Vikan


Vikan - 10.10.1963, Side 47

Vikan - 10.10.1963, Side 47
trylltan stríðsdans. Rakt ryklag settist á allt, og þorpið virtist jafnvel enn fátæklegra og frum- stæðara en nokkru sinni. Verano, það er þurrkatímabilið var nú á enda, en við tók invierno, regntímabilið, án þess þó að loft- hitinn tæki nokkrum breyting- um, nema hvað kaldara varð fyr- ir það að ekki sá til sólar. ★ TILHUGALÍF. Framhald af bls. 21. „Þú hefur gott af þvi að lyfta þér svolítið upp, elskan mín.“ „Þú varst að fá bréf frá Amer- iku í morgun, sá ég?“ sagði Ása Frú Guðriður þreifaði i barm sér, náði í bréfið og rétti dóttur sinni það. Ása las það í flýti: „Mamma min! Ég legg af stað með flugvélinni eftir fjóra daga. Mikið lilakka ég til að sjá þig og systur mina. En eitt ætla ég að biðja þig um, elsku marnnia: Þegar ég kem heim, áttu að vera væn við mig og lofa mér að hafa alla mina hentisemi, ekki reka neitt á eftir mér eða kritisera mig. Ég lief verið veikur um langt skeið, en er nú albata, samt þarf ég að hafa frið og ró — og ég get ekki að þvi gert, þó að ég sé ekki sá maður, sem þú vildir að ég væri. Þinn Ifannes.“ Ása stóð um stund hugsi, svo hrissti hún Iröfuðið. „En indælt, mamma, að hann skuli nú 'koma aftur. Mikið hlakka ég til að sjá hann, þegar ég kem heim. Spákonan gaut upp á hana augunum, hún var bersýnilega undir áhrifum áfengis. „Já, það verður mikill gleðidagur — lrann er sonur minn, þrátt fyrir allt." XIV. „Við tökum liann Berg í leið- inni,” sagði Sigtryggur. „ffann situr frammi hjá Herjólfi og bíl- stjóranum. Þið stelpurnar sitjið hérna aftur í lijó mér, og ég á milli yk'kar eins og tyrkneskur soldán!“ Hann hló glaðlega og rétti Ásu höndina. „Komdu sæl elskan, nú fer ég inn og þú kemur á eftir, og skelltu svo hurðinni!“ Er þau höfðu ekið skamma stund, seildist hann aftur fyrir sig, á sylluna bak við sætin og dró fram gríðarstóran konfekt- kassa. „Á þessu ferðalagi,“ sagði hann, „munum við njóta lifsins án þess að hugsa nokkuð um línurnar, það er harðbannað að megra sig, fyrr en heim er koin- ið aftur! Gerið þið svo vel stelp- ur!“ „Ég ifyrir mitt leyti,“ sagði Lóa Dalberg og tók þrjá mola úr kassanum, „hef aldrei þurft neitt fyrir línunum að liafa, ef maður bara gætir þess að hafa alltaf nóg af góðum elskerum, þá er allt i lagi.” „Hufi!“ hreylti kaiupsýslu- maðurinn út úr sér. „Þetta er alveg rétt hjá Lóu,“ sagði sálfræðingurinn og tók fulla lúka sína úr konfektkass- anum. „Og sem betur fer, þá hefur sá siður lagst niður að mestu, hér á landi ,að vera jóm- frú. Eigi að síður — liafi maður giftingu í huga, þá tel ég það engan galla á kvenmanninum.“ „Þar ncyðist ég því miður til að vera þér sammála," sagði kaupsýslumaðurinn af sannfær- ingu. „Auðvitað er ekki fyrir það að synja, að ég gæti vel hugsað mér að losna við þau ó- þægindi, sem fylgja fyrstu kynn- um við hreina mey, en á liinn bóginn fyndist mér bölvað, ef konan min væri ó brúðkaupsnótt- ina að bera mig saman við ein- hvern annan, einhvern gras- asna, sem af tilviljun liefur orðið frumver hennar.“ „Rétt!“ sagði sálfræðingurinn. Veðrið var unaðslegt og hinn risastóri Cadiliac lá þægilega á veginum, enda þótt bílstjórinn æki allhratt. Þau voru aðeins hálfan annan tima upp að Fer- sti'klu. „Hér hafði ég hugsað mér að við fengjum okkur morgunverð,“ sagði Sigtryggur Háfells. „Ég átti tal við kokkinn hérna í gær- dag og vona að laxinn smakkist ykkur vel.“ Lóa Dalberg leit á hann rökum aðdóunáraugum: , Skyldi það vera munur að ferðast með svona mönnum — mönnum sem eiga nóga peninga og kunna að fara með þá!“ sagði hún hrifin. „Já, hann er mikill kaupsýslu- maður hann Sigtryggur,“ mælti Herjólfur B. Hansson með mein- 'fýsnu glotti. „Hvað er annars verðið á kvenfólki á markaðinum núna, herra stórkaupmaður?" „Það er skrambi mismunandi,“ svaraði Sigtryggur Háfells og lagði arminn líkt og i vinsemd um axlir sálfræðingsins. „Sumar konur eru dýrar og fyrir þær er ekki alltaf greitt í peningmn, kæri bókabéus.“ Hann þrýsti Herjólfi að sér svo fast að sál- fræðingurinn rak upp skræk. „Láttu ekki svona maður!“ sagði hann reiðilega. „Ég er ekki kvenmaður og læt ekki karlmenn faðma mig.“ „Fyrirgefðu," sagði kaupsýslu- maðurinn kurteislega. „Ég ætl- aði ekki að meiða þig, hélt að að þú þyldir svolítið squ- eeze. — En þú varst að spyrja um verðið á kvenfólkinu. Mér er sagt að þær kosti allt frá nokkrum kjaftshöggum og upp í — segjum eina milljón? Það sagði mér einhver i gær að hún húsmóðir þín, til dæmis, sé skrambi loðin um lófana og að hún llti frernur liýrt til þín, svona okkar á milli sagt, eða er það kannske rétt?“. Framhald í nœsta blaði. PIPARKVÖRNIN GEFUR BETRA BRAGÐ... LILLU KRYDD ER AVALT BEZT EFNAGERÐ REVKJAVÍKUR H.F.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.