Vikan - 10.10.1963, Page 13
^ignaðist bílfnn. Það dró dilk á eftir sér fyrir hann
„Daginn eftir mrogundaginn?" hrópaði AVilcox upp yfir sig. „Hvers vegna
ekki strax í dag? Eða á morgun?“
„Áætlunarbíllinn einn dag til Acapulco,'1 sagði Miguel. „Næsta dag til
Taxco. í dag til Acapulco, sem draga þig, nú farinn. Á morgun til Taxco.
Næsta dag aftur til Acapulco."
„Er ekki sími hérna?“ spurði Wilcox.
„Jú, si, senor,“ svaraði Miguel stoltur. „Lögreglustöðin. En bara ekkert
samband.“
„Strákar mínir,*' sagði Wilcox. „Fáið ykkur sæti hérna við borðið hjá
mér og þiggið eitthvað að drekka, á meðan við reynum að komast til botns
í þessu. Hvað má bjóða ykkur?“
Þeir Miguel og Pepe litu hvor á annan. Manni var ekki
boðið að setjast að drykkju með Ameríkana; annað eins
gat bókstaflega ekki átt sér stað. Þeir tóku sér varfærnis-
lega sæti og báðu um bjór. Veitingamaðurinn bar þeim
hann, og andlit hans var svo svipbrigðalaust, að einungis
aðrir Indíánar gátu lesið úr því undrun hans og tortryggni.
„Jæja þá,“ tók Wilcox til máls. „í dag er miðvikudagur.
Hafi ég skilið ykkur rétt, verður það á laugardaginn, sem
þessi náungi, þessi Diosdado kemur og gerir við bílinn.“
Miguel varð fyrir svörum. „Hver veit,“ sagði hann.
„Ég skil hvað þú átt við,‘‘ sagði Wilcox. „Kannski verður
maður að fá eitthvað í bílinn.“ Hann slokaði í sig þriðja
glasinu af tequila og benti veitingamanninum á að koma
með það fjórða. „Allt í lagi. Ðiosdado fer þá með áætl-
unarbílnum til Acapulco á sunnudaginn ...“
„Afsaka ... enginn áætlunarbíll á sunnudögum," greip
Miguel fram í.
„Hann fer þá til baka á mánudag,“ sagði Wilcox. Þetta
var í þann veginn að verða ofraun meðfæddu glaðlyndi
hans og jafnaðargeði. „Og á þriðjudag kemur hann svo
hingað aftur með það, sem kann að vanta í bílinn. Þegar
svo viðgerðinni er lokið, verður hann mér samferða í bíln-
um til Acapulco.1'
Nokkra stund ríkti þögn við borðið. Wilcox hressti sig
óspart á drykknum. „Bíllinn er gamall,“ varð honum að
orði. „Ég var bölvaður asni að leggja hann á þessa fjall-
vegi, einungis til að sjá eigin augum hvað við tæki fyrir
handan. Vitanlega hefði ég átt að fara þjóðveginn frá
Taco til Acapulco. Þá hefði ekkert komið fyrir. Jæja, það
verður ekki afturtekið. Er nokkurt gistihús hérna? Nokkur
staður, þar sem maður getur fengið að vera?“
Hann leit út yfir torgið, þar sem allt var kafið í rusli,
gangstéttarsteinarnir skakkir og skældir, trén rykug, vatns-
þróin tóm, fornfálegir bekkir, sem ekki varð setzt á fyrir
óhreinindum; auk þess voru þarna nokkrar útikrár og
verzlanir, þar sem öllu ægði saman, lágreist kirkja með
brostna klukku í opnu porti, sem engu að síður mundi
luma á nógum skarkala til að vekia hann klukkan fimm
á morgnana, og eftir það með með klukkustundar milli-
bili, sex, sjö og átta.
„Si, senore,“ svaraði Miguel hróðugur. „Herbergi í
restaurante. Eitt laust. Fimm pesos.“
Þegar Wilcox heyrði verðið, sýndist hann taka aftur
gleði sína. „Fjörutíu sent ... ekki setur það mig á hausinn.
Ég hef hugboð um að svo geti farið, að ég verði að dveljast
hér vikulangt, kannski það sem eftir er ævinnar. Viljið
þið nú ekki, annarhvor ykkar, ná í ferðatöskuna mína úti
í bílnum?'1 Þegar þeir störðu á hann báðir, eins og þeir
vissu ekki sitt rjúkandi ráð, endurtók hann: „Taska —
ferðataska — maleta!" og rak síðan enn upp röknahiátur.
„Jæja, strákar, er ég kannski ekki orðinn sæmilega bæna-
bókarfær á ykkar tungu?“
Á meðan Miguel var að ná í ferðatöskuna, tókst Wilcox
að gera veitingamanninum það skiljanlegt, að hann æskti
gistingar. Honum var þá vísað inn í herbergiskytru,
hvar inni stóð svefnbálkur og grind með handlaug, en ekki
voru þar nein húsgögn önnur. Kytra þessi var við hliðina
á snyrtiherbergi — karla og kvenna sameiginlega — og
lagði þaðan megnan ódaun. Wilcox hló og veifaði þeim
félögum í kveðjuskyni.
„Bölvað svínið,“ varð Pepe að orði. „Rétti ekki að mér
grænan eyri.“
„Þú áttir það ekki heldur skilið,*' svaraði Miguel. „Eða
hvað gerðir þú fyrir hann?“
Eins og lög gera ráð fyrir varð Miguel að vinna dag-
langt á akri sinum. Á kvöldin lagði hann aftur á móti leið
sína til borgarinnar, eins og allir aðrir. Á föstudagskvöld
heimsótti hann Wilcox og sagði
Framhald á næstu síðu.
VIKAN 41. tbl. —