Vikan - 10.10.1963, Page 32
Nýtt írá
GEFfUN
TERYLENE-TWEEDIAKKAR
30% TERYLENE
65% ULL
^ ‘“5%=MÖHAni
GEFJUN - IÐUNN
KIRK JU STRÆTI
£2 — VIKAN 41« ttL
11111
illlll
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl):
Þú verður að beita hörku og vera ákveðin við
persónu sem er milligöngumaður vegna óhapps
sem hefur hent þig. Nokkrir unglingar munu
ganga fram af þér með framferði sínu, forðastu
að lcika hlutverk siðaprédikarans. Lyftu þér eitthvað upp um
helgina.
Nautsmerkið (21. apríl—21. 'maí):
Þú verður þess áþreifanlega var að margt fer
öðru vísi en ætlað er. Persóna sem er talsvert
yngri en þú, gerir þig að trúnaðarmanni sínum og
leitar ráða hjá þér. Ættingi þinn mun koma þér
mjög á óvart með framtakssemi sinni. Taktu engar stór-
ákvarðanir.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní):
Ennþá hefurðu ekki komið auga á hentugustu
lausn erfiðs verkefnis, en þú nálgast markið óð-
um. Menn sem þú hefur lítið daglegt samneyti
við hafa augastað á samvinnu við þig. Notaðu and-
lega og líkamlega krafta þína til fulls, þá er ástæða til að
ætla að árangurinn verði góður.
Krabbamcrkiö (22. júní—23. júlí):
Undanfarið hefurðu verið alltof nízkur og fast-
heldinn á hlut sem tilheyrir þér, það myndi bæta
fjölskyldulífið til muna ef þú slakaðir svolítið
á. Nú er rétti tíminn fyrir þig að fara fram á bætt
kjör, en það væri mikill styrkur ef þú gætir fengið félaga
þína til að sameinast þér í kröfunum.
Ljónsmerkið (24. júlí—23. ágúst):
Það verður nokkuð um ókunnugt fólk í kringum
þig, sem þú þarft að umgangast, en kynnist samt
ekki. Einn kunningja þinna lendir í vandræðum
og þarft þú að hjálpa honum. Öll viðskipti ættu
að gefa góða raun. Gerðu vini þínum greiðann sem hann bað
þig um í síðustu viku.
Meyjarmerkið (24. ágúst—23. septembcr):
Þú hefur verið dálítið uppstökkur upp á síðkastið,
en ef þú íhugar málið, sérðu að þú hefur verið
ósanngjarn í skoðunum þínum. Masgefinn félagi
þinn er með óskemmtilegar sögusagnir um skyld-
menni þitt, þér er ráðlegast að skipta þér sem minnst af
honum.
Vogarmerkið (24. september—23. október):
Þú ert þvingaður vegna rimmu sem þú hefur lent
í við starfsfélaga þinn, láttu sem minnst bera á
að nokkur ósátt sé í millum ykkar, ennþá eiga
eftir að koma fram atriði sem varpa ljósi á málið.
Líkur eru á að þú eyðir nokkru fé í happdrætti eða aðrar
skeikular gróðavonir.
Drekamerkið (24. október—22. nóvember):
Það verður mikið um að vera 1 kringum þig og
nóg að gera. Þú uppgötvar allt 1 einu lausn á
vandamáli sem þú hefur oft ergt þig yfir. Óvænt
töf verður á verkefni sem þú vinnur leynilega að.
Þú kemur til með að leita til ókunnugra varðandi mál, sem
varðar hagsmuni þína.
_ Bogmannsmerkið (23. nóvember—21. desember):
Það lítur út fyrir að áform þín gangi að vonum
■ri flt þrátt fyrir dálítinn mótvind 1 byrjun. Þér mun
falla mjög vel við umhverfi þitt, og njóta tilver-
unnar. Þú skalt ekki taka að þér ákvörðun mál-
anna, því félagar þínir hafa sem stendur betri hugmyndir
en þú.
Steingeitarmerkið (22. desember—20. janúar):
Gefðu fullan gaum að því sem þér er ráðlagt ef
þér er annt um velferð þína. Þú kemst því miður
ekki hjá óvæntum útgjöldum, sem verða vegna
óheppilegra viðskipta. Menn munu taka eftir þér
vegna iðni þinnar og samvizkusemi. Slappaðu af um helgina.
Vatnsberamerkið (21. janúar—19. febrúar):
Vertu ekki of dulur á tilfinningar þínar og láttu
skoðanir þínar óhikað í ljósi, en gæ^tu þess vel,
að skapið hlaupi ekki með þig í gönur. Óvænt þró-
un mála breytir útlitinu þér í hag. Kunningi þinn
er líklegur til að reyna að hafa áhrif á þig varðandi kaup
og sölu, láttu hann ráða.
©Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz):
Þú stendur í þrefi, sem er nokkurs virði fyrir
þig að hafa yfirhöndina í, en til þess að svo verði
þarftu að beita allri þinni bragðvísi og fara var-
lega í sakirnar. Ævintýri sem þú tókst þátt 1
fyrir nokkru tekur á sig nýja mynd.