Vikan - 19.09.1963, Blaðsíða 32
AUGNPOKAKREM
SPECIFIQUE THAITEMENT.
Þessi áburður er notaður til þess að koma í veg fyrir „poka“
undir augunum, bláa hringi umhverfis augun og þykk augna-
lok. Ef þessi áburður er borinn á reglulega, kemur hann í veg
fyrir blóðsókn til augnlokanna. Hann lífgar blóðrásina og fjörgar
vöðvana í augnlokunum og fjarlægir poka undir augunum.
AUGNHÁRANÆRING
STIMULANT POUR LES CILS.
„LANCASTER Eyelash Cream“.
Hvetur vöxt augnháranna, þannig að þau lengjast og bogna fag-
urlega. Engin óþægindi eru því fylgjandi að nota þennan áburð,
vegna þess að hann er búinn til úr hreinsuðum olíutegundum
og hrindir frá sér vatni.
LANCASTER AUGNSKUGGAR
BRILLIANT POUR PAUPIERES.
Augnskuggar sem mjúk krem eða sem stönglar. Einnig til með
silfurblæ í mismunandi litum.
EYE LINER
Sérstaklega vinsæl augnsnyrting sem óhætt er að nota daglega
án þess að hann erti jafnvel viðkvæmasta hörund.
5 litir.
AUGNABRÚNABLÝANTAR
í fallegum hylkjum — svartir, brúnir, gráir.
ÚTSÖLUSTAÐIR. — REYKJAVÍK: Tíbrá, Gjafa- og
snyrtivörubúðin, Orion, Tízkuskólinn, Holts-Apótek,
Tjarnarhárgreiðslustofan. — AKUREYRI: Verzl. Drífa. —•
VESTMANNAEYJAR: Silfurbúðin.
22 — VIKAN 38. tbl.
II
'bUPfta p
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi tiJ fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz—21. apríl):
Segðu öðrum undandráttarlaust, hvaða skilyrði þú
setur og reyndu að komast fyrir um það, hvað
þeir hugsuðu sér um málin. Þú þarft að taka óskir
fjölskyldunnar til greina, áður en lokaákvörðunin
er tekin. Heppilegasti dagurinn til þess er miðvikudagur.
N«°.utsmerkið (22. apríl—21. maí):
Leitastu við að ljúka því, sem ekki hefur unnizt
tími til að undanförnu, en geymdu nýrri viöfangs-
efni þar til í næstu viku. Til eru þær skyldur, sem
ekki er gott að hlaupast frá. Vinir þínir munu veita
þér drengilega aðstoð.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní):
Það eru meiri líkur til þess, að þér verði á mis-
tök, ef þú fylgir ráðum annarra, en ef þú gerir
það sem þín eigin samvizka býður þér. Hafðu
vakandi ábyrgðartilfinningu, og mundu það, að
hver og einn verður að taka afleiðingum gerða sinna. Heilla-
litur: Gulgrænt.
Krabbamerkið (22. júní—23. júlí):
Nú er einmitt rétti tíminn til þess að stökkva út
í og taka á sig skuldbindingar, einkum fjárhags-
legar. Stjörnuafstaðan sýnir, að þótt þér virðist
þú ekki með nokkru móti geta staðið við það, sem
krafizt er, mun greiðast ljúflega úr því, þegar þar að kemur.
Ljónsmerkið (24. júlí—24. ágúst):
Upp á síðkastið hefur þér gengið miður vel að
samræma tilfinningarnar að ætlunarverki þínu.
Nú er þetta breytt. Þú ættir því að láta tilfinn-
ingar þínar koma vel í ljós, og ennfremur að
blanda geði sem mest við aðra menn. Ophaðu skelina og loft-
aðu vel inn í hana.
Meyjarmerkið (24. ágúst—23. sept.):
Taktu þér ekki þá til fyrirmyndar, sem gera grín
að heppninni og fara óráðlega með eigur sínar. Þér
væri heppilegra að finna sjálfur þína leið að mark-
inu og feta hana með fullri fyrirhyggju. Hafðu
vakandi ábyrgðartilfinningu.
Vogarmerkið (24. sept.—23. okt.):
Þessi vika verður þér næsta fyrirhafnarlítil. Þínir
nánustu, bæði á heimili og í vinnu, munu verða
þér sammála og leita til þín með verkefni, sem
þú átt auðvelt með að leysa vel úr. En gættu þín
að ofmetnast ekki eða ætla þér stærri bita en. þú getur gap-
að yfir.
Drekamerkið (24. okt.—22. nóv.):
Dragðu ekki lengur að hefjast handa um loka-
framkvæmdirnar, nú þegar öllum undirbúningi er
lokið. Allar líkur benda til, að málið fái nú góðan
enda. Gættu þess samt, að hlaupa ekki á þig; ef
þú færð aðstoð sérfróðs manns, sem þér hefur oft dottið í hug
upp á síðkastið, er engin hætta á slíku.
Bogmannsmerkið (23. nóv.—21. des.):
©Leggðu áherzlu á að vera sem allra þægilegastur
og skemmtilegastur 1 umgengni, einkum að því er
varðar þá, sem þér eru nánastir. Þótt þú hafir ekki
fjárhagsáhyggjur, gætu aðrir meðlimir fjölskyld-
unnar haft þær í ríkum mæli.
„ Geitarmerkið (22. des.—20. jan.):
Allt ætti að geta verið eins og þú gætir bezt á
kosið innan húss. Nýjar hugmyndir myndu gera
iqggjpr aðstæðurnar ennþá skemmtilegri. Allt, sem þú tek-
ur þér fyrir hendur fyrri hluta vikunnar, gæti
orðið með því bezta, sem þú hefur yfirleití gert.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febrúar):
Þú ættir að hefjast handa um framkvæmdir, sem
jB þú hefur lengi haft í huga, en gættu þess að vanda
vel allan undirbúning. Þú mátt reikna með tals-
verðum hindrunum, en þær eru ekki óyfirstígan-
legar. Heillatala 11.
©Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz):
Gættu þín að vera ekki of vingjarnlegur við þá,
sem þér er ekki gefið um. Það getur dregið dilk
á eftir sér, að vingazt við þá, sem maður kærir
sig ekki um að umgangast. Dveldu sem mest út
af fyrir þig og varastu fjölmenni eftir beztu getu.