ég í hyggju að leggja stund á latínu og rómönsk mál. — En hvað kom til að þú fórst í lögfræði? — Því miður sá ég mér ekki fært fjárhagslega að stunda langt nám erlendis. Ég varð því að velja milli deilda í háskólanum hér. Valið var mér nokkuð erf- itt, en stóð þó að síðustu milli tveggja: læknisfræði og lögfræði. Ég gat vel hugsað mér að lesa hvora greinina sem var, en til- hugsunin um að grufla í innyfl- um og að standa við sjúkrarúm bægði mér frá læknisfræðinni, og settist ég því í lagadeild. — Og kanntu svo ekki sæmi- lega við þig, þegar aiit kgmur til alls? — I fyrstu var áhuginn ekki sem skyldi, enda sinnti ég meira ýmsu öðru, t. d. málanámi. Þó lauk ég prófi í undirbúnings- greinum lögfræðinnar um vorið, ásamt „fílunni“. Og næsta vetur tók ég mér frí frá lögfræðinni og stundaði. nám í latínu og róm- önskum málum við háskólann í Genúa. Síðustu árin hef ég svo fyrir alvöru snúið mér að lög- fræðináminu, og áhugi minn á því sífellt aukizt. — Hvernig er náminu háttað? — Það tekur að jafnaði 6 ár og kennslan fer að mestu fram í fyrirlestrarformi. Einnig er beint spurningum til nemenda, og ætlazt er til, að þeir búi sig undir tímana, en á því vill oft verða misbrestur, eins og í öðr- um skólum. — Námskostnaður er að sjálf- sögðu mikill, er það ekki? — Jú, og ég hef lengst af unn- ið með náminu, t. d. kennt þrjá vetur við Menntaskólann í Reykjavík, ensku og latínu. — Er ekki undarlegt að sitja á skólabekk í öðrum staðnum og tróna í kennarapontu á hinum? — Frá sálfræðilegu sjónarmiði er það áreiðanlega hollt. Þegar ég hef verið þrautspurður af ströngum lærifeðrum, fer ég og sezt við kennaraborðið og rek garnirnar úr skjálfandi „mennt- skælingum". Mér fellur kennslan ágætlega, en þó er nýjabrumið farið af henni. — Hvað um félagslíf í háskól- anum? — Ja, stúdentum finnst það ekki öflugt, miðað við það sem gerist í Menntaskólanum. En við laganemar teljum að deildarfélag okkar, Orator, sé einna virkast þeirra félaga, sem starfa innan skólans. Orator gengst m. a. fyrir fyrirlestrahaldi og mál- flutningsæfingum. Á afmæli hæstaréttar, 16. febrúar, er hald- in vegleg hátíð, og er þá mikið um dýrðir. Á vegum félagsins er svo gefið út lögfræðitímaritið Úlfljótur, sem telja má eitt hið vandaðasta, sem gefið er út af laganemum á Norðurlöndum. Þá má nefna, að á hverju ári er far- inn svokallaður Vísindaleiðang- ur og þá heimsóttir ýmsir merk- isstaðir, sem koma náminu við á einhvern hátt, sýslumenn sótt- ir heim o. s. frv. — Eru miklir framtíðarmögu- leikar fyrir unga lögfræðinga, og hvað hyggstu fyrir að afloknu prófi? — Sem stendur eru atvinnu- horfur allgóðar. Lögfræðin er raunhæft fag, og lögfræðikunn- Framhald á bls. 37. 2Q — VtKAN 31. tHL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.